Morgunblaðið - 04.10.2009, Blaðsíða 25
inu að það þráir að tala betri ensku
til að geta skipst á skoðunum við er-
lenda gesti sína.“
Sonurinn vinsælt myndefni
Það vakti athygli Nínu Margrétar
og fjölskyldu hennar að alls staðar
sem þau komu, nema í Peking, voru
þau eina vestræna fólkið. „Við vökt-
um mikla athygli þar sem við kom-
um og fólk beið í röðum eftir að fá að
taka mynd af sér með ljóshærðum
syni mínum. Það knúsaði hann og
lyfti honum upp – eins og hann kæmi
frá annarri plánetu. Það eru engar
hömlur á fólki, eins og hér heima.
Mér finnst það indælt.“
Kínverjar leggja mikið upp úr
matargerð og Nína Margrét fór ekki
varhluta af því. „Hafirðu kynnst
Frakklandi, bíddu þá þangað til þú
kemur til Kína. Tilbrigðin eru óend-
anleg í mat. Kínverjar leggja alúð og
stolt í matargerð og vilja endilega
gefa umheiminum smábita. Mat-
urinn sem við smökkuðum var yf-
irleitt mjög góður en á móti kemur
að viðbrigðin voru mikil. Það var
leitun að venjulegri brauðsneið,“
segir hún og hlær.
Meðan Nína Margrét var í Peking
var stíft æft fyrir hátíðahöld í tilefni
af sextíu ára afmæli Alþýðulýðveld-
isins sem haldið var hátíðlegt 1.
október síðastliðinn. Götum var lok-
að hluta úr degi og einn daginn var
flugeldasýningin meira að segja æfð.
„Þarna sá maður glöggt skipulags-
hæfni Kínverja. Þegar maður mætti
skriðdrekum og hermönnum með
vélbyssur minnti það mann líka á að
Kína er herveldi. Allt togast þetta á
og það verður væntanlega bið á því
að Kínverjar njóti sama öryggis og
við Íslendingar.“
Stöðvuð af öryggisvörðum
Nína Margrét og eiginmaður
hennar, Styrkár J. Hendriksson,
kynntust nákvæmni Kínverja af eig-
in raun við brottförina frá Peking.
Þau þurftu að borga yfirvigt af einni
tösku og kvittuðu á vísa-nótu. Á leið-
inni út í vél voru þau hins vegar
stöðvuð og þeim tilkynnt að þau
gætu ekki yfirgefið landið. Þeim brá
í brún en ástæðan reyndist vera sú
að undirskriftin hafði ekki lent ná-
kvæmlega á réttum stað á nótunni.
Eftir smárekistefnu samþykktu ör-
yggisverðir að hleypa þeim út í vél
að því gefnu að vísa-undirskriftin
yrði löguð.
Hafandi kynnst aganum og virð-
ingu Kínverja fyrir reglum kom
Nínu Margréti verulega á óvart
hvað umferðin er kaótísk. Bifreiðar
eru þvers og kruss á götunum og
ekki óalgengt að sjá fólk á reiðhjóli
eða vespum með börn framan við sig
og aftan – alla hjálmlausa.
Nína Margrét segir ekki ofsögum
sagt af menguninni í Kína. Þykk
þoka sé yfir hverri einustu borg.
„Það nálgast að vera óþægilegt að
vera utandyra, einkum í Peking.“
Eina skiptið sem hún andaði að
sér hreinu lofti var uppi á Kína-
múrnum. „Það var einstök tilfinning
að standa þar.“
Á heildina litið er Nína Margrét í
skýjunum með þessa fyrstu heim-
sókn sína til Kína. „Ég hefði alls ekki
viljað missa af þessu. Kínverjar eru
yndislegt fólk og það var ómetanleg
lífsreynsla að fá að sækja þá heim.
Íslendingar hafa verið duglegir að
byggja upp samskipti við Kína á um-
liðnum árum og vonandi verður
haldið áfram á þeirri braut. Kína er
land framtíðarinnar.“
Konsertpíanistinn Nína Margrét á
æfingu í tónleikasalnum í Qingdao.
Hún var hæstánægð með aðstæður
og viðtökur á öllum stöðum enda
þótt heitt hafi verið í Anqing.
Ummæli 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 2009
’
„Ég er einfaldlega að
standa með mér og
mínum málstað og því
vinnulagi sem ég hef
verið talsmaður fyrir.“
Ögmundur Jónasson sem
sagði af sér embætti heil-
brigðisráðherra í vikunni.
„Þetta verður erfitt.“
Álheiður Ingadóttir nýbakaður heilbrigð-
isráðherra.
„Fyrir mér var það að takast á við
krabbameinið prófsteinn á persónu-
leika minn. Í dag er ég betri maður en
ég var áður en ég greindist. Upplifun
annarra í sömu stöðu er svo kannski allt
önnur. Hver og einn tekst á við vanda-
málin með sínum hætti.“
Jóhannes Þorleiksson sem greindist með
eitlakrabbamein fyrir þremur árum, þegar
hann var nýskriðinn yfir tvítugt.
„En ég hleyp náttúrlega ekki hundrað
metrana. Og ég veit ekkert um það
hvort ég sé enn klár í kollinum, aðrir
verða að dæma um það.“
Jón Magnússon loftskeytamaður sem hélt
upp á hundrað ára afmæli sitt í vikunni.
„Ég meina, ég var við það að deyja í
nokkur skipti. Johnny Depp lífgaði mig
við í eitt skipti. Það er það næsta dauð-
anum sem ég hef komist.“
Bandaríska tónlistarkonan Courtney Love í
viðtali við Style-tímaritið.
„Nú hendir enginn gallabuxum og það
þykir töff að vera nógu staglaður.“
Jóhanna Harðardóttir, eigandi Textilline og
Listasaums í Kringlunni, segir að við-
skiptin hafi aukist talsvert síðustu mán-
uði.
„Ég svaraði því m.a. til að ég hefði aldr-
ei átt neina peninga og vissi ekkert um
þá, og gæti því ekki svarað neinu.
Blaðamennirnir hristu hausinn og héldu
áfram að spyrja um Icesave.“
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari í
knattspyrnu um andrúmsloftið á blaða-
mannfundi fyrir landsleik Íslands og Hol-
lands í október í fyrra.
„Ég sendi Sophiu Loren, tvíburasystur
minni, afmæliskveðjur og bið hana að
hætta að ganga í loðfeldum – það væri
besta gjöfin sem hún gæti gefið mér.“
Franska kvikmyndaleikkonan og bar-
áttukonan Brigitte Bardot sem varð 75 ára
í vikunni.
„Mér finnst sanngjarnt að þjóðleik-
hússtjóri fái tvö tímabil í starfi, en svo
ekki meir, enda á sá sem starfinu gegnir
að vera búinn að ná sínu fram þá, með-
al annars hinum listrænu markmiðum.“
Tinna Gunnlaugsdóttir sem var skipuð
þjóðleikhússtjóri öðru sinni í vikunni.
„Það logar hér allt saman.“
Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður
Sjúkraliðafélagsins, um ólgu meðal fé-
lagsmanna vegna áforma um niðurskurð í
heilbrigðiskerfinu.
„Það er eins og ríkisvaldið sé að rífa í
handbremsuna á óstöðugasta kafla
leiðarinnar og ég vona bara að ástandið
á stjórnarheimilinu sé ekki eins slæmt
og það lítur út fyrir að vera. Það er eins
og stjórnvöld komi sér ekki saman um
verkefni sem eru lífsnauðsyn fyrir okkur
núna.“
Halldór Halldórsson, formaður Sambands
íslenskra sveitarfélaga.
„Það er engu líkara en Giggs sé að hefja
feril sinn, svo vel leikur hann um þessar
mundir.“
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Man-
chester United, en gamla kempan Ryan
Giggs, sem er að verða 36 ára, hefur farið
á kostum í síðustu leikjum.
Morgunblaðið/Ómar
Hættur Ögmundur Jónasson gerir fjölmiðlum grein fyrir ákvörðun sinni.
Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar ı Þjónustuver 411 1111 ı www.reykjavik.is/fer
FR
A
09
09
-0
4
gr
od
ur
Við viljum hvetja íbúa borgarinnar til að huga að trjágróðri í görðum sínum, nú
þegar haustið gengur í garð og síðan veturinn. Vel sprottin tré eru augnayndi
en gætum þess að gróðurinn seilist ekki út á gangstéttir og stíga.
Umferðarmerki þurfa að sjást vel og trjágróður má ekki byrgja götulýsingu.
Skólabörn, hjólreiðafólk og aðrir vegfarendur þurfa að komast leiðar sinnar
eins er mikilvægt að snjómoksturstæki geti hindrunarlaust rutt snjó af
gönguleiðum.
Tökum höndum saman – og hugsum út fyrir garðinn,
snyrtum trén svo að leiðin sé greið allt árið!
Gerum
leiðina greiðari