Morgunblaðið - 04.10.2009, Page 47
Velvakandi 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 2009
Bórisfrísa
Eftir: Þorgrím Kára Snævarr
ÞESSI mynd af tveimur börnum á hestvagni, sem líklega hefur verið
„mjólkurvagn“, birtist í blaðinu NATIONAL GEOGRAPHIC MAGAZINE á
stríðsárunum. Ef einhver ber kennsl á börnin þá eru upplýsingar vel þegn-
ar. Vinsamlega hafið samband við Sævar Þ. Jóhannesson á netfangið iceba-
com@mmedia.is eða í síma 553-0717.
Stríðsáramynd
Guð blessi Ísland
ÞAÐ er sunnudags-
kvöld í júní 1968. Tíu
ára drengur situr við
eldhúsborðið á heimili
sínu í Reykjavík og
hlustar á útvarpið.
Gunnar Thoroddsen er
að ávarpa þjóðina eftir
að hafa tapað forseta-
kosningunum. Öllum á
heimilinu er brugðið,
enda höfðu foreldrar
hans kosið Gunnar.
Ávarpið er stutt en
áhrifamikið. Gunnar
endar það með því að
segja: „Guð blessi Ís-
land.“ Þessi orð brenna sig inn í
minni drengsins.
Árið 1968 var Geir H. Haarde 17
ára og hefur vafalaust hlustað á
þetta sama ávarp.
Það er síðdegis einn haustdag 40
árum síðar. Forsætisráðherra þjóð-
arinnar Geir H. Haarde er að halda
ávarp á mjög erfiðum tímum í sögu
þjóðarinnar. Drengurinn sem var tíu
ára árið 1968 er nú orðinn fimm-
tugur. Þegar líður á ávarpið minnist
hann ávarps Gunnars Thoroddsen
40 árum fyrr og hugsar með sér:
Skyldi hann biðja Guð að blessa Ís-
land í lok ávarpsins?
Og það gerði hann.
Einar Örn Thorlacius,
Hvalfjarðarsveit.
Varðandi rannsóknina
á Kumbaravogi
HVENÆR á þessi kjánaskapur að
taka enda? Af hverju er verið að láta
viðvaninga hvítþvo þetta mál á
skýrslu? Er ekkert réttlæti til fyrir
þessi börn sem illa var farið með?
Flestir foreldrarnir brugðust þeim,
barnaverndarnefnd brást þeim grát-
lega, ríkið brást þeim, Kumb-
aravogur brást þeim. Þessum börn-
um var misþyrmt
andlega, líkamlega og
sumum kynferðislega
og enn þann dag í dag
hefur engum verið
refsað. Það grátlegasta
af öllu er að þessi börn
eru fullorðin núna og
geta barist fyrir rétt-
læti, en samt er ríkið að
misþyrma og nauðga
þeim aftur. Skömm á
ykkur í stjórn sem geta
gert rétt fyrir þessi
börn en gera það ekki.
Bára Helena Millard.
Lausn vandans
FYRIR rúmum tvö þúsund árum gaf
Jesús Kristur uppskrift að fyr-
irmyndar samfélagi manna með
þessum orðum sínum: Allt sem þér
viljið að aðrir menn gjöri yður, það
skuluð þér og þeim gjöra. Mikið
kæmi sú forskrift sér vel fyrir ís-
lenskt samfélag á þessum tímum.
Best hefði þó reynst, ef þeir menn,
sem ollu hinum efnahagslegu
hryðjuverkum á Íslandi fyrir einu
ári síðan hefðu haft orð Krists í
heiðri og breytt eftir þeim.
Einar Ingvi Magnússon.
Eyrnalokkur tapaðist
EYRNALOKKUR tapaðist fyrir
u.þ.b. 10-14 dögum á Laugavegi, ein-
hvers staðar á milli nr. 30-80. Lokk-
urinn er sérkennilegur, silfurlituð
kúla, útskorin, með grænum steini
þar sem hann smellur í eyrað.
Eyrnalokkurinn hefur mikið tilfinn-
ingagildi og er sárt saknað.
Skilvís finnandi vinsamlega hringi
í síma 892-5216, eða 551-5219.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is