Morgunblaðið - 20.06.2009, Page 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2009
FLENSARAR munduðu hnífana á ný á skurð-
arplaninu í Hvalfirði í morgun eftir að Hvalur
9 dró á land tvær langreyðarkýr. Ekki voru
allir með handtökin á hreinu enda nokkuð
margir nýliðar í hópnum. 26 ár eru síðan síð-
ast voru stundaðar magnveiðar á langreyði
hér við land, ef frá eru taldar sjö skepnur
sem veiddar voru árið 2006.
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, viður-
kennir enda að hafa fengið fiðring þegar
planið í Hvalfirðinum byrjaði að iða aftur af
vinnandi mönnum. „Meirihlutinn eru alveg
nýir en það eru þónokkrir sem voru hérna
hjá okkur í gamla daga og þeir kenna hin-
um,“ segir Kristján.
Hátt í 100 manns munu vinna við veiðar og
verkun í sumar á nokkuð stífum vöktum þar
sem unnið er átta tíma og næstu átta tímar
teknir í hvíld áður en mætt er á vaktina aftur.
„Svo taka þeir frí inn á milli. Þetta er svona
vertíð eins og það er kallað.“ Og það er sann-
kallað verbúðarlíf því flestir gista þeir í Hval-
stöðinni.
En það eru fleiri en flensarar og hval-
veiðimenn sem eru þar á stjákli því japanskir
fulltrúar kaupenda voru viðstaddir skurðinn
í morgun, tilbúnir með eigin hnífa til að
smakka á vörunni og meta í hvaða kjötflokk
ólíkir vöðvar skepnunnar fara. „Þeir voru
alltaf með okkur í gamla daga og verða
sennilega út sumarið,“ segir Kristján.
Langreyðarkýrnar tvær sem mættu örlög-
um sínum í nótt voru 61 og 68 fet og veiddust
nokkuð nærri landi, „á gamalli hefðbundinni
slóð“ að Kristjáns sögn. „Þeir sáu eitthvað
áttatíu stykki í viðbót þannig að það er hvalur
þarna á svæðinu.“ ben@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Á stími Hvalur 9 siglir í átt að landi með langreyðarnar tvær í eftirdragi. Önnur var 61 fet en hin 68 sem er svipað og „í gamla daga“ að Kristjáns sögn en þá var meðallengdin um 62 fet.
Langreyður veidd og verkuð á ný
Tvær langreyðarkýr flensaðar á skurðarplaninu í Hvalfirði í gærmorgun Síðast voru sjö skepn-
ur veiddar árið 2006 Fulltrúar kaupenda fylgdust með verkuninni „eins og í gamla daga“
Morgunblaðið/Kristinn
Stórhveli Gamalreyndir flensarar skera upp og hluta niður risastóra skepnuna sem liggur í valnum á skurðarplaninu í Hvalfirði.
Amboðin munduð Menn huga að biti hnífa áður en gengið er til verks. Kennsla Þeir eldri kenndu hinum yngri handtökin við verkunina. Kaupendur Fulltrúar frá Japan fylgdust með.