Morgunblaðið - 04.10.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 2009
einfaldlega betri kostur
Komdu og fáðu
þér afmælisköku og
kaffi í boði ILVA í
dag 4. október
Fjöldi afmælis-
tilboða
©
IL
V
A
Ís
la
n
d
20
0
9
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-19
kaffihús: lau. 10-17 sun. 12-17 mán. - fös. 11-18
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin
Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sbs@mbl.is
SAMEINING embætta, sala emb-
ættisbústaða og breytingar á starf-
semi þjónustu sendiráðspresta eru
meðal hugmynda sem kirkjuráð hef-
ur í skoðun. Krafa ríkisins, sam-
kvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs,
er að framlög ríkisins verði skorin
niður um 160 milljónir króna, auk
þess sem sóknargjöld, sem ríkið inn-
heimtir fyrir trúfélög, hafa verið
skorin í tvígang á árinu.
„Ríkið gerir mikla hagræðingar-
kröfu til kirkjunnar sem við viljum
vissulega reyna að mæta. Hins vegar
er útilokað að skera niður um 160
milljónir króna á einu ári. Við þurfum
lengri aðlögunartíma og gagntilboð
okkar er að dreifa þessum niður-
skurði á tvö ár,“ segir sr. Kristján
Björnsson, sóknarprestur í Vest-
mannaeyjum, sem jafnframt situr í
kirkjuráði.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir,
upplýsingafulltrúi þjóðkirkjunnar,
bendir á að milli ríkis og kirkju séu
samningar. „Slíkum samningi er ekki
sagt upp einhliða, heldur verður að
leita leiða þannig að skerðing á nú-
gildandi samkomulagi sé aðeins tíma-
bundin.“
Laun presta og biskups hafa verið
lækkuð, skv. úrskurði kjararáðs. Í
söfnuðum sér áhrifa skertra sóknar-
gjalda stað en Karl Sigurbjörnsson
biskup hefur lagt áherslu á að slíkt
bitni ekki á innra starfi, svo sem með-
al barna og unglinga.
Til fjölda ára hafa þjóðkirkjan,
Tryggingastofnun og utanríkisráðu-
neytið í sameiningu haldið úti og fjár-
magnað embætti prests í Lundúnum.
Samningar þar um renna út um kom-
andi áramót og sr. Sigurður Arnar-
son sem þjónað hefur ytra er á heim-
leið. Líklegt þykir að enginn komi í
hans stað. Þá er sömuleiðis óvissa um
hvort embættum Íslandspresta í
Gautaborg og Kaupmannahöfn verð-
ur áfram haldið úti. Tillögur kirkju-
þings þar um ættu að liggja fyrir inn-
an skamms, að sögn sr. Kristjáns
Björnssonar. Þá hefur lengi verið í
gildi samningur milli guðfræðideild-
ar HÍ og þjóðkirkjunnar sem fjár-
magnað hefur starfsemi deildarinnar
að nokkru. Sá samningur verður end-
urskoðaður. Þá verða nýbyggingar
stöðvaðar, útgáfu nýrrar sálmabókar
frestað og styrkjamál endurskoðuð.
Prestum fækkað og
sálmabókinni frestað
Ríkið vill að þjóðkirkjan skeri niður í starfsemi sinni um 160 milljónir á næsta ári
» Þjónusta sendiráðspresta verður endurskoðuð
» Sóknargjöld verið skert í tvígang á þessu ári
» Stuðningur við guðfræðideild HÍ í uppnámi
HAUSTRÖKKRIÐ færist yfir borg og bý með
hverjum deginum sem líður. Sólarupprás er
núna kl. 7.45 að morgni og sólin er sest að verða
sjö að kvöldi. Æði napurt getur orðið á kvöldin
og kalt að bíða eftir strætó, eins og hjá þessum
unga manni er beið við Hamraborg í Kópavogi.
BEÐIÐ EFTIR STRÆTÓ Í HAUSTRÖKKRINU
Morgunblaðið/Golli
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
„ÞAR er raunverulega ákvæði þar sem ríkisvaldið lofar
að leggja ekki ný gjöld á starfsemina, gjöld sem skemmi
fyrir rekstrinum,“ segir Ágúst F. Hafberg, fram-
kvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Norðuráli, um fjár-
festingarsamninga fyrirtækisins vegna orkukaupa hér-
lendis. Fram kemur í fjárlagafrumvarpinu að lagður
verði einnar krónu skattur á hverja kílówattstund orku
„Annars vegar gerum við orkusamninga og þar er
verðið tilgreint og það á ekki að bætast neitt við það. Hins
vegar er um að ræða fjárfestingarsamninga, annar þeirra
er frá 2005 vegna Grundartanga og hinn sem er vegna
Helguvíkur er nýr, blekið er varla þornað á undirskrift-
unum. Þessir fjárfestingarsamningar við ríkið ramma inn
rekstrarumhverfi fyrirtækisins. Samningarnir eru til 20
ára og hugmyndin með þeim er að fyrirtækið geti treyst
því að umhverfið verði með þessum hætti, þessar for-
sendur breytist ekki. Það fer enginn fjárfestir með mikla
peninga inn í landið án þess að hafa slíka vissu. Álverið
sem við ætlum að reisa í Helguvík kostar 200 milljarða
króna og það er ekki hægt að fara með svona mikið fé inn
ef fyrir hendi er hætta á að ríkið geti síðan lagt á skatt
sem tekur alla ávöxtun af peningunum, komið aftan að
okkur. Fjárfestingarsamningarnir loka fyrir þann mögu-
leika,“ segir Ágúst og telur að samningarnir við Alcoa-
Fjarðaál hafi verið nær eins að þessu leyti.
Telur útilokað að leggja
nýja skatta á álverin
Morgunblaðið/Rax
Undirstöður Unnið að álversframkvæmdum í Helguvík.
Samningar tryggja óbreyttar
skattalegar forsendur
FORSTJÓRI Alc-
an á Íslandi,
Rannveig Rist,
fékk sýru í and-
litið morguninn
eftir að skemmd-
arverk voru unn-
in á heimili henn-
ar í byrjun ágúst.
Hlaut hún sár í
andliti sem mun
skilja eftir sig ör, segir í Frétta-
blaðinu í gær.
Atvikið hafi átt sér stað 5. ágúst
sl. en um nóttina var málningu
skvett á hús Rannveigar. Þegar hún
opnaði framdyr fjölskyldubílsins
um morguninn skvettist sýra úr
hurðarfalsinu í andlit hennar við
hægra augað.
Rannveig vildi ekki tjá sig um
málið í samtali við Morgunblaðið,
aðeins að það væri í rannsókn, og
sömu viðbrögð fengust hjá Stefáni
Eiríkssyni, lögreglustjóra á höfuð-
borgarsvæðinu.
Fékk sýru í andlitið
Rannveig Rist
STEINGRÍMUR
J. Sigfússon fjár-
málaráðherra
mun, samkvæmt
fregnum rúss-
neskra fjölmiðla,
eiga viðræður
við Rússa um
væntanlegt lán á
fundum á árs-
fundi AGS í
Tyrklandi. Þetta
fékkst ekki staðfest í fjármálaráðu-
neytinu í gær en sendinefnd Íslands
var þá ókomin til Istanbúl. Gengið
verður frá láni Pólverja til Íslend-
inga í dag og Steingrímur ræðir við
Breta og Hollendinga á morgun.
Rætt um Rússalán
Steingrímur J.
Sigfússon
NÝI vegurinn um Arnkötludal var
opnaður fyrir umferð síðdegis á
föstudag. Formleg opnunarathöfn
verður væntanlega síðari hluta vik-
unnar. Ingileifur Jónsson ehf. hefur
séð um vegarlagninguna um Arn-
kötludal og hefur verkið að mestu
verið unnið þrjú síðustu sumur.
Opna í Arnkötludal
LÖGREGLAN hafði afskipti af
tveimur ungum mönnum í miðborg
Reykjavíkur í fyrrinótt, sem sak-
aðir voru um að hafa ógnað fólki í
efri byggðum borgarinnar með
skammbyssu og hótað því lífláti.
Nokkrar slíkar tilkynningar bárust
lögreglu. Í ljós kom að þeir höfðu
hótað fólki með plastbyssu.
Hótuðu fólki lífláti