Morgunblaðið - 08.08.2009, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 08.08.2009, Blaðsíða 17
Fréttir 17VIÐSKIPTI| ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2009        :  B  5 - ,8 D 75 7 55 5 95  B B -      "%  . SKULDATRYGGINGAÁLAG rík- isins, horft til fimm ára, lækkaði mikið í júlí. Þannig var skulda- tryggingaálag á ríkið um 6,5% (650 punktar) um mánaðamótin júní og júlí sl.. Í byrjun ágúst var þetta álag komið niður í rétt rúm 5%. Álagið er ákveðin vísbending um hversu miklar líkur fjárfestar telja á að ríkið geti ekki staðið við skuld- bindingar sínar. Því meiri sem lík- urnar eru taldar vera, því hærra er skuldatryggingarálagið. Hagfræðingar bæði í Íslands- banka og Landsbanka sögðu nokkr- ar skýringar geta legið þarna að baki í fréttabréfum gærdagsins. Al- mennt er þetta álag að fara niður hjá ríkjum á Vesturlöndum. Skuldaálag ríkisins féll í júlí Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is TALIÐ er hugsanlegt að ekkert verði af kaupum sænska sportbíla- framleiðandans Koenigsegg Group á Saab-bílaverksmiðjunum af banda- ríska bílarisanum General Motors. Fram kemur í frétt sænska dag- blaðsins Göteborg-Posten (GP) að öflugir fjárfestar, sem ætluðu að standa að baki Svíanum Christian Erland Harald von Koenigsegg, stofnanda Koenigsegg-fyrirtækis- ins, muni væntanlega draga sig út úr hinum fyrirhuguðu kaupum, en vilja- yfirlýsing þar um var undirrituð í júnímánuði síðastliðnum. Sumir fjárfestarnir, sem ekki ligg- ur fyrir hverjir eru, eru sagðir hafa misst áhuga á þátttöku í kaupunum á Saab að hluta til vegna þeirrar miklu athygli sem þau hafi vakið. Hefur GP eftir Jöran Hägglund, fulltrúa sænska iðnaðarráðuneytisins, sem hefur með aðkomu sænskra stjórn- valda að hinum hugsanlegu viðskipt- um að gera, að verið sé að leita leiða til að finna lausn á þessu máli. Hann staðfestir hins vegar að breytingar séu líklegar í afstöðu fjárfestanna. Fyrirhuguð sala GM á Saab-verk- smiðjunum er liður í því að forða GM frá gjaldþroti, en þetta fyrrum stærsta bílaframleiðslufyrirtæki í heimi hefur átt í miklum erfiðleikum. Sala á Saab í uppnámi Morgunblaðið/ÞÖK Gæði Koenigsegg-fyrirtækið var stofnað árið 1994 og framleiðir sportbíla. Fjárfestar eru sagðir vilja draga sig út úr kaupum Koenigsegg-sportbílafyrirtækisins á Saab-verksmiðjunum ÁKVEÐIÐ hefur verið að leggja til að Eftirlauna- sjóður starfs- manna Glitnis banka hf. samein- ist Almenna líf- eyrissjóðnum frá og með 1. október næstkomandi. Tillaga þess efnis var kynnt á árs- fundi Eftirlaunasjóðs starfsmanna Glitnis banka hf. í júnímánuði síðast- liðnum en sjóðfélagar Almenna líf- eyrissjóðsins munu kjósa um sam- eininguna á sjóðfélagafundi í næsta mánuði, að því er fram kemur í til- kynningu frá sjóðunum. Páll Ásgeir Pálsson, formaður stjórnar Almenna lífeyrissjóðsins, segist telja ákveðið hagræði að því að sameina sjóðina tvo. Sjóðfélagar muni hins vegar ákveða hvort af því verður. Heildareignir Almenna lífeyr- issjóðsins voru 83,2 milljarðar í árs- byrjun 2009 og Eftirlaunasjóðs starfsmanna Glitnis banka 6,4 millj- arðar. Heildareignir sameinaðs sjóðs verða því um 90 milljarðar, veði sameiningin samþykkt. gretar@mbl.is Sameining við Almenna lífeyrissjóðinn Ego Dekor - Bæjarlind 12 S: 544 4420 - www.egodekor.is Opið mán-fös: 10.00-18.00 Opið um helgina: lau: 10.00-18.00 - sun: 13.00-18.00 20-70% AFSLÁTTURÚTSALANER HAFIN PLANET tungusófi Stærð: 290x160cm Verð áður: 256.000,- Verð nú: 179.200,- CLAY leðurhornsófi Stærð: 216x216cm Verð áður: 252.000,- Verð nú: 189.000,- CLAY leðursófasett 3ja sæta - Verð áður: 145.000,- Verð nú: 108.750,- 2,5 sæta - Verð áður: 129.000,- Verð nú: 96.750,- GRANDO tungusófi Stærð: 230x157cm Færanleg tunga Verð áður: 168.000,- Verð nú: 134.400,- YORK tungusófi Stærð: 280x190cm Færanleg tunga Verð áður: 245.000,- Verð nú: 196.000,- TV skenkur Br: 180cm Fáanlegur í hvítu og svörtu háglans Verð áður: 98.000,- Verð nú: 73.500,- -30% -20% -30% -20% -25% -25% -25% AIR tungusófi 2 mynstraðir púðar fylgja Stærð: 297x155cm Verð áður: 238.000,- Verð nú: 166.600,- Stóll - Verð áður: 79.000,- Verð nú: 59.250,- Oleandro stækkanlegt borð Beyki Stærð: 120cm(180cm)X120cm Verð áður: 86.000,- VERÐ NÚ: 25.800,- -70% Skápasamstæða Hvíttuð eik-svart gler Verð áður: 238.000,- VERÐ NÚ: 166.600,- -30%RIO stóll Fáanlegur í nokkrum litum Verð áður: 14.800,- Verð nú: 10.360,- Leðurstóll Eingöngu í hvítu leðri Verð áður: 19.800,- Verð nú: 15.840,- -30% -20% TV skenkur Br: 200cm Fáanlegur í hvítu og svörtu háglans Verð áður: 106.000,- Verð nú: 79.500,- TV skenkur með ljósi Br: 200cm Fáanlegur í natural og hvíttaðri eik Verð áður: 89.000,- Verð nú: 53.400,- -25% -40%

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.