Morgunblaðið - 20.06.2009, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2009
endurgerð í þúsundum útgáfna en
upprunalega málverkið er enn jafn
stórfenglegt og verðmætt.
Það verður alltaf eins og það er
og hefur alltaf verið. Viljir þú að
endurminning þín af einhverri sögu
eða lagi haldist í sama formi í höfð-
inu á þér hefurðu val. Að hunsa eft-
irmyndina og halda þig við eldri út-
gáfuna. Hér er ekki verið að þvinga
neinn til neins.
Af hverju má setja sama leikritiðá svið ár eftir ár í nýjum upp-
færslum en ekki endurgera kvik-
myndir? Það er auðvitað í kjarna
sínum það sama. Að endursegja
sögu í nýrri túlkun. Það leikfélag
sem ákveður að setja upp mörg
hundruð ára verk Shakespeare ger-
ir sér líklegast engar grillur um það
að sú uppfærsla muni toppa allar
hinar. Þetta er önnur hugsanavillan
varðandi endurgerðir. Þær eru
ekki alltaf tilraunir til endurbóta.
Þær eru aðeins endurtúlkanir.
Vissulega eru til dæmi um hræði-
legar endurgerðir. Nóg er að nefna
nýlegar endurgerðir The Wicker
Man sem skartaði Nicolas Cage í að-
alhlutverki, Psycho með Vince
Vaughn og Get Carter með Sylves-
ter Stallone. Síðast þegar ég gáði
voru upprunalegu útgáfur þeirra
ennþá alveg stórkostlegar.
Þegar vel tekst til með end-
urgerðir virðast allir gleyma upp-
runalegu myndinni og endurgerðin
verður klassík. Þannig eru Scar-
face með Al Pacino, Cape Fear með
Robert De Niro, The Departed með
Leonardo DiCaprio, The Ring með
Naomi Watts, The Fly með Geoff
Goldblum, Invasion of the Body
Snatchers með Donald Sutherland,
Casino Royal með Daniel Craig sem
James Bond, The Thing með Kurt
Russell, Ocean’s Eleven með
George Clooney og félögum allt
endurgerðir. Fáir eru á þeirri skoð-
un að upprunalegar útgáfur þeirra
standist samanburðinn við end-
urgerðina. Í nokkrum tilvikum eru
gerðar töluverðar breytingar til
þess að endurbæta söguþráðinn.
Það sem gerir list tímalausa erekki bara innihald verkanna,
heldur túlkun þeirra. Léleg end-
urgerð er léleg endurgerð sem tek-
ur ekkert af upprunalega verkinu.
Góð endurgerð getur aðeins aukið
innihaldið. Slakið á og takið öllu
eins og það er. biggi@mbl.is
kvikmyndir LEIKKONAN Jennifer Garner
sýndi á dögunum að hún lætur ekki
neinn komast upp með að hæðast að
eiginmanni sínum, leikaranum Ben
Affleck. Ekki einu sinni aldavinum
hans. Þannig er mál með vexti að
leikstjórinn Kevin Smith var að gera
stólpagrín að Affleck þegar Garner
brást ókvæða við og sagði Smith til
syndanna. Smith reyndi að malda í
móinn og sagði að þau Garner deildu
greinilega ekki skopskyni. „Ég var
að stríða Ben og Jennifer segir:
„Veistu, ef þú hættir ekki að gera
grín að Ben mun ég lemja þig í
klessu.“ Og hún gæti það hæglega.
Ég hef séð Alias.“ En viðbrögð
Garners komu Smith sérstaklega á
óvart því hann heldur því fram að
Affleck hafi mun kvikindislegri húm-
or en hann sjálfur. „Ég man eftir
sumum bröndurum Bens sem eru
svo grófir að ég hef ráðlagt honum
að fara til kirkju og skrifta.“
AP
Garner og Affleck Hann grínar og
hún lemur.
Deila ekki skopskyni