Morgunblaðið - 04.10.2009, Blaðsíða 36
36 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 2009
Stepp ehf Ármúla 32 Sími 533 5060 www.stepp.is stepp@stepp.is
G
ra
fí
k
a
2
0
0
9
GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA
TEPPI FYRIR HEIMILIÐ
BLESSAR GUÐ ÍSLAND?
verktaka- og ráðgjafamarkaðurinn í sögulegri lægð
Nú þegar ár er liðið frá
því að efnahagskreppan
hófst er nauðsynlegt að
líta um öxl, skoða hvað
fór úrskeiðis en ekki síður
taka stöðuna eins og hún
er í dag og hvað tekur við
næstu misseri og ár.
DAGSKRÁ
14.00
Þorvaldur S. Þorvaldsson,
formaður NBD á Íslandi
setur fundinn
14.10
Stefán Thors,
skipulagsstjóri ríkisins:
Aðgengi og notkun grunn-
upplýsinga við skipulagsgerð
14.40
Magnús Sædal Svavarsson,
byggingarfulltrúi í Reykjavík:
Ekki að benda á mig,
ég var ...........
Fundarstjóri verður Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent í stjórnun og
leiðtogafræðum við Háskóla Íslands.
Aðgangur er ókeypis en vinsamlegast tilkynnið þátttöku á netfangið nbd@nbd.is
15.10
Kaffi
15.30
Sverrir Bollason,
umhverfisverkfræðingur hjá VSÓ:
Staðið á byggingavaktinni
16.00
Þórólfur Geir Matthíasson,
prófessor í hagfræði við
Háskóla Íslands:
Kanarífuglar, hegrar, bólur
og hrun
Umræður
NBD
Norrænn byggingardagur býður til opins fundar
í Norræna húsinu þriðjudaginn 6. október kl. 14.00–17.00
BILDERBERG
Group er talið vera
einn hluti af þessum
skuggastjórnvöldum,
sem kennd eru við
hótel, og allt frá stofn-
un þess árið 1954 hafa
verið einhver leynileg
og órjúfanleg tengsl á
milli Bilderberg og
æðstu stjórnenda Evr-
ópusambandsins. Það
var reyndar leyniþjón-
usta Breta MI6 sem setti Bilder-
berg á fót eftir tilmælum Royal
Institute of Inernational Affairs.
Áætlun leyniþjónustunnar var að fá
Joseph Rettinger til að verða síðar
meir einn af upphafsmönnum Evr-
ópuhreyfingarinnar til að skipu-
leggja Bilderberg Group sem tæki
þarna á bak við mismunandi stjórn-
völd í Evrópu og Ameríku. Hreyf-
ing þessi naut fjárhagsstuðnings
frá samtökum í New York undir
nafninu „American Committee on
United Europe“ en þessi samtök
voru á vegum CIA er hefur reynd-
ar ævinlega séð um vernd í kring-
um alla þessa leynilegu fundi,
ásamt lögreglu í viðkomandi landi
eða þar sem þessir fundir eru
haldnir.
Hverjir ráða og stjórna?
Á þessum leynilegu fundum
koma saman yfir 120 stór-
eignamenn, pólitíkusar og áhrifa-
menn, flestir ef ekki allir eru í
æðstu embættum. Embættismenn
frá þessari strengjabrúðu-
framkvæmdastjórn ESB koma
þarna saman hvað eftir annað,
menn eins og t.d. Carl Bildt, Olli
Rehn, Josquin Almunia Amann,
José M Dumo Baroso, Neelie Kro-
es og Andris Piebalgs svo einhver
nöfn séu nefnd. Elítan skoðar síðan
öll málefni og metur
þá menn sem hún vill
styðja. Clinton kom
reyndar á einn fund
árið 1991 og ári síðar
var hann kosinn sem
forseti. Þessi elíta var
reyndar nógu öflug til
að koma Mitterrand
enn og aftur inn í Ely-
see-höll. Elítan er
einnig nokkuð öflug í
að koma öðrum í
burtu, Margaret
Thatcher gerði sér
hins vegar grein fyrir
því að þeir vildu ekkert með hana
hafa, þar sem hún vildi ekki að
Bretland gæfi eftir fullveldi og færi
inn í ESB. Nú eins og áður segir
þá koma þarna saman stór-
eignamenn eins og t.d. David
Rockefeller fyrir Standard Oil,
drottningin Beatrix (Shell) og Pet-
er Sutherland (BP) ásamt öðrum
og hafa samráð um olíuverðið, ekk-
ert ósvipað því sem gerðist hérna á
Íslandi með olíusamráðið umtalaða.
Árið 1973 ákváðu Bilderbergarnir
að hækka verið um allt að 12 doll-
ara á tunnu. (The Bilderberg Gro-
up, Danile Estulin bls. 46.) Nú og
síðan hafa þeir verið að hækka
verðið, á fundinum 2005 var ákveð-
ið að hafa olíuverði eitthvað yfir 40
dollurum á tunnu, en fundinum árið
2006 ákváðu menn að hafa verðið í
kringum 150 dollara á tunnu (bls.
315). Þá koma saman þarna emb-
ættismenn og stóru mennirnir fyrir
alþjóðabankana, menn eins og t.d.
James D. Wolfensohn, Paul Wolfo-
witz (World Bank), Rato Y Fig-
aredo, Rodrigo de (IMF), Tom-
maso Padoa- Schioppa, Jean-
Claude Trichet (ESB Central
Bank), Franco Bernabe (Rothschild
Central Bank-elítunnar í Evrópu).
Bilderberg-elítan tekur síðan
ákvarðanir, eins og dr. John Co-
leman (fyrrverandi MI6) lýsir, og
það jafnvel hræðilegar ákvarðanir
eins og t.d. að: „…koma stjórnvöld-
um í Argentínu frá og í kjölfarið
koma á efnahagslegu hruni og
stjórnmálaóreiðu sem er skipulögð
af samstarfsmönnum Kissinger
með stuðningi Lord Carrington.
Við erum einnig búnir að læra að
Argentínu-aðgerðin var skipulögð
af Aspen Institute í Colorado“ (bls.
45.)
Hvert stefna þeir?
Þannig er að nýir meðlimir í Bil-
derberg Group verða að gangast
undir þagnarskyldu og enginn má
gefa upp það sem rætt er um á
þessum fundum, eða hvað þá hvar
næsti fundur verður haldinn. Sá
maður sem ævinlega veit hvar
næsti fundur verður og er jafnvel
kominn á fundarstaðinn heitir Jim
Tucker, en hann hefur undanfarin
27 ár komið þeim á óvart með því
að mæta á fundarstaðinn, þeir hjá
Bilderberg hafa hins vegar ekki
haft upp á þeim manni er lekur
upplýsingum í Tucker. Árið 2002
sagði Tucker frá því að ákveðið
hefði verið að fara í stríð við Írak á
næsta ári 2003, og einnig að olíu-
verð myndi fara upp, og það hefur
ræst. Nú segir Jim eftir síðasta
fund sem haldinn var á Grikklandi
dagana 14.-17. maí sl.: „Þeirra
áætlun inniheldur að láta okkur
greiða CO2 skatt til Sameinuðu
þjóðanna“. Þá stendur til að flytja
Alþjóðaheilbrigðisstofnunina
(WHO) undir aðra stofnun og síðan
á að flytja Alþjóðagjaldeyrissjóðinn
(IMF) undir alheims-peninga-
málastofnun.(www.euro-med.dk/
?p=8592) Bilderberg Group hefur
hugsað sér að senda sendinefnd til
Írlands í þeim tilgangi að fá pólitík-
usana þar til að samþykkja Lisa-
bon-sáttmálann. Náinn samstarfs-
aðili Tuckers til margra ára. Daniel
Estulin, segir að: „Bilderbergarnir
voru að ræða saman hvort sökkva
ætti efnahagnum hraðar eða draga
fram langa sársaukafulla kreppu.
Geithner aðalritari og Carl Bildt
vildu frekar samdrátt, en samt ekki
10 ára samdrátt … að hluta til
vegna þess að þeir vildu ekki
skemma sinn eigin iðnað, eða þar
sem þeir vildu koma á alheims-
vinnumálastofnun og alheims-
peningamálastofnun.“ (infow-
ars.com). Allt þetta með ESB og
þessar stofnanir er hluti af þessari
hnattvæðingu, eða átt til nýrrar
heimsskipunar (e. New World Or-
der) er þeir hafa hugsað fyrir sig
og sína innan Bilderberg Group.
Hið leynda afl á bak við
ESB og mörg stjórnvöld
Eftir Þorstein Sch.
Thorsteinsson »Elítan skoðar síðan
öll málefni og metur
þá menn sem hún vill
styðja.
Þorsteinn Sch.
Thorsteinsson
Höfundur er formaður samstarfs-
nefndar trúfélaga fyrir heimsfriði.
ÞAU ERU hvorki
einsleitur hópur né
eru þau öll far-
andverkamenn, þau
eru heldur ekki
vinnuafl sem kemur
og fer eftir lögmálum
vinnumarkaðarins.
Þau eru venjulegt
fólk frá sex heims-
álfum og rekja upp-
runa sinn til 140
ríkja. Þau aðhyllast fjölbreyttar
lífsskoðanir, iðka mismunandi
trúarbrögð og koma frá ólíkum
menningarheimum. Þau vinna í öll-
um mögulegum og ómögulegum
störfum og til þeirra teljast silf-
urhafi frá síðustu Ólympíuleikum,
forsetafrúin og forstöðumenn
stofnana. Eins hafa þau mannað
stóran hluta af byggingariðn-
aðinum, fiskvinnslunni og um-
mönnunarstörfum. Þau eru út um
allt, eru 24.379 talsins og eiga það
sameiginlegt að vera kölluð inn-
flytjendur; 5.036 þeirra voru í
hreinu innflytjendahjónabandi eða
-sambúð í byrjun árs 2009 og 2.798
börn voru afrakstur samvistanna –
fleiri en allir íbúar Vestfjarða.
Þessi veruleiki er tiltölulega nýr
af nálinni hér á landi því reynsla
Íslendinga af innflytjendum er
takmarkaðri og annars eðlis en
annarra vestrænna ríkja. Miklir
fólksflutningar erlendis frá hófust
fyrst fyrir 10-15 árum. Frá árinu
1950 þar til um miðjan tíunda ára-
tuginn hélst hlutfall erlendra rík-
isborgara af mannfjölda um eða
undir tveimur af hundraði.
Á undanförnum áratug hefur
fjöldi erlendra ríkisborgara á Ís-
landi hins vegar stóraukist og
hlutfall þeirra af mannfjölda hefur
farið úr því að vera það næst-
lægsta á Norðurlöndunum í að
vera það hæsta, eða 7,6%. Innflytj-
endur eru að setjast hér að, þeir
eru ekki á förum heldur eru marg-
ir þeirra búnir að vinna sér inn
réttindi á við aðra launamenn á ís-
lenskum vinnumarkaði, þeir hafa
komið sér fyrir með fjölskyldum
sínum og fest rætur á landinu.
Þessi mikla fjölgun innflytjenda
á skömmum tíma hefur margt mis-
jafnt í för með sér. Ekki aðeins
hafa fordómar í garð þeirra vaxið
samhliða verri efnahag (og eru í
raun efni í sérstaka grein) heldur
er víða pottur brotinn. Atvinnu-
leysi meðal innflytjenda hefur auk-
ist mjög og er hlutfallslega tölu-
vert meira en hjá Íslendingum.
Fjöldi atvinnulausra innflytjenda
hefur 32-faldast á innan við ára-
tug. Í ágúst árið 2000 voru inn-
flytjendur 3% af at-
vinnuleysisskrá en í
ágúst árið 2009 var
hlutfall þeirra komið
upp í 11,50%. Í júlí sl.
var staðan sú að 23 af
hundraði þeirra sem
höfðu verið atvinnu-
lausir í ár eða lengur
voru erlendir rík-
isborgarar, eða tæp-
lega fjórðungur. Sam-
kvæmt grófu mati
Vinnumálastofnunar
voru u.þ.b. 16 þúsund erlendir rík-
isborgarar við störf hér á landi á
síðasta ári. Það gerir 9-9,3% af
vinnuafli í landinu. Á sama tíma
voru það erlendir ríkisborgarar
sem urðu fyrir rúmlega fjórðungi
allra skráðra vinnuslysa á Íslandi,
sem verður að teljast mjög hátt
hlutfall miðað við hlutdeild þeirra
á vinnumarkaði.
Víðar má sjá veika stöðu inn-
flytjenda. Hlutfall mæðra, sem
koma frá löndum utan Evrópu,
fara með forræði barns í aðeins
31,7% tilvika á móti 37% tilvika, ef
móðirin er íslensk. Þetta hlutfall
segir aðeins hálfa söguna. Faðir
fer með forræði í 1,2% tilfella þeg-
ar heildin er skoðuð en ef móðirin
kemur utan Evrópu fer faðir með
forræði í 11,9% tilfella. Mun víðar
í samfélaginu má sjá hallað á inn-
flytjendur, en kjarninn er sá að í
stað þess að bjóða fram aukna að-
stoð hafa Íslendingar að miklu
leyti hlunnfarið innflytjendur og
farið með þá eins og annars flokks
íbúa.
Þeir sem byggðu eyjuna fyrstir
manna voru jú innflytjendur og í
gegnum tíðina hafa erlendir rík-
isborgarar sest að á Íslandi og Ís-
lendingar gerst innflytjendur í
öðrum löndum. Íslendingar tekið
upp erlendan ríkisborgararétt og
erlendir ríkisborgarar tekið upp
íslenskan. Fólksflutningar á milli
svæða eða ríkja, í mismiklum mæli
þó, hafa átt sér stað eins langt og
sagan eygir. Saga mannkyns er
samtvinnuð fólksflutningum og leit
fólks að betri lífskjörum. Það
gleymist oft og mönnum hættir til
að líta á innflutningshaftastefnu á
fólki sem náttúrulögmál; þar sem
þú fæðist, eða jafnvel foreldri þitt,
þar áttu heima. Það er kyndug
mótsögn að samhliða hækkandi
röddum í þjóðfélaginu sem vill út-
lendinga aftur „heim“ – við þurf-
um að hugsa um okkur og okkar
fólk fyrst – þá hugleiða fjölmargir
Íslendingar að flytja til annarra
landa … Vonandi fá þeir betri
móttökur á erlendri grundu en er-
lendir ríkisborgarar fá á Fróni.
Af hverju ættu aðrar þjóðir að
taka okkur opnum örmum ef við
lokum hurðum á þær? Erum við,
þessar 300 þúsund hræður, eitt-
hvað betri og sérstakari en hinir
sex milljarðarnir eða svo sem
byggja þessa jörð? Það er mjög
óaðlaðandi í fari manna að vilja
ekki gera neitt fyrir neinn en
heimta allt í staðinn, en það er enn
neyðarlegra í fari þjóðar.
Ég geri ekki
neitt fyrir neinn
en þú átt að gera
allt fyrir mig
Eftir Ara Klæng
Jónsson
Ari Klængur Jónsson
» Á sama tíma og Ís-
lendingum finnst
sjálfsagt að flytja út í
leit að tækifærum heyr-
ast æ háværari raddir
sem vilja að útlendingar
fari „heim“ til sín
Höfundur er stjórnmálafræðingur.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn