Morgunblaðið - 20.06.2009, Side 41
Velvakandi 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2009
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
MÁNUDAGUR... KENNSLAN ER BÚIN
GEIMURINN
ER OF STÓR
ÞAÐ ÞARF AÐ LAGA
ÞENNAN HEIM!
HVAÐ GETUM
VIÐ GERT SEM
EINSTAKLINGAR?
VIÐ ÞURFUM EKKI ALLT
ÞETTA PLÁSS... ÞESSAR
PLÁNETUR OG STJÖRNUR
ERU ALLT OF STÓRAR
ÞETTA VERÐUR
STERKASTA SNJÓ-
VIRKI Í HEIMI!
SNJÓ-
SKRÍMSLIÐ
NÆR OKKUR
EKKI HÉRNA
HVAÐ
ÆTLI ÞAÐ SÉ
AÐ GERA...
ÉG HEF EKKI
SÉÐ ÞAÐ
LENGI
ANNAÐ
SEM ER
FRÁBÆRT...
HÉR ERU ENGIR
GELTANDI HUNDAR
SEM VEKJA MANN
Á NÓTTUNNI
AF HVERJU ER
GEITIN, GULLI,
ALLTAF SVONA
HRÆDDUR?
HANN
HELDUR AÐ
ÖLL TÖLVUKERFI
Í HEIMINUM
MUNI HRYNJA
UM ALDA-
MÓTIN
EN ÞAU VORU
FYRIR NÍU
ÁRUM SÍÐAN
...UM NÆSTU
ALDAMÓT
VIÐ HÖFUM VERIÐ
FASTIR HÉRNA Í
MARGA KLUKKUTÍMA
VERTU
RÓLEGUR,
LALLI
ÞETTA
REDDAST
ALLT
HVERNIG
GETUR ÞÚ
VERIÐ
RÓLEGUR?
ÞETTA ER
MIKIÐ SKÁRRA EN
ÞAÐ SEM KOM
FYRIR MIG Í
KÓREUSTRÍÐINU
VARSTU EKKI
Í HERBÚÐUM
Í NEW JERSEY
ALLT STRÍÐIÐ?
JÚ, EN
STRÁKARNIR
Í DEILDINNI
VORU SVO
LEIÐINLEGIR
SLEPPTU MÉR!
ÉG KOM EKKI
NÁLÆGT
ÞESSUM ELDI!
ALVEG EINS
OG ÍSJAKINN
KOM EKKI NÁLÆGT
TITANIC
ÞESSI VEFUR GETUR
EKKI HALDIÐ MÉR!
HANN ER
STERKARI EN
ÉG HÉLT
UNNNHHH
ÞAR FÓR
HANN!
MÆÐGURNAR Úrsúla Miliona (Úlla) og Stefanía Þórðardóttir heimsóttu
fuglana á Tjörninni. Úllu fannst endurnar frekar spaugilegar þegar þær
vögguðu makindalega til að ná í brauðmolana sem kastað var til þeirra.
Morgunblaðið/Heiddi
Úlla og endurnar
Opið bréf til
Björgólfs Guð-
mundssonar
ÞAR sem ég hef
margreynt í marga
mánuði að ná í þig
símleiðis án árangurs
ákvað ég að skrifa þér
bréf á opinberum
vettvangi þ.e.a.s. í
Morgunblaðinu.
Raunar hefur mér
ekki tekist að ná í þig
síðan þú eignaðist
Landsbankann þrátt
fyrir ítrekuð skilaboð.
Við urðum allavega
ágætir kunningjar
strax þegar leiðir okkar lágu sam-
an í AA-samtökunum fyrir u.þ.b.
30 árum. Nokkru seinna fluttist ég
til London og átti þar heima í um
tvö ár, en á þeim tíma komst þú
oft þangað vegna starfs þíns og
stöðu hjá Hafskipum, skipafélagi.
Oftar en ekki hringdir þú þá til
mín og bauðst mér með þér í mat
og var þar einatt margt spjallað
og skemmtilegir fundir sem við
áttum. En þá var öldin önnur og
nú breyttir tímar frá því sem var.
Mér er því illskiljanlegt að ná ekki
sambandi við þig nú og tók því á
það ráð að bera fram spurningu
mína á opinberum vettvangi því
hún er jú ekkert leyndarmál.
Ég bið þig, Björgólfur, sem
fyrrv. eigandi Landsbankans, að
segja mér hverjir það voru, sem
tóku um 70 milljarða, eins og sagt
er, út af peningamarkaðssjóði
bankans einhverjum klukkutímum
fyrir bankahrunið. Ég, ásamt
mörgum öðrum átti þarna millj-
ónir inni, og við töpuðum rúmum
30% af inneign okkar og það var
of mikið, ekki síst fyrir þá sem á
aldur voru komnir og hættir að
vinna. Trúlega hefði skellurinn
orðið eitthvað minni ef 70 millj-
arðarnir hefðu ekki horfið á þann
hátt og á þeim tíma að margir og
þar á meðal ég telja að maðkur sé
í mysunni og hvort ekki hafi þeir
aðilar, sem tóku út umrædda 70
milljarða verið látnir vita af
óprúttnum aðilum innan bankans.
Það virðist, sem nóg af svoleiðis
fólki hafi verið í þinni þjónustu.
Hvað á maður að halda þegar
ítrekað hefur þurft að reka fólk
frá Landsbankanum fyrir ým-
iskonar misgjörðir í fjármálum og
nú síðast „toppaði“ fyrrv. banka-
stjóri þinn Sigurjón Þ. Árnason
óhæfuna með 70 milljóna láni til
sín á vafasömum for-
sendum að talið er.
Það er svo aftur
annað mál og óskylt
að lögfræðingur Sig-
urjóns er sagður hafa
hjálpað til við verkn-
aðinn, en það er Sig-
urður G. Guðjónsson,
sá sem ráðlagði
dómsmálaráðherra að
losa sig við Evu Joly
en hann og fleiri hafa
haft horn í síðu Evu.
Hvað hræðir menn?
Hjörleifur Hallgríms,
Akureyri.
Dónaskapur og
forræðishyggja
ÉG fór í Áfengis- og tóbaks-
verslun ríkisins í um daginn til
þess að kaupa mér rauðvín. Uppá-
haldsrauðvínið mitt kostaði 1.500
krónur fyrir bankahrunið, hækk-
aði svo í um 2.000 krónur. Þegar
15% skattur var lagður á áfengi
kostar flaskan núna 2.590 krónur.
Mér blöskrar yfir þessari for-
ræðishyggjuhugsun sem er svo
ríkjandi hér á landi. Ég hef búið
erlendis í nokkur ár og þar þykja
sjálfsögð mannréttindi að fara út í
næstu verslun og kaupa vín með
matnum og kostar góð rauðvíns-
flaska á Spáni núna fjórar evrur
(reyndar á tilboði). Hvers vegna
stendur á því að það er ekki hægt
að fara í verslun hér og kaupa vín
og bjór á viðráðanlegu verði?
Sú hugsun virðist alltaf vera
ríkjandi á Íslandi að það séu ein-
göngu drykkjusjúklingar sem
kaupi sér áfengi og þess vegna sé
allt í lagi að leggja skatt á það til
þess að forða þeim frá að verða
sér úti um „veigarnar“. Í hvers
konar landi búum við eiginlega?
Ég bara spyr.
Rauðvínsáhugamaður.
Týnd taska
AÐFARANÓTT laugardagsins 13.
júní var svarhvít taska tekin í
misgripum. Hún innheldur m.a.
peysu og skó sem hafa mikið til-
finningalegt gildi fyrir eigandann.
Há fundarlaun eru í boði fyrir
töskuna. Finnandi vinsamlegast
hafi samband í síma 848-3199.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Jónsmessukaffi í Kefla-
vík 24. júní undir stjórn Ólafs B. Ólafs-
sonar. Kaffihlaðborð, skemmtiatriði og
dans. Brottför kl. 13 frá Aflagranda.
Félagsheimilið Gjábakki | Krumma-
kaffi kl. 9 og Hana-nú ganga kl. 10.
Félagsmiðstöðin Hraunbæ 105 | Farið
verður í Jónsmessukaffi 24. júní í Safn-
aðarheimilið í Reykjanesbæ, Ólafur B
Ólafsson verður með ásamt föruneti.
Farið verður frá Hraunbæ kl. 13.10. Verð
3.700 kr. Skráning á skrifstofu eða í
síma 411-2730.
Hraunsel | Hraunsel verður lokað
vegna sumarfría frá 6. júlí til 10. ágúst.
Dagsferð FEBH verður um Suðurland
22. júlí.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Jónsmessu-
ferð í Reykjanesbæ 24. júní kl. 13,
skemmtun og kaffihlaðborð. Uppl. og
skráning í síma 411-9450.
Þórðarsveigur 3 | Salurinn opnar kl. 9