Morgunblaðið - 15.05.2009, Qupperneq 22
B
A
-1
5-
05
-2
00
9-
1-
1-
F
E
R
D
-1
3-
sv
an
-
hv
it
- C
M
Y
K
Fjölskyldufyrirtækið Sjóferðir
Hafsteins og Kiddýjar sjá í
sumar um dagslangar göngu-
ferðir á Hornströndum. Göng-
urnar eru tilvaldar fyrir þá sem
vilja skoða sig um í fallegri
nátttúru og kúpla sig út úr
stressi hversdagsins.
Skemmtilegar dagsferðir
Fyrirtækið var stofnað fyrir tæp-
lega 20 árum síðan og stendur
fyrir ýmiss konar ferðum yfir
sumartímann. Meðal þeirra má
nefna daglega ferð í Vigur en
Kiddý segir að síðastliðin tvö ár
hafi áhugi á dagsferðum aukist
og að í sumar verði því lögð
áhersla á slíkar ferðir. Á þriðju-
dögum verður lagt upp frá Ísa-
firði og siglt til Aðalvíkur þaðan
sem gengið er yfir á Hesteyri,
en sú ganga er um 14 kílómetr-
ar og hækkunin um 400 metra.
Á laugardögum verða síðan nýj-
ar ferðir þar sem siglt er yfir á
Hesteyri og gengið þaðan yfir
að Látrum í Aðalvík, sú ganga
er álíka löng og ættu báðar
ferðirnar að vera við allra hæfi
þar sem góður tími er tekinn í
göngurnar og fararstjóri sér um
að enginn villist af leið. Í ferð-
irnar kostar 13.300 og eru í
verðinu innifaldar bátsferðir og
leiðsögn en nauðsynlegt er að
hafa með sér nesti, góða skó
og skjólfatnað.
Árleg Kjötsúpuferð
Þá verður hin svokallaða Kjöt-
súpuferð á sínum stað í sumar
en hún hefur verið fastur liður
síðan árið 1997. Þá er farið frá
Ísafirði seinnipart og siglt yfir á
Hesteyri þar sem borðuð er
kjötsúpa í gamla læknishúsinu
á Hesteyri, kveiktur varðeldur
og skemmt sér fram eftir
kvöldi.
Gamla læknishúsið Í kjötsúpuferð á Hesteyri er kjötsúpa snædd í gamla læknishúsinu en það hefur verið fastur liður síðan árið 1997.
Þægilegar dagsferðir
Sjóferðir Hafsteins og Kiddýjar
www.sjoferdir.is/forsida/
22| ferðasumar 2009 Morgunblaðið
Hvítasunnuhelgina 29. maí til
1. júní verður Skjaldborg, hátíð
íslenskra heimildamynda, hald-
in í þriðja sinn á Patreksfirði.
Auk þess að frumsýna nýjar ís-
lenskar heimildamyndir er há-
tíðinni ætlað að vera vett-
vangur fyrir kvikmynda-
gerðarfólk og áhugamenn um
heimildamyndir til að hittast og
skiptast á skoðunum. Í lok há-
tíðarinnar verður besta heim-
ildamyndin á Skjaldborg 2009
valin af áhorfendum
Fagna fjölbreyttri dagskrá
„Hugmyndin að hátíðinni kem-
ur í raun til af þessu fallega bíói
sem stendur á Patreksfirði,
Skjaldborgarbíói. Það hefur ver-
ið skortur á vettvangi til að
sýna íslenskar heimildamyndir
og okkur fannst kjörið að nýta
þetta húsnæði. Strax í upphafi
safnaðist síðan fjármagn frá
Kvikmyndamiðstöð og öðrum
ágætum fyrirtækjum og styrkt-
araðilum sem gerði þetta
mögulegt. Myndir koma bæði
frá fólki sem hefur verið rótgró-
ið í bransanum lengi og áhuga-
mönnum, en við fögnum fjöl-
breyttri dagskrá og leitumst við
að sýna það sem kemur ekki
fyrir sjónir almennings dags
daglega,“ segir Hafsteinn
Gunnar Sigurðsson, einn
skipuleggjenda hátíðarinnar.
Gott silfur gulli betra
Lögð hefur verið áhersla á ís-
lenskar heimildamyndir og sér-
stakur heiðursgestur verið
fenginn á hátíðina. Í fyrra var
hinn þekkti heimildamynda-
gerðarmaður Albert Maysles
heiðursgesturinn. Meðal
mynda má nefna Gott silfur er
gulli betra eftir Þór Elís Pálsson
sem fjallar um íslenska hand-
boltalandsliðið og glæsilegan
árangur þess á Ólympíu-
leikunum; heimildamynd Páls
Steingrímssonar, Undur vatns-
ins, ljóðræna mynd um vatnið;
mynd eftir Bjarna Grímsson um
skemmtistaðinn Sirkus og
heimildamyndina The Foreign
Minister eftir Ara Eldjárn sem
fjallar um myndlistarverk Ragn-
ars Kjartanssonar. Eins hefur
verið leitast við að sýna myndir
sem borist hafa frá Vest-
fjörðum.
Fjölbreytt kvikmyndahátíð
Gott í gogginn Bíógestir fá sér að borða á kvikmyndahátíðinni.