Morgunblaðið - 20.06.2009, Side 18
Í HNOTSKURN
»Evrópumarkaður meðkrækling er um 700-800
þúsund tonn á ári. Íslensk
kræklingaframleiðsla er því
dropi í hafið.
»Heimsmarkaðurinn er 1,6til 1,7 milljónir tonna.
»Norðurskel vinnur meðKanadamönnum sem hafa
áratugareynslu af ræktuninni.
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur
gag@mbl.is
KRÆKLINGAFRAMLEIÐAND-
INN Norðurskel í Hrísey getur ekki
pakkað kræklingi vegna lömunareitr-
unarinnar PSP, sem mældist rétt
undir viðmiðunarmörkum 9. júní. Á
sama tíma greindust þörungar af teg-
undinni Alexandrium en þeir valda
PSP eitrun yfir hættumörkum. Mat-
vælastofnun greinir frá eitruninni á
heimasíðu sinni. Hún varar við tínslu í
Eyjafirði.
Víðir Björnsson, framkvæmda-
stjóri Norðurskeljar sem er annað
tveggja framleiðslufyrirtækja í Eyja-
firði, segir bagalegt að eitrunin grein-
ist nú mánuði fyrr en í fyrra, því fyr-
irtækið hafi nýhafið sölu til Belgíu.
Hann býst við því að tínslustoppið
vari í viku til tíu daga í viðbót en það
hafi nú varað í viku: „Þessi þörungur
gengur hratt yfir,“ segir Víðir. Kræk-
lingurinn hreinsi sig. „Vegna þör-
ungsins væri æskilegra að rækta
krækling víðar um landið.“ Norður-
skel sé í samstarfi við kræklinga-
bónda í Breiðafirði svo þeir geti af-
hent samkvæmt samningum.
Víðir segir stoppið ekki koma al-
varlega niður á fyrirtækinu því reikn-
að sé með slíkum tínslustoppum.
„Alltaf má búast við slíkum eitrunum
í r-lausum mánuðum; maí, júní, júlí og
ágúst,“ segir Víðir. „Við þetta búa all-
ir kræklingabændur og því erum við
með öfluga vöktun.“ Sjósýni séu tekin
vikulega og tvisvar nálgist eitruðu
þörungarnir mörkin. Nú sendi þeir
sýni til Írlands til að vita magn eitr-
unarinnar í kræklingnum.
PSP-eitrun getur valdið öndunar-
erfiðleikum, lömun og jafnvel dauða
spendýra.
Tínslustopp hjá kræklinga-
framleiðendum í Eyjafirði
PSP-eitrun hefur mælst yfir hættumörkum Stoppa í rúma viku í viðbót
18 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2009
KRAKKARNIR í ungliðahreyfingu Barnaheilla
mættu galvaskir á Lækjartorg í gær og kynntu
fólki átakið Horfin barnæska. Barnaheill leita nú
eftir Heillavinum til að styðja verkefni bæði inn-
anlands og erlendis. Að þessu sinni er í brenni-
depli alþjóðlegt menntaverkefni Barnaheilla,
Save the Children – Bætum framtíð barna, sem
hófst árið 2006, og miðar að því að bæta aðstæður
milljóna barna í 20 stríðshrjáðum löndum.
Ungmenni leita stuðnings fyrir ungmenni í tuttugu stríðshrjáðum löndum
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Markmiðið að bæta framtíð milljóna barna
Eftir Svanbjörgu H. Einarsdóttur
svanbjorg@mbl.is
FÆSTIR tengja MND við gleði og
kátínu enda er sjúkdómurinn „bráð-
drepandi hreyfitaugahrörnun“ eins
og Guðjón Sig-
urðsson formaður
MND-félagsins á
Íslandi orðar það.
Félagið stendur
fyrir fjölbreyttri
skemmtidagskrá
í miðbæ Hafnar-
fjarðar í tilefni af
alþjóðlega
MND-deginum á
sunnudaginn.
„Við reynum að vera jákvæð, lifa,
njóta og láta gott af okkur leiða á
meðan við getum. Þessi uppákoma
er okkar leið til að þakka fyrir stuðn-
inginn,“ segir Guðjón.
Boðið verður upp á hjólastólarall
og þjóðþekktir Íslendingar munu
spreyta sig við þrautir sem notendur
hjólastóla glíma við í umhverfinu.
„Ég get lofað þér því að það verður
óborganlega fyndið að fylgjast með
hjólastólaþrautakeppninni,“ segir
Guðjón og hlær. Þá verður sýning og
kennsla í hjólastóladansi. „Við höf-
um fengið til okkar margverðlaunað
danspar frá Möltu, Steven Fenech
og Mandy Ghio. Hann er bundinn
við hjólastól en hún er með stráheila
fætur. Danssýningin þeirra er stór-
kostleg.“ Dansparið ætlar einnig að
kenna gestum, gangandi og rúllandi
hjólastóladans. „Ég vonast til að fá
danskennara á námskeiðið í því, hér
kennir enginn dans í hjólastól sem
er afleitt. Dans er frelsun, bæði góð
skemmtun og þjálfun.“
Hvíldarinnlögn með konunni
Guðjón segir helsta baráttumál
MND-sjúklinga og flestra fatlaðra
að hverfa frá stofnanavæðingu og
byggja upp einstaklingsmiðaða
þjónustu. Það væri miklu ódýrara
fyrir heilbrigðiskerfið og myndi
veita fötluðum og aðstandendum
þeirra aukin lífsgæði.
„Við viljum búa heima en þurfum
aðstoð sem ekki er hægt að leggja á
aðstandendur. Í boði eru hvíldarinn-
lagnir til að hvíla örþreytta aðstand-
endur en mér þætti nú miklu
skemmtilegra að fara í „hvíldarinn-
lögn“ með konunni minni í sumar-
bústað eða til útlanda.“
Kennsla í hjólastóladansi
Lifum, njótum og látum gott af okkur leiða á meðan við getum Haldið upp á alþjóðlega MND-
daginn með fjölbreyttri skemmtun í miðbæ Hafnarfjarðar Hjólastólarall, tónleikar og hjólastóladans
Hjólastóladans Mandy Ghio og Steven Fenech sýna listir sínar.
Guðjón Sigurðsson
HÉRAÐSSKJALASAFNI Árnes-
inga á Selfossi voru á dögunum af-
hent handrit og skissur að meg-
inþorra verka Guðmundar
Daníelssonar rithöfundar. Um sína
tíð var Guðmundur mikilvirkur rit-
höfundur og sendi frá sér alls um
fimmtíu bækur; skáldsögur, smásög-
ur, ljóð, viðtalsbækur og ýmis önnur
verk.
„Kassarnir eru tæplega þrjátíu og
í sumum þeirra eru handrit að fleiri
en einni bók,“ segir Heimir Guð-
mundsson, tónlistarkennari á Sel-
fossi, sem afhenti safninu gjöfina.
Þorsteinn Tryggvi Másson skjala-
vörður veitti gjöfinni viðtöku.
„Með því að skoða handritin má
sjá hvernig Guðmundur vann sínar
bækur og hvernig hann þróaði sínar
hugmyndir áfram. Oft eru setningar
strikaðar út og skrifað milli lína, rétt
eins og rithöfundar vinna. Bók-
menntafræðingum framtíðarinnar
verður mikill fengur í því að geta
skoðað þessi handrit hjá okkur, sem
verða skráð og gerð almenningi að-
gengileg,“ segir Þorsteinn Tryggvi.
Guðmundur Daníelsson var fædd-
ur í Guttormshaga í Holtum í Rang-
árþingi árið 1910. Hann starfaði
lengi sem kennari og skólastjóri en
ritstörfin gengu þó eins og rauður
þráður í gegnum allt líf hans. Hann
var lengi blaðamaður og ritstjóri, en
þekktastur er hann sem rithöf-
undur. Fyrsta bókin, ljóðakverið Ég
heilsa þér, kom út árið 1933. Síðust
kom heimildaskáldagan Óskin er
hættuleg, 1989, árið áður en Guð-
mundur lést.
Handrit Guð-
mundar af-
hent á Selfossi
Kassar Þorsteinn Tryggvi Másson
skjalavörður, t.v., tekur við gjöfinni.
Héraðsskjalasafn Ár-
nesinga fær handritin
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skemmtidagskrá MND hefst á
Thorsplani í Hafnarfirði kl.14 á
morgun. Hjólastólarall verður í
3 flokkum og hljóta sigurveg-
arar glæsilega vinninga. Hægt
er að skrá sig til leiks á gudjon-
@mnd.is. Milli klukkan fimm og
sjö verður skemmtun í Hafn-
arfjarðarleikhúsinu. Sýndur
verður hjólastóladans en fyrr
um daginn og á laugardeginum
er námskeið í hjólastóladansi.
Þá verður frumsýnd írsk heim-
ildarmynd um Evald Krogh for-
mann Muskelsvindfonden í Dan-
mörku. Úrvalslið listamanna og
hljómsveita spilar á tónleikum á
Thorsplani klukkan 20. Þar
koma meðal annarra fram
Bogomil Font og Megas og
Senuþjófarnir.
Skemmtidagskráin