Morgunblaðið - 20.06.2009, Síða 34

Morgunblaðið - 20.06.2009, Síða 34
34 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2009 ✝ Jón Stefánssonfæddist á Hjalta- stöðum í Blönduhlíð í Skagafirði 28. apríl 1923. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks aðfara- nótt 15. júní sl. For- eldrar hans voru Stef- án Vagnsson, f. 25.5. 1889, d. 1.11. 1963, og Helga Jónsdóttir, f. 28.7. 1895, d. 10.7. 1988. Systkini Jóns, Ingibjörg Júlíana, f. 19.7. 1919, d. 14.7. 1972, Geirþrúður, f. 31.10. 1920, Ei- ríkur Haukur, f. 24.8. 1933, d. 17.7. 1992, og Sigríður Hrafnhildur, f. 11.6. 1937, d. 15.7. 1998. Hinn 23.12. 1951 kvæntist Jón Petru Gísladóttur, f. í Reykjavík 26.11. 1927. Foreldrar Petru voru Gísli Gíslason og Guðlaug Magn- úsdóttir. Börn Jóns og Petru eru: a) Guðlaug Ragna, f. 5.6. 1952, gift Einari Stefánssyni, f. 4.6. 1950, börn þeirra eru þrjú og barnabörn tólf. b) Stefán, f. í júlí 1953, d. sama dag. c) Ingimar, f. 11.5. 1957, sambýliskona Guðrún Kjartansdóttir, f. 12.7. 1967. Ingimar á þrjú börn og eitt barnabarn, Guðrún á þrjú börn og tvö barnabörn. Sonur Petru frá fyrra hjóna- bandi er Gísli Haf- steinn Einarsson, f. 17.11. 1947, kvæntur Kolbrúnu Sigurð- ardóttur, f. 16.12. 1945. Börn Kolbrúnar frá fyrra hjónabandi og fósturbörn Gísla eru sex. Jón fór ungur til Reykjavíkur þar sem hann stundaði leigubifreiða- akstur á Bifreiðastöðinni Hreyfli, um tíma annaðist hann vöruflutn- inga fyrir Kaupfélag Skagfirðinga, en síðast var hann verkstæð- isformaður á Bifreiðaverkstæði KS í 40 ár. Útför Jóns fer fram frá Sauð- árkrókskirkju í dag, 20. júní, kl. 13. Jarðsett verður á Flugumýri. Meira: mbl.is/minningar Elskulegi kæri afi minn er fallinn frá. Hann mun ekki koma þetta árið keyrandi suður með ömmu mína í heimsókn til okkar eins og hann var vanur. Á stund sem þessari eru margar dýrmætar minningar sem fara í gegnum hugann. Ég var fyrsta barnabarnið og var svo heppin að fá að njóta mikilla samvista við hann og ömmu Petru sem lifir maka sinn. Eðlilega eru flestar minningar norð- an úr Skagafirðinum þar sem paradís á jörðu hefur verið sköpuð á melum fyrir ofan Flugumýri. Þangað leitar hugurinn ef hann vantar birtu og þar fékk ég að eyða hverju sumrinu á eft- ir öðru í sumarbústaðnum þeirra. Síðari ár höfum við fjölskyldan einnig fengið að njóta þess og finnst börn- unum sveitin ævintýraheimur og verður mikill söknuður að ferðunum norður. Alltaf var hann afi minn að dútla eitthvað og ber bústaðurinn og um- hverfi hans þess merki að þarna var unnið af mikilli natni, smekkvísi og ekki skorti úrræðin eða útfærslurn- ar. Það ber t.d. útibarinn góði vitni um, þar hefur margur maðurinn sop- ið volgan mjöðinn við söng og gleði eins og Skagfirðingum er einum lag- ið. Já, söngur og gleði var einkenni sveitarinnar. Vinnusemin var mikil og heyrði ég það einhvers staðar að gárungarnir í kringum hann á bíla- verkstæðinu á Króknum kölluðu hann Jón sólarhring. Þegar hann varð áttræður fyrir sex árum sá mað- ur það glöggt hversu mikillar virð- ingar hann naut meðal fyrrverandi samstarfsmanna sinna og vina. Ræð- urnar og gjafirnar endalausar. Það var einstaklega gaman að hlusta á afa minn segja sögur úr sveitinni og voru þær margar skondnar og skemmtilegar enda á ferðinni mikill húmoristi. Hann var einnig ótrúlega vel að sér og sýndi mikinn áhuga á því sem við hjónin gerðum og gátu hann og Egill setið löngum stundum og rætt um næstu framkvæmdir hjá fyrirtækinu sem við störfum í. Hafði hann mikið gam- an af þegar Egill sýndi honum Reykjanesvirkjun þegar fram- kvæmdir voru að klárast. Um síðustu jól saumaði ég í mynd handa afa og ömmu með ljóði frá pabba hans, Stefáni Vagnssyni, sem vísaði í ástina sem einkenndi þau ömmu og afa. Þegar ég var að vinna myndina kom upp í huga mér hvað mér þótti sjálfsagt að hafa þau hjá mér og geta farið til þeirra en eitt er víst að sá sem fæðist deyr og nú er sá tími kominn að afi þarf að kveðja hversu sárt sem það er. Þó að okkar missir sé mikill er missir ömmu mest- ur en hún hefur misst lífsförunaut til 60 ára og mun ég veita henni alla mína ástúð til að hjálpa henni með þau verkefni sem framundan eru. Afi minn mun ætíð vera í hjarta mínu og minningin um hann með der- húfuna yfir yfirgreiddan skallann fær mig til að brosa og gerir mig að stoltri afastelpu af hans hlutverki hér á jörðu. Hann gerði heiminn betri og mig að ríkari manneskju. Hvíl í friði. Petra Lind Einarsdóttir og fjölskylda. Elsku afi minn, nú hefur þú kvatt þennan heim og ert komin á góðan stað þar sem þér á eftir að líða betur. Margar minningarnar koma upp í huga minn. Þú varst yndislegur mað- ur, jákvæður, duglegur, hjálpsamur og ávallt brosmildur. Það er ekki laust við að ég hugsi núna „bara ef ég hefði átt fleiri stundir með þér“ en fjarlægðin gerði það að verkum að þær stundir sem við áttum saman voru afar dýrmætar. Að koma til ykk- ar í bústaðinn á Flugumýri var alltaf yndislegt og ávallt vel tekið á móti manni og fylgja þeim heimsóknum margar minningar. Litli bústaðurinn sem þú bjóst til handa okkur, trén sem við fengum að planta, fjósagall- inn sem hékk inni í geymslu ef maður færi í fjósið á Flugumýri, göngustaf- urinn sem upphafsstafirnir mínir voru tálgaðir í þegar ég var 4 ára og silungurinn sem þú veiddir í Héraðs- vötnunum. Þetta eru allt saman minningar sem seint verður gleymt. Ég hlaut ein forréttindi sem eru mér mjög dýrmæt í dag, en það var að flytja til Sauðárkróks með mömmu og vera í eitt ár, átta ára að aldri. Þá kynntist ég þér betur, skólinn var alltaf eftir hádegi og þið amma sáuð um að ég færi pottþétt ekki svöng í skólann enda oftast á þessum tíma heitur matur í hádeginu. Þegar mað- ur varð eldri var svo gaman að kíkja inn í yndislega bústaðinn til ykkar ömmu, þegar maður var á ferðinni framhjá Varmahlíð, annaðhvort á leiðinni norður eða suður. Þið stjön- uðuð við mann og ávallt var til soð- brauð með silungi sem þú veiddir. Þetta var í svo miklu uppáhaldi, enda varstu ekki lengi að smella því á borð- ið. Þegar ég kom í sumarbústaðinn eftir að þú veiktist fannst mér skrítið að það var enginn afi sem kom út á pall til að taka á móti mér. Þú verður alltaf þar, í hjartastað og auðvitað á ég eftir að heilsa þér með bros á vör. Hvíldu í friði. Þín Brynja. Tíminn skilar okkur öllum til án- ingarstaðar. Enginn ræður hvenær hann hverfur úr þessum heimi yfir á lendur óendanleikans. Frændi minn, vinur og nágranni hefur kvatt þetta jarðlíf og er horfinn okkur. Þeir eru margir sem þakka Jóni Stefánssyni samfylgdina, ekki aðeins aðstandendur heldur líka ótal margir sem notið hafa huga hans og handa. Störf hans skilja eftir minningar blandaðar þakklæti og vinarhug. Við systkinin frá Flugumýri eigum Jóni Stefánssyni margt að þakka. Hann stóð þétt við bakið á okkur er faðir okkar lést á besta aldri frá stórum barnahópi. Þeir voru góðir vinir, kannski ekki alveg ólíkir, enda mikið skyldir. Þá voru Jón og Peta kona hans mér mikið góð er minn maður lést fyrir tíu árum, endalaust að bjóða mér í mat og kaffi. Jón var mikill gleðimaður, sagði skemmtilega frá. Hann komst stund- um á flug þegar hann sagði hrekkja- sögur af bifreiðaverkstæðinu, þar var margt brallað og Jón hló dátt er hann sagði frá, enda sögumaður góður og vel greindur. Það var árið 1973 og 1974 sem við frændsystkinin og makar okkar flutt- um með hjólhýsin á grundirnar í landi Flugumýrar. Það erum við búin að dvelja meira og minna síðan á sumrin. Seinna reistum við okkur bú- staði og tvær fjölskyldur bættust í hópinn. Við kölluðum hann „bæjarstjór- ann“ á grundunum, hann var elztur og kunni ráð við öllu, alltaf boðinn og búinn til að rétta hjálparhönd. Síðast- liðin tuttugu ár höfum við haldið svo- kallaða grundarhátíð um verzlunar- mannahelgina og þá koma saman fjölskyldur og vinir, borða saman og kveikja varðeld. Þetta eru ógleyman- legar stundir enda oft glatt á hjalla, mikið sungið og brosað breitt. Ég man vel fyrstu hátíðina. Það var ekki leiðinlegt hjá þeim Jóni Stef., Bjössa, og Nonna Jós. Þeir voru eins og smástrákar að tína sam- an spýtur og sprek í brennu, brosandi út að eyrum. Svo þegar kveikt var í, var Jón Stefánsson brennustjórinn, ég gleymi aldrei svipnum á honum, það ljómaði á honum andlitið. Þeir kveðja þetta jarðlíf á sama tíma á árinu, vinirnir Jón Stefánsson og Jón Jósafatsson, með tíu ára milli- bili, annar 15.6., hinn 17.6. Guð blessi minningu þeirra. Ég læt hér fylgja með lítið fallegt ljóð eftir föður Jóns, Stefán Vagns- son. Við mér hlógu hlíð og runnar, hér voru leiðir áður kunnar, þá var æskan einhvers virði ungum dreng úr Skagafirði. Elsku Peta, Guðlaug, Ingi og aðrir ættingjar, þið eigið alla mína samúð. Sigríður (Lilla). Þegar við horfum til baka til þeirra ára sem við bjuggum á Sauðárkróki sem ungir drengir koma margar minningar upp í hugann. Við bræð- urnir höfðum töluvert frjálsræði í okkar uppeldi enda pabbi flesta daga Jón Stefánsson Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Guð blessi minningu þína og gefi þér góða nótt Smári, Kristín Björg, Linda, Bjarni og fjölskyldur. HINSTA KVEÐJA                          ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, GUÐLAUGUR JÓNATANSSON bifvélavirki, Faxabraut 28, Keflavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 15. júní. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 22. júní kl. 13.00. Anna Rodita Rufina Jónatansson, Gema Librando, Leonardo Librando, Fanney Guðlaugsdóttir, barnabörn og Gunnar Jónatansson. ✝ Bróðir okkar, ÞORSTEINN ÁGÚSTSSON bóndi í Mávahlíð, Snæfellsnesi, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 16. júní. Útförin fer fram frá Brimilsvallakirkju laugardaginn 27. júní kl. 14.00. Fyrir hönd vandamanna, Ragnar Ágústsson, Hólmfríður Ágústsdóttir, Leifur Þór Ágústsson. ✝ Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, HALLDÓR KRISTINN VILHELMSSON, Furulundi 10, Garðabæ, lést aðfaranótt miðvikudagsins 17. júní. Útför hans verður frá Vídalínskirkju í Garðabæ fimmtudaginn 25. júní kl. 13.00. Áslaug Björg Ólafsdóttir, Sigurður Halldórsson, Stefanía Adolfsdóttir, Hildigunnur Halldórsdóttir, Marta Guðrún Halldórsdóttir, Örn Magnússon og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, UNNUR GUÐFINNA PÉTURSDÓTTIR, Arahólum 4, Reykjavík, lést á Sjúkrahúsinu á Ísafirði mánudaginn 8. júní. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir til allra sem sýnt hafa okkur hlýhug og samúð á þessum erfiðu tímum. Dagný Jóhannsdóttir, Óskar Hálfdánarson, Elísabet Sigurðardóttir, Ómar Karlsson, Ólafur Sigurðsson, Gerður Sveinsdóttir, Gróa Sigurðardóttir, Börje Karlsson, Vignir Pétursson, Alda Þorsteinsdóttir, Guðrún Magnúsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSLAUG ÞORSTEINSDÓTTIR, dvalarheimilinu Hlíð, áður Helgamagrastræti 12, Akureyri, lést á Sjúkrahúsi Akureyrar þriðjudaginn 16. júní. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 24. júní kl. 10.30. Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Minningarsjóð Kvenfélagsins Hlífar á Akureyri. Ingigerður Traustadóttir, Hákon Guðmundsson, Jófríður Traustadóttir, Þórður Th. Gunnarsson, Alda Traustadóttir, Ármann Búason, Árni Þór Traustason, Fjóla Guðmundsdóttir og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.