Morgunblaðið - 04.10.2009, Side 45

Morgunblaðið - 04.10.2009, Side 45
Auðlesið efni 45 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 2009 Söfnunar- og ár-vekni-átak Krabba-meins-félagsins hófst með sölu á Bleiku slaufunni 1. október. Kveikt var bleikt ljós sem mun lýsa upp 1919-hótelið í Póst-hús-stræti í október-mánuði. Hótelið verður lýst bæði að innan og utan til að vekja athygli á brjósta-krabba-meini. Af því til-efni komu saman Guðrún Agnarsdóttir, for-stjóri Krabba-meins-félagsins, Hanna Birna Kristjánsdóttir borgar-stjóri, Sif Jakobsdóttir skart-gripa-hönnuður og Sigríður Snæbjörnsdóttir, formaður Krabba-meins-félagsins. Bleika slaufan, sem nú er seld í 10. sinn, er hönnuð af Sif Jakobsdóttur skart-gripa-hönnuði. Sala á slaufu, sem og háls-meni og eyrna-lokkum, fer fram 1. til 15. október. Söfnunar- og árvekni-átak hafið Morgunblaðið/Kristinn Alþingi var sett síðasta fimmtu-dag. Við þing-setningu sagði Ólafur Ragnar Gríms-son, forseti Íslands, að vonandi færi erfiðasta skeiði í síðari tíma sögu Íslendinga að ljúka. Fjár-lög 2010 voru lögð fram sama dag. Þau boða miklar skatta-hækkanir og niður-skurð á mörgum sviðum. Stein-grímur J. Sigfús-son fjár-mála-ráð-herra segir að takist að ná mark-miðum fjár-laganna verði fram-haldið auð-veldara. Ekki er búið að sam-þykkja fjár-lögin. Ný þjóð-hags-spá gerir ráð fyrir að kaup-máttur rýrni um 10,4% á þessu ári og 11,4 á næsta ári. Hann verður þá svip-aður og árin 1999 og 2000. For-svars-menn atvinnu-lífsins telja að fjár-lögin gangi ekki upp og hafi slæm áhrif á upp-byggingu atvinnu-lífsins. Ein erfiðustu fjár-lögin Fyrsta kvik-myndin í fullri lengd um efnahags-hrunið, Guð blessi Ísland, verður frum-sýnd næst-komandi þriðju-dag. Myndin er eftir kvik-mynda-gerðar-manninn Helga Felixson. „Þetta er graf-alvarleg mynd, mikil sorgar-saga,“ segir Helgi. Jón Ásgeir og félagar séu ekki aðal-atriðið heldur þeir Íslendingar sem urðu fyrir tjóni af völdum hrunsins, „venjulegt“ fólk. Í myndinni sé rætt við fólk sem misst hafi al-eiguna. „Mig langaði til þess að gera karakter-drama út frá ákveðnum persónum sem ég fylgi í gegnum fallið,“ út-skýrir Helgi og telur að myndin sé jafn-vel sú besta sem hann hafi gert. Jón Ásgeir Jóhannesson er afar ósáttur við vinnu-brögð Helga. „Við gerðum samning um það að við myndum vinna saman þetta efni og hann samþykkti það. Hann er hins vegar að svíkja það með því sem hann hefur gert núna. Ekki nóg með það þá er hann það ófor-skammaður að hann tekur upp þegar hann segist ekki vera að taka upp og það er eitthvað sem maður hefur aldrei lent í,“ segir hann. Guð blessi Ísland Morgunblaðið/RAX Angela Merkel tryggði Kristilegum demó-krötum (CDU) kanslara-sætið í þýsku þing-kosningunum síðast-liðinn sunnu-dag. Sigur-vegari kosninganna heitir hins-vegar Guido Westerwelle, leið-togi Frjálsra demó-krata. Eftir ellefu ár í stjórnar-and-stöðu eru Frjálsir demó-kratar á leið í stjórn. Angela Merkel hefur lýst yfir ein-dregnum vilja til stjórnar-myndunar með Frjálsum demó-krötum og hún var því að vonum ánægð þegar hún lýsti yfir sigri í þing-kosningunum. Fylgið er samt tölu-vert lægra en fyrir fjórum árum og jafn-framt verstu niður-stöður Kristilegra demó-krata frá 1949. Þýska stjórn- in brot-lenti KR-ingurinn Björgólfur Takefusa er kominn í fá-mennan flokk íslenskra fótbolta-manna sem hafa skorað fimm mörk eða fleiri í leik í efstu deild. Hann er jafn-framt eini leik-maðurinn sem hefur gert öll fimm mörk síns liðs í leik í deildinni. Björgólfur tryggði sér marka-kóngs-titilinn í Pepsi-deildinni með því að skora öll fimm mörk KR í 5:2-sigri liðsins gegn Val. Björgólfur er einnig markakóngur efstu deildar karla í knatt-spyrnu í annað skipti á ferlinum. Hann skoraði 16 mörk fyrir Vestur-bæjarfélagið í sumar. Hann er jafn-framt fyrsti KR-ingurinn í níu ár sem hreppir marka-kóngs-titilinn. Björgólfur marka-kóngur Ögmundur Jónasson gekk á fund Steingríms J. Sigfússonar fjár-mála-ráðherra síðast-liðinn mið-viku-dag og greindi honum frá ákvörðun sinni um af-sögn úr embætti heilbrigðis-ráð-herra vegna Icesave-málsins áður en hann fór til fundar við Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis-ráð-herra og baðst lausnar. Tals-menn stjórnar-flokkanna full-yrða að stjórnin njóti fulls stuðnings en Icesave veldur mikilli óvissu. Á þing-flokks-fundi Vinstri-hreyfingarinnar – græns fram-boðs var sam-þykkt að Álfheiður Ingadóttir tæki við ráð-herra-embættinu af Ögmundi. Þetta er fyrsta breytingin sem gerð er á ríkis-stjórninni frá því hún tók við völdum í maí. Ögmundur sagði af sér Álfheiður Ingadóttir Mörg hundruð manns létu lífið á Samóa-eyjum þegar jarðskjálfti upp á 8 stig á Richter varð undir hafs-botni í Suður-Kyrra-hafi. Flóð-bylgja skall á eyjunum í kjöl-farið. Heilu þorpunum skolaði í burtu. Sjónar-vottar sögðu að flóð-bylgjan hafi náð allt að 7,5 metra hæð. Þúsundir eru heimilis-lausar. Enn er leitað að fólki í rústunum og talið er að tala látinna eigi eftir að hækka. Þá varð einnig öflugur jarð-skjálfti undan ströndum indónesísku eyjarinnar Súmötru fyrr í vikunni. Fjöldi fólks lét lífið er það varð undir bygg-ingum sem hrundu. Skjálftinn var 7,6 á Richter og varð skammt frá borginni Padagn, sem er höfuð-staður Vestur-Súmötru héraðs. Búist við því að tala látinna eigi eftir að hækka mikið því enn eru þús-undir manna eru taldar grafnar undir húsa-rústum. Unnið er að björgunar-störfum Margir látast í öflug- um jarð-skjálftum Reuters

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.