Morgunblaðið - 20.06.2009, Qupperneq 29
29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2009
Eyjólfur Óskarsson
Hátíðahöld Mary krónprinsessa Danmerkur lenti prúðbúin í Nuuk á Grænlandi í gær til að fagna þjóðhátíðardegi Grænlendinga en hann verður haldinn hátíðlegur á morgun, 21. júní.
ATBURÐIR undanfarna mán-
uði og misseri hafa vakið til um-
hugsunar um hvað sameini þessa
sundruðu þjóð, hver séu gildi
samfélagsins og styrkur íslenskr-
ar menningar og hvort fámenn
þjóð, sem eitt sinn var talin búa á
mörkum hins byggilega heims,
geti staðið auðvaldi heimsins
snúning á tímum hnattvæðingar,
sem svo er kölluð. Einnig hafa
ýmsir velt því fyrir sér hvort
starfshættir stjórnmálaflokka og
fjölmiðla á Íslandi séu með svipuðum hætti og
hjá frændþjóðum okkar, en í ljós hefur komið
að siðferði í stjórnmálum og traustir fjölmiðlar
skipta sköpum fyrir virkt lýðræði og farsælt
stjórnarfar.
Land, þjóð og tunga
Þrennt sameinar þjóð og má kalla sameign
hennar. Í fyrsta lagi landið sem hún byggir. Í
öðru lagi sagan og í þriðja lagi tungan sem þjóð-
in hefur alið af sér. Engin þjóðernishyggja býr
að baki þessum orðum heldur eiga orðin við all-
ar þjóðir sem ala með sér vitund um að vera
þjóð.
Lengi gat Ísland aðeins brauðfætt um 50
þúsund manns vegna harðinda, lítillar verk-
menningar og lélegs stjórnarfars. Á 18. öld, erf-
iðustu öld í sögu þjóðarinnar, fækkaði fólki
stöðugt. Í upphafi aldar voru landsmenn um 50
þúsund, álíka margir og þeir höfðu verið um
1200. Í Stóru bólu 1706-1709 fækkaði fólki um
þriðjung og voru Íslendingar þá aðeins 36 þús-
und og hafa aldrei orðið færri í sögu þjóð-
arinnar og urðu ekki 50 þúsund aftur fyrr en
1825. Mannfjöldi í Danmörku og Noregi hafði
þá þrefaldaðist frá því um 1200. Ísland var þá á
mörkum hins byggilega heims.
Fólksfjölgun er nú meiri á Íslandi en í flest-
um löndum Evrópu. Veðurfar hefur batnað,
verkkunnátta er sambærileg við nágrannalönd-
in og landgæði mikil: ósnortin víðerni, auðug
fiskimið, orka í fallvötnum og jarðvarma, hreint
vatn og hreint loft og stórbrotin og fjölbreytileg
náttúra. Ræktun og uppgræðsla hefur tekið
stakkaskiptum, skógrækt er orðin atvinnugrein
og farið að rækta korn og grænmetisrækt á sér
framtíð ef rétt er á haldið. Allt er þetta styrkur
fyrir þjóðina.
Þúsund ár á einni öld
Styrkur þjóðarinnar felst í fleiru. Á einni öld
hefur samfélagið breyst úr einangruðu bænda-
samfélagi í margskipt þjóðfélag í stöðugum
tengslum við umheiminn. Menntun er sambæri-
leg menntun nágrannaþjóðanna. Rannsóknir
og vísindi hafa stóreflst. Um 1950 höfðu fáir
tugir Íslendinga lokið doktorsprófi. Nú skipta
íslenskir doktorar þúsundum. Heilsugæsla er
ekki síðri en í nágrannalöndunum og barna-
dauði, sem í lok 19. aldar var
mestur á Íslandi allra Evrópu-
landa, er nú minnstur í heiminum.
Þetta sýnir framfarirnar í hnot-
skurn.
Fyrir rúmri öld var landið
dönsk hjálenda. Borgmenning
hafði ekki fest rætur og gamalt
bændasamfélag var einrátt. Níu
af hverjum tíu bjuggu í sveit og
þjóðhátíðarárið 1874, þegar Ís-
lendingar fengu danska stjórn-
arskrá, bjuggu rúmlega tvö þús-
und manns í Reykjavík af þeim 70
þúsund sem í landinu bjuggu. Nú
er Ísland sjálfstætt og fullvalda ríki með
trausta innviði, gott heilbrigðiskerfi, þjóðin er
vel menntuð og auðlindir landsins miklar. Má
því segja að Ísland hafi ferðast þúsund ár á
einni öld.
Tunga, menning og listir
Íslensk tunga er fornlegasta tungumál Evr-
ópu – sem er mikill styrkur – því að hvert
mannsbarn getur lesið bókmenntir þjóðarinnar
í þúsund ár. Tungan hefur aldrei staðið sterkar
sem lifandi þjóðtunga en nú. Nýyrðasmíð er öfl-
ug og fleiri nota íslensku í daglegu starfi og
tómstundum en nokkru sinni. Ritað er um flest
þekkingarsvið á íslensku. Leikritun, ljóðagerð
og skáldsagnaritun standa með blóma og ný-
mæli hafa komið fram í auglýsingagerð og orða-
notkun. Menning og listir blómstra, bæði leik-
list, tónlist og myndlist – og staðarmenning vex
um allt land og íslensk hönnun vekur athygli.
Stjórnvöld og almenningur eru einhuga um
málrækt og er síðasta dæmið íslensk málstefna,
sem Alþingi samþykkti í mars, en markmið
hennar er að tryggja að íslenska verði notuð á
öllum sviðum íslensks samfélags. Þetta er
styrkur og dýrmæt sameign þjóðar.
Hrunið og hið alþjóðlega auðvald
Í lok 19. aldar var Ísland eitt fátækasta land í
Evrópu. Hagtölur árið 2002 sýna hins vegar að
landsframleiðsla á mann er þá 10% hærri en
meðaltal í löndum Evrópusambandsins. En svo
kom hrunið. Í ljós kom að velsældin byggðist á
svikagróða og blekkingum, sýndarmennsku og
gróðafíkn – en fégirndin upphaf alls ills.
Reynt er nú að grafast fyrir um orsakir
hrunsins og stjórnvöld leita leiða til bjargar
þjóð sem er skuldum vafin eins og skrattinn
skömmunum. Reynt er að finna þá sem valdir
eru að ósköpunum og gerðust brotlegir við lög –
og er skömm þeirra mikil. Már Guðmundsson
hagfræðingur segir í tímaritsgrein að erfitt sé
að skilja flókna atburði meðan þeir gerast. Eigi
það við um fjármálakreppuna sem tröllriðið hafi
heimsbyggðinni, ekki síst vegna þess að áhrifin
séu enn ekki komin fram og viðbrögð stjórn-
valda í mótun.
Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur skrif-
aði bók um hrunið og rekur þar atburði frá degi
til dags. Það er ljót lesning og bregður upp
skuggalegri mynd af fjármálum á Íslandi þar
sem fákunnátta og óheilindi einkenna öll við-
skipti. Eftir lesturinn má efast um að fámenn
þjóð geti staðið alþjóðlegu auðvaldi snúning
nema til komi meiri þekking, aukinn heiðarleiki,
virkara lýðræði og traustari stjórn.
Óvarlegt er að blanda sér í umræður um
efnahagsmál. Þó virðist krafa auðvaldsins um
20% arð af fé hljóta að leiða til ófarnaðar. Ekk-
ert fyrirtæki getur skilað slíkum arði nema
hagur starfsmanna sé fyrir borð borinn eins og
í löndum þriðja heimsins þar sem enn er stund-
að arðrán, angi af gömlu nýlendustefnunni.
Þetta arðrán er undirrót arðsemiskröfu sem
gengur út yfir allan þjófabálk og er birting-
armynd fégræðgi – sem er meginorsök hruns-
ins.
Umræðuhefð og stjórnmálasiðferði
Í upphafi var að því vikið hvort starfshættir
stjórnmálaflokka og fjölmiðla væru með sama
hætti og í nágrannalöndunum, en rannsóknir
hafa leitt í ljós að siðferði í stjórnmálum og
staða og starfshættir fjölmiðla skipta sköpum
fyrir málefnalega, lýðræðislega umræðu og
frjálsa skoðanamyndun – og farsælt stjórn-
arfar.
Samanburður á starfsháttum stjórnmála-
manna og umræðuhefð í Danmörku og Noregi
annars vegar og á Íslandi hins vegar leiðir í ljós
mikinn mun. Umræða er þar málefnalegri og
ekki eins gildishlaðin og hér. Brigslmælgi og
stóryrði, sem stjórnmálamenn hér temja sér, er
þar óhugsandi. Með slíkri hegðan græfu stjórn-
málamenn á Norðurlöndum sína eigin gröf. Hér
á landi eru stóryrði hins vegar talin merki um
djörfung og festu og talin hafa skemmtanagildi.
Þessi umræðuhefð setur svip á störf Alþingis
sem iðulega minnir meir á sjónleikahús en lög-
gjafarsamkomu. Umræðuhefðin hefur aukið
tortryggni milli stjórnmálamanna og stjórn-
málaflokka og komið í veg fyrir eðlilegt sam-
starf – jafnvel á örlagastundu. Má fullyrða að
ein ástæðan fyrir erfiðleikum íslensku þjóð-
arinnar nú eigi rætur að rekja til sundurlyndis
íslenskra stjórnmálamanna og lélegs stjórn-
málasiðferðis og frumstæðrar umræðuhefðar.
Fjölmiðlar
Íslenskir fjölmiðlar hafa oft verið þess van-
megnugir að brjóta til mergjar og skýra á yf-
irvegaðan hátt atburði líðandi stundar. Veldur
margt, s.s. fámenni og eignarhald á fjölmiðlum.
Sá fréttamiðill, sem ber af og nýtur mests
trausts, er fréttastofa útvarps og er vonandi að
breytt skipulag og hagræðing breyti því ekki.
Nokkrir fréttamenn og blaðamenn eru hins
vegar því marki brenndir að vilja frekar vekja
athygli – selja fréttir – en upplýsa mál á hlut-
lægan hátt.
Þá hafa einstaka umræðuþættir í sjónvarpi
einkennst af yfirheyrsluaðferðinni þar sem
stjórnandi reynir að koma höggi á viðmælanda,
gera hann tortryggilegan og fella yfir honum
dóm. Í stað dómstóls götunnar – kjaftagangsins
– er því kominn dómstóll fjölmiðla. Vegna þessa
hafa iðulega ekki fengist svör við spurningum
og almenningur situr eftir ringlaður með
óbragð í munninum. Í Danmörku og Noregi
leita þáttastjórnendur svara á hlutlægan hátt
og fella ekki dóma – heldur er hlustendum látið
eftir að draga ályktanir.
Frumstæð umræðuhefð
Ástæður frumstæðrar umræðuhefðar hér
eru margar. Borgmenning hefur ekki fest ræt-
ur með þeirri tillitssemi og persónulegu fjar-
lægð sem slíka menningu einkennir. Fámennið
veldur því einnig að úrval fréttamanna er
minna, allir þykjast þekkja alla og návígið nálg-
ast iðulega dónaskap. Stéttskipting og agi hafa
einnig verið með öðrum hætti en í flestum Evr-
ópulöndum og enn eimir eftir af agaleysi
bændasamfélagsins. Yfirveguð umræða er
grundvallarþáttur í lýðræðislegri endurreisn og
aukinni samfélagsmenningu á Íslandi. Þar
gegna fjölmiðlar mikilsverðu hlutverki – ásamt
skólunum.
Samfélagssáttmáli
Íslensk þjóð hefur áður gengið gegnum erf-
iðleika og sigrast á þeim. Það mun hún einnig
gera nú með dugnaði og samstöðu og á grund-
velli dýrmætra sameigna sinna – lands, sögu og
tungu – en einnig á grundvelli aukinnar mennt-
unar og náttúruauðlinda. Samhliða endurreisn
efnahagslífs verður að fara pólitísk endurreisn:
aukin mannvirðing, jafnrétti á öllum sviðum,
meira gagnsæi, betri upplýsingar, bætt siðferði
í stjórnmálum, aukinn heiðarleiki í viðskiptum
og fjármálum – og bætt umræðuhefð. Til að
stuðla að þessu þarf að efna til sjálfstæðs
stjórnlagaþings – stjórnlagaþings þjóðarinnar –
sem kosið er til í almennum kosningum með
landið sem eitt kjördæmi.
Sjálfstætt stjórnlagaþing og ný stjórnarskrá
geta stuðlað að því að sameina sundraða þjóð,
lægja öldur og vekja von – og auka traust á Al-
þingi, stjórnmálaflokkum og stjórnmálamönn-
um. Ný stjórnarskrá gæti því orðið samfélags-
sáttmáli í kjölfar mesta áfalls í sögu íslenska
lýðveldisins.
Eftir Tryggva Gíslason » Íslensk þjóð hefur áður
gengið gegnum erfiðleika
og sigrast á þeim. Það mun
hún einnig gera nú með dugn-
aði og samstöðu og á grund-
velli dýrmætra sameigna sinna
– lands, sögu og tungu …
Tryggvi Gíslason
Höfundur er fyrrverandi skólameistari
Menntaskólans á Akureyri.
Ísland og umheimurinn – Land, þjóð og tunga