Morgunblaðið - 20.06.2009, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 20.06.2009, Blaðsíða 29
29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2009 Eyjólfur Óskarsson Hátíðahöld Mary krónprinsessa Danmerkur lenti prúðbúin í Nuuk á Grænlandi í gær til að fagna þjóðhátíðardegi Grænlendinga en hann verður haldinn hátíðlegur á morgun, 21. júní. ATBURÐIR undanfarna mán- uði og misseri hafa vakið til um- hugsunar um hvað sameini þessa sundruðu þjóð, hver séu gildi samfélagsins og styrkur íslenskr- ar menningar og hvort fámenn þjóð, sem eitt sinn var talin búa á mörkum hins byggilega heims, geti staðið auðvaldi heimsins snúning á tímum hnattvæðingar, sem svo er kölluð. Einnig hafa ýmsir velt því fyrir sér hvort starfshættir stjórnmálaflokka og fjölmiðla á Íslandi séu með svipuðum hætti og hjá frændþjóðum okkar, en í ljós hefur komið að siðferði í stjórnmálum og traustir fjölmiðlar skipta sköpum fyrir virkt lýðræði og farsælt stjórnarfar. Land, þjóð og tunga Þrennt sameinar þjóð og má kalla sameign hennar. Í fyrsta lagi landið sem hún byggir. Í öðru lagi sagan og í þriðja lagi tungan sem þjóð- in hefur alið af sér. Engin þjóðernishyggja býr að baki þessum orðum heldur eiga orðin við all- ar þjóðir sem ala með sér vitund um að vera þjóð. Lengi gat Ísland aðeins brauðfætt um 50 þúsund manns vegna harðinda, lítillar verk- menningar og lélegs stjórnarfars. Á 18. öld, erf- iðustu öld í sögu þjóðarinnar, fækkaði fólki stöðugt. Í upphafi aldar voru landsmenn um 50 þúsund, álíka margir og þeir höfðu verið um 1200. Í Stóru bólu 1706-1709 fækkaði fólki um þriðjung og voru Íslendingar þá aðeins 36 þús- und og hafa aldrei orðið færri í sögu þjóð- arinnar og urðu ekki 50 þúsund aftur fyrr en 1825. Mannfjöldi í Danmörku og Noregi hafði þá þrefaldaðist frá því um 1200. Ísland var þá á mörkum hins byggilega heims. Fólksfjölgun er nú meiri á Íslandi en í flest- um löndum Evrópu. Veðurfar hefur batnað, verkkunnátta er sambærileg við nágrannalönd- in og landgæði mikil: ósnortin víðerni, auðug fiskimið, orka í fallvötnum og jarðvarma, hreint vatn og hreint loft og stórbrotin og fjölbreytileg náttúra. Ræktun og uppgræðsla hefur tekið stakkaskiptum, skógrækt er orðin atvinnugrein og farið að rækta korn og grænmetisrækt á sér framtíð ef rétt er á haldið. Allt er þetta styrkur fyrir þjóðina. Þúsund ár á einni öld Styrkur þjóðarinnar felst í fleiru. Á einni öld hefur samfélagið breyst úr einangruðu bænda- samfélagi í margskipt þjóðfélag í stöðugum tengslum við umheiminn. Menntun er sambæri- leg menntun nágrannaþjóðanna. Rannsóknir og vísindi hafa stóreflst. Um 1950 höfðu fáir tugir Íslendinga lokið doktorsprófi. Nú skipta íslenskir doktorar þúsundum. Heilsugæsla er ekki síðri en í nágrannalöndunum og barna- dauði, sem í lok 19. aldar var mestur á Íslandi allra Evrópu- landa, er nú minnstur í heiminum. Þetta sýnir framfarirnar í hnot- skurn. Fyrir rúmri öld var landið dönsk hjálenda. Borgmenning hafði ekki fest rætur og gamalt bændasamfélag var einrátt. Níu af hverjum tíu bjuggu í sveit og þjóðhátíðarárið 1874, þegar Ís- lendingar fengu danska stjórn- arskrá, bjuggu rúmlega tvö þús- und manns í Reykjavík af þeim 70 þúsund sem í landinu bjuggu. Nú er Ísland sjálfstætt og fullvalda ríki með trausta innviði, gott heilbrigðiskerfi, þjóðin er vel menntuð og auðlindir landsins miklar. Má því segja að Ísland hafi ferðast þúsund ár á einni öld. Tunga, menning og listir Íslensk tunga er fornlegasta tungumál Evr- ópu – sem er mikill styrkur – því að hvert mannsbarn getur lesið bókmenntir þjóðarinnar í þúsund ár. Tungan hefur aldrei staðið sterkar sem lifandi þjóðtunga en nú. Nýyrðasmíð er öfl- ug og fleiri nota íslensku í daglegu starfi og tómstundum en nokkru sinni. Ritað er um flest þekkingarsvið á íslensku. Leikritun, ljóðagerð og skáldsagnaritun standa með blóma og ný- mæli hafa komið fram í auglýsingagerð og orða- notkun. Menning og listir blómstra, bæði leik- list, tónlist og myndlist – og staðarmenning vex um allt land og íslensk hönnun vekur athygli. Stjórnvöld og almenningur eru einhuga um málrækt og er síðasta dæmið íslensk málstefna, sem Alþingi samþykkti í mars, en markmið hennar er að tryggja að íslenska verði notuð á öllum sviðum íslensks samfélags. Þetta er styrkur og dýrmæt sameign þjóðar. Hrunið og hið alþjóðlega auðvald Í lok 19. aldar var Ísland eitt fátækasta land í Evrópu. Hagtölur árið 2002 sýna hins vegar að landsframleiðsla á mann er þá 10% hærri en meðaltal í löndum Evrópusambandsins. En svo kom hrunið. Í ljós kom að velsældin byggðist á svikagróða og blekkingum, sýndarmennsku og gróðafíkn – en fégirndin upphaf alls ills. Reynt er nú að grafast fyrir um orsakir hrunsins og stjórnvöld leita leiða til bjargar þjóð sem er skuldum vafin eins og skrattinn skömmunum. Reynt er að finna þá sem valdir eru að ósköpunum og gerðust brotlegir við lög – og er skömm þeirra mikil. Már Guðmundsson hagfræðingur segir í tímaritsgrein að erfitt sé að skilja flókna atburði meðan þeir gerast. Eigi það við um fjármálakreppuna sem tröllriðið hafi heimsbyggðinni, ekki síst vegna þess að áhrifin séu enn ekki komin fram og viðbrögð stjórn- valda í mótun. Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur skrif- aði bók um hrunið og rekur þar atburði frá degi til dags. Það er ljót lesning og bregður upp skuggalegri mynd af fjármálum á Íslandi þar sem fákunnátta og óheilindi einkenna öll við- skipti. Eftir lesturinn má efast um að fámenn þjóð geti staðið alþjóðlegu auðvaldi snúning nema til komi meiri þekking, aukinn heiðarleiki, virkara lýðræði og traustari stjórn. Óvarlegt er að blanda sér í umræður um efnahagsmál. Þó virðist krafa auðvaldsins um 20% arð af fé hljóta að leiða til ófarnaðar. Ekk- ert fyrirtæki getur skilað slíkum arði nema hagur starfsmanna sé fyrir borð borinn eins og í löndum þriðja heimsins þar sem enn er stund- að arðrán, angi af gömlu nýlendustefnunni. Þetta arðrán er undirrót arðsemiskröfu sem gengur út yfir allan þjófabálk og er birting- armynd fégræðgi – sem er meginorsök hruns- ins. Umræðuhefð og stjórnmálasiðferði Í upphafi var að því vikið hvort starfshættir stjórnmálaflokka og fjölmiðla væru með sama hætti og í nágrannalöndunum, en rannsóknir hafa leitt í ljós að siðferði í stjórnmálum og staða og starfshættir fjölmiðla skipta sköpum fyrir málefnalega, lýðræðislega umræðu og frjálsa skoðanamyndun – og farsælt stjórn- arfar. Samanburður á starfsháttum stjórnmála- manna og umræðuhefð í Danmörku og Noregi annars vegar og á Íslandi hins vegar leiðir í ljós mikinn mun. Umræða er þar málefnalegri og ekki eins gildishlaðin og hér. Brigslmælgi og stóryrði, sem stjórnmálamenn hér temja sér, er þar óhugsandi. Með slíkri hegðan græfu stjórn- málamenn á Norðurlöndum sína eigin gröf. Hér á landi eru stóryrði hins vegar talin merki um djörfung og festu og talin hafa skemmtanagildi. Þessi umræðuhefð setur svip á störf Alþingis sem iðulega minnir meir á sjónleikahús en lög- gjafarsamkomu. Umræðuhefðin hefur aukið tortryggni milli stjórnmálamanna og stjórn- málaflokka og komið í veg fyrir eðlilegt sam- starf – jafnvel á örlagastundu. Má fullyrða að ein ástæðan fyrir erfiðleikum íslensku þjóð- arinnar nú eigi rætur að rekja til sundurlyndis íslenskra stjórnmálamanna og lélegs stjórn- málasiðferðis og frumstæðrar umræðuhefðar. Fjölmiðlar Íslenskir fjölmiðlar hafa oft verið þess van- megnugir að brjóta til mergjar og skýra á yf- irvegaðan hátt atburði líðandi stundar. Veldur margt, s.s. fámenni og eignarhald á fjölmiðlum. Sá fréttamiðill, sem ber af og nýtur mests trausts, er fréttastofa útvarps og er vonandi að breytt skipulag og hagræðing breyti því ekki. Nokkrir fréttamenn og blaðamenn eru hins vegar því marki brenndir að vilja frekar vekja athygli – selja fréttir – en upplýsa mál á hlut- lægan hátt. Þá hafa einstaka umræðuþættir í sjónvarpi einkennst af yfirheyrsluaðferðinni þar sem stjórnandi reynir að koma höggi á viðmælanda, gera hann tortryggilegan og fella yfir honum dóm. Í stað dómstóls götunnar – kjaftagangsins – er því kominn dómstóll fjölmiðla. Vegna þessa hafa iðulega ekki fengist svör við spurningum og almenningur situr eftir ringlaður með óbragð í munninum. Í Danmörku og Noregi leita þáttastjórnendur svara á hlutlægan hátt og fella ekki dóma – heldur er hlustendum látið eftir að draga ályktanir. Frumstæð umræðuhefð Ástæður frumstæðrar umræðuhefðar hér eru margar. Borgmenning hefur ekki fest ræt- ur með þeirri tillitssemi og persónulegu fjar- lægð sem slíka menningu einkennir. Fámennið veldur því einnig að úrval fréttamanna er minna, allir þykjast þekkja alla og návígið nálg- ast iðulega dónaskap. Stéttskipting og agi hafa einnig verið með öðrum hætti en í flestum Evr- ópulöndum og enn eimir eftir af agaleysi bændasamfélagsins. Yfirveguð umræða er grundvallarþáttur í lýðræðislegri endurreisn og aukinni samfélagsmenningu á Íslandi. Þar gegna fjölmiðlar mikilsverðu hlutverki – ásamt skólunum. Samfélagssáttmáli Íslensk þjóð hefur áður gengið gegnum erf- iðleika og sigrast á þeim. Það mun hún einnig gera nú með dugnaði og samstöðu og á grund- velli dýrmætra sameigna sinna – lands, sögu og tungu – en einnig á grundvelli aukinnar mennt- unar og náttúruauðlinda. Samhliða endurreisn efnahagslífs verður að fara pólitísk endurreisn: aukin mannvirðing, jafnrétti á öllum sviðum, meira gagnsæi, betri upplýsingar, bætt siðferði í stjórnmálum, aukinn heiðarleiki í viðskiptum og fjármálum – og bætt umræðuhefð. Til að stuðla að þessu þarf að efna til sjálfstæðs stjórnlagaþings – stjórnlagaþings þjóðarinnar – sem kosið er til í almennum kosningum með landið sem eitt kjördæmi. Sjálfstætt stjórnlagaþing og ný stjórnarskrá geta stuðlað að því að sameina sundraða þjóð, lægja öldur og vekja von – og auka traust á Al- þingi, stjórnmálaflokkum og stjórnmálamönn- um. Ný stjórnarskrá gæti því orðið samfélags- sáttmáli í kjölfar mesta áfalls í sögu íslenska lýðveldisins. Eftir Tryggva Gíslason » Íslensk þjóð hefur áður gengið gegnum erfiðleika og sigrast á þeim. Það mun hún einnig gera nú með dugn- aði og samstöðu og á grund- velli dýrmætra sameigna sinna – lands, sögu og tungu … Tryggvi Gíslason Höfundur er fyrrverandi skólameistari Menntaskólans á Akureyri. Ísland og umheimurinn – Land, þjóð og tunga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.