Morgunblaðið - 04.10.2009, Síða 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 2009
Össur Skarphéðinsson hefur ekk-ert gert til að upplýsa landa
sína um Icesave-málið. Ekki lyft
litla fingri fyrir hagsmuni þeirra.
Hann hefur pukrast um málið,bæði fyrir og eftir miðnætti.
Það er skiljanlegt. Bæði vantarhann rök, og
svo vill hann ekki
spilla fyrir póli-
tískum sjálfs-
morðstilraunum
Steingríms J.
Sigfússonar.
En nú geturhann ekki
lengur orða
bundist. Hann
hefur ekki bara loksins fundið rök,
hann hefur fundið rökin einu, hin
hinstu rök. Þau svínvirka á mig,
hugsaði hann. Þau hljóta að svín-
virka á Hollendinga og Breta. Loks-
ins hafa fundist málsbætur fyrir illa
stadda íslenska þjóð.
Össur bíður ekki boðanna. Eng-inn getur sakað hann um heig-
ulshátt eftir þetta.
Hann vindur sér að Hollendingumog Bretum. Það gneistar af
ráðherranum. Mun hann hrópa svo
hátt að heimurinn heyri: „Við mót-
mælum allir,“ það þótti gott einu
sinni. „Hollendingar og Bretar,“
segir hetjan, „kröfur ykkar gætu
kollvarpað ríkisstjórninni. Ráð-
herrastóllinn minn er í hættu.“ Nú
eiga Bretar og Hollendingar litlar
varnir.
Þeir þurfa að meta: Hvers virði erÖssur? Þyngdar sinnar virði í
gulli? Eða lofti?
Hvað segir helsti samningamaðurBreta og Hollendinga? Nú velt-
ur allt á hverju Indriði svarar sín-
um mönnum.
Össur
Skarphéðinsson
Gildustu rökin í Icesave-málinu
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 9.00 í gærmorgun að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 2 léttskýjað Lúxemborg 6 heiðskírt Algarve 19 heiðskírt
Bolungarvík 2 alskýjað Brussel 11 skýjað Madríd 12 heiðskírt
Akureyri 1 slydda Dublin 12 skýjað Barcelona 18 léttskýjað
Egilsstaðir 1 rigning Glasgow 11 skúrir Mallorca 15 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 4 alskýjað London 13 alskýjað Róm 16 heiðskírt
Nuuk 0 léttskýjað París 6 heiðskírt Aþena 21 skýjað
Þórshöfn 8 skúrir Amsterdam 13 skýjað Winnipeg 7 alskýjað
Ósló -1 skýjað Hamborg 10 skúrir Montreal 10 skúrir
Kaupmannahöfn 10 skúrir Berlín 7 skýjað New York 17 alskýjað
Stokkhólmur 0 heiðskírt Vín 9 léttskýjað Chicago 9 alskýjað
Helsinki -2 léttskýjað Moskva 3 þoka Orlando 23 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
4. október Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 0.12 0,4 6.15 4,0 12.25 0,4 18.28 4,0 7:47 18:47
ÍSAFJÖRÐUR 2.19 0,2 8.14 2,1 14.31 0,3 20.23 2,1 7:55 18:49
SIGLUFJÖRÐUR 4.26 0,2 10.39 1,2 16.34 0,2 22.52 1,3 7:38 18:32
DJÚPIVOGUR 3.29 2,1 9.40 0,4 15.45 2,0 21.48 0,4 7:17 18:16
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Slydda eða rigning við suður-
ströndina og él á annesjum fyr-
ir norðan, annars úrkomulítið.
Hiti í kringum frostmark í dag
en frost 1 til 8 stig í nótt.
HÓPFERÐAFYRIRTÆKIÐ Bílar
og fólk, sem rekur hópferðabíla und-
ir merkjum TREX, og samgöngu-
ráðuneytið hafa hrint af stað átaki
sem miðar að því að lækka til muna
verð á ferðum með áætlunarbílum
fyrirtækisins. Kynning fór fram á
átakinu á BSÍ í gær að viðstöddum
Kristjáni L. Möller samgöngu-
ráðherra, forsvarsmönnum Bíla og
fólks og fulltrúum Öryrkjabanda-
lags Íslands og Landssambands
eldri borgara.
Átakið felur í sér að Bílar og fólk
munu lækka öll fargjöld um helming
fram til áramóta. Helstu leiðir sem
fyrirtækið ekur á eru frá Reykjavík
til Snæfellsness, Akureyrar, Hafnar
í Hornafirði og í Dalina, auk fleiri
leiða.
Þeir farþegar, sem nú njóta af-
sláttarkjara, eins og öryrkjar, ellilíf-
eyrisþegar, börn og skólafólk, munu
héðan í frá greiða eingöngu helming
af því sem þeir hafa greitt fram til
þessa. Þannig munu öll fargjöld
lækka um helming og til greina kem-
ur að framlengja þetta átak til næsta
vors. Svo dæmi sé tekið þá mun einn
farmiði fyrir framhaldsskólanema
frá Reykjavík til Akureyrar kosta
3.350 krónur.
Samgönguráðherra seldi fyrsta
farmiðann á BSÍ í gær. Við það tæki-
færi sagði hann þetta vera góðar
fréttir fyrir þá sem þyrftu að nýta
sér áætlunarferðir. bjb@mbl.is
Bílar og fólk lækka fargjöld um helming
Sérstöku átaki hrundið af stað í sam-
vinnu við samgönguráðuneytið
Átak Kristján L. Möller hrinti
átakinu af stað á BSÍ í gær.
ÍSLENSKIR atvinnuflugmenn ætla
að sýna evrópskum starfsfélögum
sínum samstöðu á mánudag með því
að vera á Keflavíkurflugvelli og
Reykjavíkurflugvelli og kynna
breytingar á regluverki Evrópusam-
bandsins um flug-, vakt- og hvíld-
artíma flugáhafna. Á mánudag
hyggst Evrópusamband flugmanna
standa fyrir mótmælum þegar Evr-
ópuþingið kemur saman í Brussel,
auk mótmæla á flugvöllum í álfunni.
Fyrir ári birti ESB skýrslu vís-
inda- og læknanefndar helstu stofn-
ana sambandsins. Þar kom m.a.
fram að núverandi reglur um há-
marksvaktir og fleira varðandi
vinnutíma væri ekki í lagi. Þrátt fyr-
ir þessa vitneskju hefur ESB ekki
tekið tillit til skýrslunnar.
Flugmenn sýna samstöðu
Á mánudag
Austan 5-10 og víða dálítil snjó-
koma eða él, en samfelld
slydda eða rigning suðaust-
anlands seinni partinn. Hiti um
og rétt yfir frostmarki að deg-
inum.
Á þriðjudag
Vaxandi norðaustanátt og rign-
ing eða slydda SA-lands, en él
fyrir norðan. Víðast 10-15 m/s
síðdegis, en hægari suðvest-
anlands. Hiti 0 til 5 stig, en í
kringum frostmark á norð-
anverðu landinu.
Á miðvikudag og fimmtudag
Útlit fyrir norðanátt með élja-
gangi með ströndum landsins,
síst þó vestantil. Kalt í veðri.
Á föstudag
Austlæg átt og slydda eða rign-
ing sunnanlands, en annars úr-
komulítið. Heldur hlýnandi veð-
ur.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA