Morgunblaðið - 20.06.2009, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.06.2009, Blaðsíða 16
16 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2009 SJÁVARÚTVEGSSÝNINGIN World Seafood Moscow 2009, sem er hluti af World Food Moscow, verður haldin dagana 15.-18. sept- ember nk. á 25.000 fermetra svæði í Moscow Expocenter. Útflutnings- ráði stendur til boða 9 fermetra bás á sýningunni og vill bjóða áhuga- sömum fyrirtækjum að nýta sér þetta svæði til kynningar á vöru sinni og þjónustu. World Seafood Moscow er leið- andi sýning í kynningum á sjávaraf- urðum í Rússlandi og fer hún stækkandi með hverju árinu. Morgunblaðið/ÞÖK Sjávarútvegssýning Á héraðsfundi Kjalarnespró- fastdæmis hinn 11. mars sl. var samþykkt verk- efnið Opnar kirkjur fyrir sumarið 2009. Hugmyndin er að prestar og sókn- arnefndir skipu- leggi leiðsögn um kirkjur í prófastsdæminu í sum- ar þar sem leiðsögumaður er til staðar sem getur kynnt gestum og gangandi kirkju, kirkjubúnað og kirkjustað frá 15. júní-15. ágúst. Kynningarbæklingur um verk- efnið hefur verið útbúinn og liggur hann frammi í öllum kirkjum í pró- fastsdæminu og á helstu ferðaþjón- ustustöðum. Opnar kirkjur sumarið 2009 Falleg Lágafells- kirkja í Mosfellsbæ. ORKUVEITAN, ásamt Forvarna- húsinu, Landspítalanum og fleiri aðilum hrinti í fyrra af stað for- varnaverkefninu Stillum hitann til þess að efla fræðslu til almennings um þá hættu sem stafar af heitu vatni. Í tengslum við verkefnið opn- aði Orkuveitan heimasíðuna still- umhitann.is. og afhenti Forvarna- húsinu heimasíðuna til afnota. Til þess að efla vitund almenn- ings hefur Tengi ehf. látið For- varnahús fá öryggisbúnað sem temprar hitann. Búnaðurinn hefur verið settur upp í upplifunarsetri Forvarnahússins, Kringlunni 1-3 þar sem hann verður notaður við fræðslu um það hvernig koma skuli í veg fyrir brunaslys af völdum heita vatnsins. Forvarnaverkefni um heitavatnsslys RÚMLEGA 58 milljónum kr. hefur verið úthlutað úr Menntaáætlun Evrópusambandsins til Leonardó mannaskiptaverkefna til 19 skóla, fyrirtækja og stofnana fyrir sam- tals 150 einstaklinga. Hæstu styrk- ina hlutu Tækniskólinn – skóli at- vinnulífs, Borgarholtsskóli og Myndlistaskólinn í Reykjavík. Í fréttatilkynningu segir að vegna mikillar atvinnuþátttöku ungmenna í góðærinu undanfarin ár hafi dregið nokkuð úr þátttöku í mannaskiptaverkefnum en greini- leg breyting hafi orðið með breytt- um aðstæðum á vinnumarkaði. Að þessu sinni hafi verið lögð áhersla á tækifæri fyrir ungt fólk en 70% fjármagns var úthlutað til verkefna fyrir ungmenni. Úthlutuðu rúmum 58 milljónum kr. STUTT Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is MIKIÐ var spólað á íþróttavallarsvæðinu á Ak- ureyri í gærkvöldi og fjölmargir áhorfendur skemmtu sér konunglega; gúmmílykt fyllti vitin og líklega hefur enginn farið snemma að sofa í ná- grenninu! Það sem þarna fór fram er á útlensku kallað burn out, e.t.v. voru einhverjir úrvinda eftir kvöldið og altjent einhverjir hjólbarðar útbrunnir. Margt hefur verið um aðkomumenn í höfuðstað Norðurlands síðustu daga, af ýmsum ástæðum, og verður áfram um helgina því margt er í boði. Að vanda dreif mikinn fjölda að vegna Skólahátíðar Menntaskólans á þjóðhátíðardaginn, m.a. voru gamlir MA-stúdentar áberandi en júbílantar fjöl- menna jafnan á hátíð afmælisárganga 16. júní. Árlegir bíladagar Bílaklúbbs Akureyrar hófust 17. júní með bílasýningunni sem haldin hefur ver- ið þann dag árum saman, samkoman á Akureyr- arvelli í gærkvöldi var einn liður í bílahátíðinni, í dag verður götuspyrna á Tryggvabraut og rall- krosskeppni á morgun. Þeim sem kjósa sér mýkri hliðar tilverunnar er rétt að benda á að Listasumar var sett í gær með opnun sýningar á verkum norsk íslenska mál- arans Kaare Espolin Johnson í Ketilhúsinu. Í Héraðsskjalasafninu hófst sýning um íslensk ætt- artengsl Espolin og í Deiglunni sýning á verkum japönsku listakonunnar Miyuki Tsushima. Hver viðburðurinn rekur síðan annan þar til þessari ak- ureyrsku útgáfu af sumri lýkur með Akureyr- arvöku á afmælisdegi bæjarins, 29. ágúst. Flughelgi er líka orðin árleg í bænum og er ein- mitt í dag og á morgun. Þar verður m.a. sýnt list- flug, fallhlífarstökk, þyrluflug og svifflug og boðið verður upp á útsýnisflug. Á Hamarkotstúni verður Brekkugleði í dag frá kl. 13 til 17 þar sem til sýnis verða gamlar upp- gerðar dráttarvélar og á staðnum verða sölubásar og markaðsstemning. Síðast, en ekki síst er þess að geta að í nyrsta hverfi Akureyrar, Grímsey, verður um helgina Sólstöðuhátíð þar sem m.a. verður boðið upp á siglingu umhverfis eyjuna og gönguferð með leiðsögn. Kraftmikið Listasumar af stað Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Tætum og tryllum Gríðarlegur fjöldi fólks fylgdist með sýningunni á Akureyrarvelli og hafði gaman af. Mest var klappað ef barði losnaði frá felgu. ÁBÚENDUR í Efri-Ey í Meðallandi í Vestur-Skaftafellssýslu tóku eftir því að í hlöðunni hjá þeim verpti lit- merkt maríuerla. Þau höfðu sam- band við Hrafn Svavarsson, fugla- áhugamann með meiru, og sögðu honum frá uppgötvun sinni. Hrafni segist svo frá: „Eftir smá eftirgrennslan komst ég að því að maður að nafni Dennis Elphick hafði merkt hana. Elphick stundar fuglarannsóknir við Slapton Ley á Suður-Englandi.“ Við Slapton Ley stoppa þúsundir maríuerlna og bretaerlna á fartíma en svæðið er „eins og hannað fyrir þær“. Það má skoða nánar á Google Earth: Slapton Ley, TQ7 UK. Hrafn heldur áfram: „Elphick sagði mér að verkefnið hefði hafist árið 2002 þegar menn fóru að velta því fyrir sér hvaðan allur fjöldinn af maríuerlum kæmi. Áður en rann- sóknir hófust höfðu árin 1961-65 náðst þrjár maríuerlur merktar á Íslandi svo uppi voru ákveðnar grunsemdir um hvaðan þær kæmu.“ Síðan hafa verið merkt hundruð maríuerlna á ári og virðist sem þær íslensku fari í gegn að mestu leyti í september, en svo taki við skoskar og enskar maríuerlur, og bretaerl- ur í október og nóvember. „Dennis segist vita um eina sjö fugla merkta á Íslandi sem fundist hafa í suður- hluta Senegal, Norður-Máritaníu og Norður-Gambíu svo það er engin smáleið sem þessir litlu fuglar ferðast,“ segir Hrafn. Fuglinn í Efri-Ey er kvenfugl og var merktur sem ungfugl sl. haust, nánar til tekið 29. ágúst, og hefur að öllum líkindum ferðast frá Slap- ton Ley suður á bóginn og til Vest- ur-Afríku. „Hún hefur svo ferðast alla leið aftur til Íslands og er búin að verpa sex eggjum. Hún heldur svo væntanlega upp á eins árs af- mælið sitt í þessum mánuði um leið og hún vinnur að því í kringum hlöðuna að ala upp nýklakta ung- ana,“ segir Hrafn. Fuglaáhugafólk er beðið að láta vita ef sést til merktra maríuerlna. Best er að hafa samband við Nátt- úrufræðistofnun Íslands í síma 5900500 eða á netfangið aevar@ni.is. sia@mbl.is Merktar maríuerlur ferðast vítt og breitt um heiminn Sér fyrir sex ungum ársgömul Ljósmynd/Hrafn Svavarsson Víðförul maríuerla Sést hefur til fjögurra litmerktra maríuerlna í vor, einnar á Breiðdalsvík, einnar á Húsavík, einnar í nágrenni Hafnar og svo þessarar litlu í Meðallandi. Fólk er beðið um að láta vita ef sést til slíkra. ÖKULEIKNI strætisvagnabílstjóra á Norðurlöndum fór fram nýlega. Vagnstjórar frá Íslandi, Svíþjóð, Finn- landi, Danmörku og Noregi kepptu í ýmsum aksturs- þrautum og var árangur metinn út frá besta tíma með sem fæstum refsistigum. Í efstu þremur sætunum voru Timo Kettunen frá Finnlandi, Þórarinn Söebech frá Íslandi og John Ek- holm frá Svíþjóð. Fimm af tíu efstu keppendunum voru frá Íslandi og sigraði hópurinn nokkuð örugglega sem lið, að því er segir í fréttatilkynningu. Öruggur íslenskur sigur Seljum og merkjum fatnað, húfur og töskur. Vel merkt vara er góð auglýsing Bróderingar og silkiprentun www.batik.is • sími: 557 2200

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.