Morgunblaðið - 04.10.2009, Side 43
Minningar 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 2009
✝ Jóhanna DýrunnSigþórsdóttir
fæddist í Reykjavík
16. ágúst 1932. Hún
lést 19. september
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Sigþór G. Guðmunds-
son sjómaður, f. 1901,
d. 1983, og Sigríður
Jónsdóttir, f. 1904, d.
1992. Systur Jóhönnu
Dýrunnar eru Kristín
María, f. 1930, d.
1985, Steinunn Jóney,
f. 1934, og Jónína, f.
1945.
Jóhanna Dýrunn giftist 6. júní
1952 Óskari Hrútfjörð Guðmunds-
syni, f. á Borðeyri við Hrútafjörð
1931. Börn þeirra
eru: 1) Ólafur Hrút-
fjörð, f. 6.12. 1951,
kvæntur Ágústu Þor-
kelsdóttur. 2) Sig-
urður Helgi, f. 4.10.
1953, sambýliskona
Anna Guðný Guð-
mundsdóttir. 3) Sig-
þór Guðmundur, f.
5.10. 1954, kvæntur
Gyðu Mörtu Ingva-
dóttur. 4) Ragnheiður
Guðbjörg, f. 19.12.
1956, gift Jóni Ágústi
Guðjónssyni. 5) Sig-
ríður, f. 23.11. 1962, gift Olgeiri
Þorvaldssyni.
Útför Jóhönnu Dýrunnar fór
fram í kyrrþey.
Ég heiti Kristín Jósefína Páls
hljómar í eyrum mínum þegar ég
hugsa til Hönnu frænku, sé hana
fyrir mér skælbrosandi með gítarinn
í stofunni heima hjá sér og unga
aðdáendur að hlusta með hrifningu.
Ég og mín systkini vorum í þessum
aðdáendahópi og seinna okkar börn.
Þau voru mörg lögin sem
Hanna raulaði fyrir okkur og eru
það einu lögin sem ég kann vel og
get raulað fyrir mín börn. Það var
alltaf gott að koma til Hönnu frænku
og Óskars og ég man eftir því þegar
við systur trítluðum á hverjum degi
niður til þeirra bara til að segja hæ
og fá smá mola, árið sem við bjugg-
um í sama stigagangi á Flyðrugr-
andanum.
Það var fastur liður í Reykjavík-
urferðum að rölta niður í bæ og
koma við í Tvistinum og heilsa uppá
Hönnu á meðan hún vann þar, og
stundum fékk maður að rölta með
henni Laugaveginn.
Þegar ég var átján ára ung móðir
og bjó á Grenimelnum, var Hanna
dugleg að koma í heimsókn og var
mér góð aðstoð, svona ungri langt í
burtu frá minni mömmu. Hún
kenndi mér margt og var alltaf
tilbúin þegar ég leitaði til hennar.
Þegar ég hélt upp á 1 árs afmæli
dóttur minnar kom hún með fullt
fang af tertum og brauðtertunni
sinni góðu, og ekki stóð á henni þeg-
ar Svava systir hélt uppá tvítugs-
afmælið sitt, sendi þá tvær eða
þrjár brauðtertur til okkar svo
unga fólkið hefði nú eitthvað að
borða.
Hanna var mjög næm kona, fann
og sá meira en fólk jafnan gerir, það
var því oft fátt sem kom henni á
óvart. Margir skondnir atburðir lifa
í minningunni. Hún fór vel með það
og man ég eftir tveimur atvikum
sem ég varð stressuð yfir og hún
bað mömmu að tala við mig, þetta
yrði í lagi. Ég rengdi það ekki og
hleypti jákvæðninni að, enda hafði
hún haft svo oft rétt fyrir sér. Það
er gott að eiga góðar minningar um
góða frænku og lifa þær með mér
um ókomna tíð þó Hanna virðist
horfin okkur. Kær kveðja,
Dýrunn Pála.
Með örfáum orðum langar okkur
að minnast kærrar móðursystur
okkur, hennar Hönnu.
Margar góðar minningar koma
upp í hugann þegar við hugsum um
hana Hönnu en upp úr standa söng-
ur, sögur, gítar og gleði. Hanna hafði
fallega söngrödd sem hún notaði
óspart til að gleðja okkur krakkana
sem sungum með henni af innlifun
en hún hafði einstakt lag á að fá
yngstu kynslóðina með sér í söng. Ef
gítarinn var ekki við höndina var
næsta hljóðfæri gripið, hvort sem
það var munnharpa eða harmonikka.
Munum við alltaf hugsa til hennar
með hlýju þegar við syngjum fyrir
börnin okkar lögin hennar Hönnu.
Hún sagði okkur ótal sögur um
gamla daga þegar við vorum litlar og
voru þær ýmist sannar eða samdar á
staðnum sem skipti í raun engu máli,
við sátum spennt og hlustuðum á og
settum okkur í spor þeirra systra
þegar þær voru litlar og heiminn
sem þær ólust upp í, sem er ansi
ólíkur þeim heimi sem við lifum í í
dag. Hanna var sannarlega
skemmtilegur karakter sem gaman
var að hitta og þeir sem fóru á
Laugaveginn máttu gera ráð fyrir að
hitta hana ýmist eina eða með Ósk-
ari sínum, enda var það einn af föstu
punktunum í hennar tilveru að rölta
þangað og skoða mannlífið. Þegar
við vorum litlar vann hún í sjoppunni
Tvistinum og fannst okkur það æv-
intýri líkast að koma í heimsókn til
hennar þangað og fá að fara á bak
við búðarborðið og fá smágotterí.
Hanna var næm og las oft í bolla og
þegar við stækkuðum áttum við
margar góðar stundir með henni
þegar hún las í bolla fyrir okkur og
oft var bolli á hellunni, sem hún ætl-
aði að kíkja í síðar. Þrátt fyrir að við
frænkur færum hvor í sínu lagi upp á
spítala í heimsókn til hennar Hönnu,
þá eigum við báðar sömu minn-
inguna um hana er hún söng lag fyr-
ir börnin okkar og um stofuna ómaði
fallegur söngur. Þannig munum við
minnast hennar og þökkum fyrir all-
ar góðu stundirnar. Megi Guð blessa
minningu Hönnu frænku.
Auður og Svava.
Jóhanna Dýrunn
Sigþórsdóttir
AÐ SKRIFA MINNINGARGREIN
Sami skilafrestur er á greinum vegna útfara í kyrrþey.
Minningargreinar sem berast blaðinu innan tilskilins frests verða birtar
í blaðinu. Leitast verður við að birta þær á útfarardegi eða sem næst þeim
degi.Hvemargar greinar birtast í blaðinu á útfarardegi viðkomandi, ræðst
af stærð blaðsins hverju sinni.
Minningargreinar, sem berast eftir tilskilinn frest eða útfarardag,
verða eingöngu birtar á vefnum á www.mbl.is/minningar. Tilvísun á
vefslóðina verður í greinum eða æviágripi sem birtast í blaðinu.
Netgreinarnar eru öllum opnar.
Þeim, sem vilja fá birta minningargreinar í Morgunblaðinu,
er bent á að skilafrestur til birtingar í blaðinu er á hádegi
tveimur virkum dögum fyrir útfarardag, þ.e.:
Birtingardagur Skilatími
Mánudagsblað Hádegi föstudag
Þriðjudagsblað Hádegi föstudag
Miðvikudagsblað Hádegi mánudag
Fimmtudagsblað Hádegi þriðjudag
Föstudagsblað Hádegi miðvikudag
Laugardagsblað Hádegi fimmtudag
Morgunblaðið birtir minningargrein-
ar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari upp-
lýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út. Grein-
ar, sem berast eftir að útför hefur farið
fram, eftir tiltekinn skilafrests eða ef
útförin hefur verið gerð í kyrrþey, eru
birtar á vefnum, www.mbl.is/minning-
ar. Æviágrip með þeim greinum verð-
ur birt í blaðinu og vísað í greinar á
vefnum.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að
senda lengri grein. Engin lengdar-
mörk eru á greinum sem birtast á
vefnum. Hægt er að senda örstutta
kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 lín-
ur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir
formáli sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýsingar
um hvar og hvenær sá sem fjallað er
um fæddist, hvar og hvenær hann lést
og loks hvaðan og klukkan hvað útförin
fer fram. Þar mega einnig koma fram
upplýsingar um foreldra, systkini,
maka og börn. Ætlast er til að þetta
komi aðeins fram í formálanum, sem er
feitletraður, en ekki í minningargrein-
unum.
Undirskrift | Minningargreinahöf-
undar eru beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinun-
um.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynn-
ingu er hún sjálfkrafa notuð með minn-
ingargrein nema beðið sé um annað.
Minningargreinar
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
MARGRÉTAR GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Leiðólfsstöðum,
Laxárdal í Dalasýslu,
áður til heimilis Hraunbæ 87,
Reykjavík.
Svanur Ingvason, Rán Einarsdóttir,
Sigmar Hlynur Sigurðsson, Anna Guðný Guðjónsdóttir,
Eygló Björk Sigurðardóttir,
Elfa Brynja Sigurðardóttir, Sigfús Haraldsson,
ömmubörn og fjölskyldur þeirra.
✝
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur hlýhug
og samúð við andlát elskulegs sambýlismanns
míns, sonar, föður, tengdaföður, afa og frænda,
SIGURÐAR KARLSSONAR
verktaka,
Fagurgerði 2b,
Selfossi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á gjörgæslu-
deild og lungnadeild Landspítalans í Fossvogi, svo og öllum öðrum sem
önnuðust hann í veikindum hans.
Guð blessi ykkur öll.
Ingunn Guðmundsdóttir,
Bergljót Snorradóttir,
Sigurður Dagur Sigurðarson, Sigríður Sif Magnúsdóttir,
Karl Áki Sigurðarson,
Snorri Sigurðarson, Fjóla Kristinsdóttir,
Gauti Sigurðarson, Kolbrún María Ingadóttir,
Þórarinn Karl Gunnarsson, Kolbrún S. Hansdóttir,
barnabörn og aðrir aðstandendur.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
GUÐJÓNS EYMUNDSSONAR
rafvirkjameistara,
Skúlagötu 20,
Reykjavík.
Hrafnhildur Bjarnadóttir,
Ingólfur A. Guðjónsson, Susan M. Guðjónsson,
Áslaug Sif Guðjónsdóttir, Karl F. Garðarsson,
Kolbrún Guðjónsdóttir, Jón Sævar Jónsson,
Hörður Guðjónsson, María Johnson,
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýju við fráfall móður minnar, tengda-
móður og ömmu,
SIGURLAUGAR SIGURÐARDÓTTUR
nuddkonu,
áður til heimilis
Einarsnesi 64,
Reykjavík.
Páll Árni Jónsson, Ásdís Björgvinsdóttir,
Jón Helgi Pálsson, Lilja Garðarsdóttir,
Kristbjörg Pálsdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
LÁRUS L. SIGURÐSSON
rafvirki,
Skúlagötu 20,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Áskirkju mánudaginn
5. október kl. 13.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans er bent
á Krabbameinsfélagið.
Jónína Þorsteinsdóttir,
Sigríður Ásta Lárusdóttir, Runólfur Gunnlaugsson,
Ágústa Lárusdóttir, Sigurður Þór Kristjánsson,
Þorsteinn Lárusson, Steinunn Eiríksdóttir,
Sigurður Lárusson, Ásta Björk Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.