Morgunblaðið - 15.05.2009, Síða 39
B
A
-1
5-
05
-2
00
9-
1-
1-
F
E
R
D
-2
6-
ha
rp
a-
C
M
Y
K
Kaffihúsið Frú Lúlú var opnað á
Norðfirði í mars en allir starfs-
menn þess eru undir 25 ára
aldri. Hjá Frú Lúlú er lögð
áhersla á menningarlegt and-
rúmsloft og veitingar sem gerð-
ar eru úr hráefni frá heima-
byggð.
„Það vilja margar konur í bæn-
um vera Frú Lúlú en við upp-
ljóstrum ekki hver hún er. Frú
Lúlú er kreppukaffihús og rekið
af hópi ungs hugsjónafólks. Við
höfum til að mynda virkjað ungt
fólk í bænum til að spila djass
og aðra tónlist hjá okkur og
þannig gert kaffihúsið að sama-
stað fyrir listir og menningu. Í
sumar verðum við með myndlist-
arsumar og setjum upp um 10
sýningar,“ segir Hákon
Guðröðarson eigandi.
Húsið sjálft er frá aldamótunum
1900 og er annað elsta
verslunarhúsnæðið á Norðfirði.
Hjá Frú Lúlú má gæða sér á þjóð-
legum kaffiveitingum eins og
heimabökuðum kleinum bök-
uðum upp úr mör og heima-
reyktu hangikjöti með heima-
bökuðu flatbrauði. Fer allur
bakstur fram á staðnum með að-
stoð nokkurra eldri kvenna í
bænum. Matseðillinn er tví-
skiptur, á honum má annars veg-
ar finna framandi smárétti sem
hentar vel að borða úti á verönd
og hins vegar breytilegan seðil
með fisk- og kjötréttum, allt eft-
ir því hvað er ferskast hverju
sinni. Opið er alla daga vikunnar,
eldhúsið opið til klukkan 22 og
um helgar er kaffihúsið líka krá
og opið til klukkan þrjú.
Frú Lúlú Ekki er uppljóstrað hver
frú Lúlú er í raun og veru.
Í kaffi hjá Frú Lúlú
Frú Lúlú veitingahús
Egilsbraut 19, 740 Neskaupstað
Stafafell í Lóni hefur verið
skipulagt sem náttúrugarður
sem spannar um 400 ferkíló-
metra svæði og liggur frá fjöru
til fjalla, um 40 kílómetra leið
upp með Jökulsá í Lóni að
vatnaskilum við Fljótsdal. Upp-
bygging á svæðinu miðar að ró-
legum ferðamáta eða Slow Tra-
vel sem felur í sér að dvelja
lengur á áhugaverðu svæði
frekar en að vera í kapphlaupi
við tímann.
Tengslin við náttúruna efld
Á síðustu árum hafa göngubrýr,
skálar og tjaldstæði gert að-
stöðu til gönguferða ákjósan-
lega. Helstu þjónustusvæði
með skálagistingu og tjald-
stæðum eru í Eskifelli og Kollu-
múla þaðan sem fólk er keyrt til
fjalla eða sótt að morgni dags
og á kvöldin. Þá eru daglegar
ferðir í Austurskóga þar sem áð
er í Friðrikslundi. Þar er grenja-
kofi Friðriks Jónssonar frá
Hraunkoti sem var sannkallað
náttúrubarn og í anda hans
verður leitast við að efla tengsl-
in við náttúruna. Í ferðunum
verður veisla í farangrinum,
boðið upp á humarsúpu, gerðar
jógaæfingar og fróðleiksmolum
um sögu og náttúru miðlað.
Söng í gilinu
„Austurskógar minna okkur á
frásagnir um að landið allt hafi
verið skógi vaxið. Í Hvannagil er
ótrúleg litadýrð í líparítinu og al-
gengt að erlendir ferðamenn
hafi áhuga á að skoða gilið og
spyrji þá um colour canyon. Í
ferðum um svæðið er gaman
að allir séu virkir þáttakendur.
Ég man t.d. eitt sinn eftir því að
ég var að rölta með ítalskan
hóp um gilið í sól og blíðu og
spyr hvort að einhver sé ekki til
í að synjga. Þá kemur í ljós að í
hópnum er söngkona frá Scala
óperuhúsinu og söng hún eitt
aðallagið úr óperunni Orfeus og
Evridís með tilþrifum undir
glæstu undirspili lækjarins. Á
Smiðjunesi skammt frá gilinu er
síðanvinsælt tjaldstæði með
ekta náttúrustemningu ,“ segir
Gunnlaugur B. Ólafsson, leið-
sögumaður í Stafafelli.
Göngugarpar Hér gengur hópur í náttúrufegurð í Víðagili.
Náttúran í rólegheitum
Stafafell í Lóni
www.stafafell.is
ferðasumar 2009 Morgunblaðið | 39
Hefur þú komið í
Hallormsstaðaskóg?
Notið austfirskrar
sumarblíðu, frábærra
gönguleiða og smakkað
á gómsætum krásum?
www.e
ast.is
AUSTURL
AND
Í AL
VÖR
U