Morgunblaðið - 15.05.2009, Side 46

Morgunblaðið - 15.05.2009, Side 46
B A -1 5- 05 -2 00 9- 1- 1- F E R D -3 2- ha rp a- C M Y K Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja var opnað árið 1965 en safnið er í alls þremur sölum. Kristján Egilsson safn- stjóri segir að hinir lifandi sýn- ingargripir veki helst lukku en á safninu eru 12 búr með lifandi sjávardýrum. „Það eru þessir helstu nytjafiskar: þorskur, steinbítur, ýsa, koli, krabbar og fleira. Við erum með steina- safn, íslenska skrautsteina og svo erum við með sal með upp- stoppuðum fuglum og fiskum. Eins erum við með skordýra- safn og eggjasafn. En yfirleitt eru það lifandi fiskarnir sem vekja mesta hrifningu.“ Samvinna við Háskólann Kristján talar um að safnmun- irnir séu mestmegnis gjafir frá einstaklingum. „Til dæmis gáfu hjón hér úr bæ okkur allt steinasafnið sem telur um 1200 steina. Sjómenn eru líka afskaplega duglegir að koma með til okkar og halda lífi í fisk- um, ef okkur vantar eitthvað. Svo erum við í samvinnu við Háskóla Íslands og Nátt- úrustofu Suðurlands sem er staðsett hér í Vestmanna- eyjum. Þannig hefur safnið ver- ið notað til ýmissa athugana og rannsókna og núna vinnum við saman að pysjuverkefni. Krakkarnir koma með pysjuna hingað áður en þau sleppa henni og í samvinnu við háskól- ann skráum við, mælum og vigtum allar pysjur sem lenda í bænum. Þetta hefur verið gert markvisst frá árinu 2003 og sjá má að pysjum hefur fækk- að síðustu ár.“ Óbreytt í gosinu Eftir að gosið hófst í Vest- mannaeyjum var Fiska- og nátt- úrugripasafnið eitt af fáum húsum sem var ekki tæmt, að sögn Kristjáns. „Friðrik Jesson og Magnea Sjöberg voru safn- verðir og þau fóru ekki frá Eyj- um. Þau bjuggu um sig og sváfu í safninu í nokkrar vikur eftir að gosið hófst, en urðu síðan að flytja náttstað sinn annað þegar bera tók á gas- mengun í húsinu. Nátt- úrufræðistofnun Íslands bauð safninu alla aðstoð við flutning úr bænum ef á þyrfti að halda, en ákveðið var að flytja safnið ekki í burtu. Friðrik og Magnea sáu fram á að ef það ætti að flytja svona náttúruminjar þá hefði margt af því eyðilagst og því var allt óbreytt innandyra í safninu allan gostímann.“ Fiskar og náttúra Á Fiska- og náttúrugripasafni Vestmannaeyja eru 12 búr með alls kyns lifandi sjávardýrum sem valda mikla lukku. Lifandi og upp- stoppaðir fiskar Fiska- og náttúrugripasafnið er opið á hverjum degi í sumar klukkan 11-17. www.vestmannaeyjar.is/safnahus 46| ferðasumar 2009 Morgunblaðið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.