Morgunblaðið - 15.05.2009, Síða 28

Morgunblaðið - 15.05.2009, Síða 28
B A -1 5- 05 -2 00 9- 1- 1- F E R D -1 7- ha rp a- C M Y K Kórastefna við Mývatn verður haldin fyrstu helgina í júní en aðalverkefni hennar verður Messa í As dúr eftir Franz Schubert fyrir blandaðan kór, einsöngvarakvartett og hljómsveit. Verkið verður flutt af um 180 manna kór þátttakenda en einnig kemur fram kvennakór sem í verða um 100 konur. Fjórraddað í afmælum „Hugmyndina má rekja til þess að í Þingeyjarsýslu hefur ætíð verið mikil söng- hefð. Ég er ættuð úr Mývatnssveit og upp- alin við það að fólk syngi saman í fjórum röddum þegar haldin voru merkisafmæli eða veislur. Kórastefnan er haldin í sam- starfi við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og kórafólk er mjög ánægt með að koma og syngja þekkt verk í stórum kór við undir- leik sinfóníuhljómsveitar. Á kórastefnuna koma aðallega heilir kórar en líka fasta- gestir, til dæmis söngvarar sem búa á Norðurlandi og hafa sungið í góðum kórum og jafnvel erlendis. Kórarnir syngja saman en einnig syngur hver og einn kór líka sér á öðrum tónleikum Kórastefnu,“ segir Mar- grét Bóasdóttir, listrænn stjórnandi. Aðsóknarmet í fyrra Í ár eru tvö verkefni tekin fyrir á kórastefn- unni og rúmlega 100 konur í fjórum kórum koma saman og mynda kór sem syngur þýska og franska kvennakóratónlist undir stjórn þýsks prófessors í kórstjórn sem einnig stýrir kammerkór Tónlistarháskól- ans í Bremen. Margrét segir gaman að fá ný áhrif með slíku fólki. Meðal kóranna fimm sem mynda blandaðan kór eru bæði smærri kórar og stærri, þeirra á meðal fyrr- nefndur Kammerkór. Síðastliðin ár hafa mörg þekkt verk verið flutt á Kórastefnu; óratoríurnar Messías, Sköpunin og Sálu- messa Mozarts en fyrir tveimur árum var frumflutt Mass of the Children eftir John Rutter. Margrét segir aðsókn á kórastefn- una hafa verið í sívaxandi mæli og í fyrra var aðsóknarmet þegar Carmina Burana var flutt af tæplega 300 þátttakendum. Sönghefð Á Kórastefnu í Mývatnssveit gefst kórum tækifæri á að syngja saman og heyra hvor í öðrum. Schubert ómar í Mývatnssveit Kórastefna í Mývatnssveit http://www.korastefna.is/ 28| ferðasumar 2009 Morgunblaðið Eins manns rusl er annars gull er slagorð nytjamarkaðar sem haldinn verður á Hvammstanga á laugardögum í sumar, en fyrsti markaðsdagurinn verður 20. júní. Þetta er í þriðja sinn sem markaðurinn er haldinn en hópur kvenna í bænum ákvað að taka sig saman og safna fyrir góðu málefni á þennan hátt. Til styrktar góðu málefni Á markaðinum hefur mátt finna allt milli himins og jarðar, meðal annars sófasett, borðstofuborð og aðra húsmuni og er fólk hvatt til að koma með muni sem það er hætt að nota. Ágóði af mark- aðinum í fyrra var notaður til að kaupa vatnsvél fyrir grunnskól- ann og sundlaugina og myrkra- tjöld í tölvukennslustofu grunn- skólans. Þannig er leitast við að styrkja gott málefni á staðnum en markaðurinn er haldinn í gamla gærukjallaranum í slátur- húsinu niðri við höfnina. Mark- aðurinn hefur fengið góðar við- tökur ferðamanna jafnt sem heimamanna en hann verður op- inn alla laugardaga frá og með 20. júní til 8. ágúst frá kl. 11.00 - 16.00 og einnig við opnun ung- listahátíðarinnar Eldur í Húna- þingi, miðvikudaginn 22. júlí kl. 20.00 - 22.00. Nytjamarkaður Á markaðnum er safnað fyrir góðu málefni. Rusl verður að gulli

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.