Morgunblaðið - 13.10.2009, Blaðsíða 25
Dagbók 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 2009
Sudoku
Frumstig
9 6 7
3
7 5 6 3
2 1
1 9 6
4 8
3 7 8
1 8 2 3
1 6
4 8 2 5
2 6 4
2 8 9
1 4
5 3
9 7
3 7 6
9 4 1
9
1 5 7
8 6
6 1 3
3 4 1
8 5
7 1 3 6
4 8 5
9 2 1
7 9 2 8 5 1 3 4 6
8 1 3 6 9 4 2 5 7
6 4 5 3 7 2 1 8 9
1 6 8 5 4 3 7 9 2
3 5 7 2 6 9 8 1 4
9 2 4 1 8 7 6 3 5
4 3 1 9 2 6 5 7 8
2 8 9 7 1 5 4 6 3
5 7 6 4 3 8 9 2 1
9 7 8 2 4 6 3 1 5
5 4 1 8 7 3 6 9 2
2 3 6 5 9 1 8 7 4
3 6 7 9 2 5 1 4 8
1 2 9 6 8 4 7 5 3
8 5 4 3 1 7 2 6 9
6 1 5 4 3 2 9 8 7
7 8 2 1 5 9 4 3 6
4 9 3 7 6 8 5 2 1
6 9 3 7 4 1 5 2 8
1 2 7 6 8 5 4 3 9
8 4 5 2 3 9 7 1 6
5 3 9 8 2 6 1 4 7
4 8 1 5 9 7 3 6 2
2 7 6 4 1 3 9 8 5
7 1 8 3 5 2 6 9 4
9 6 4 1 7 8 2 5 3
3 5 2 9 6 4 8 7 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 13. október,
286. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Enginn er þinn líki,
Drottinn! Mikill ert þú og mikið er
nafn þitt sakir máttar þíns. (Jeramía
10, 6.)
Það vakti athygli þegar knatt-spyrnulandslið Íslands, skipað
leikmönnum 21 árs og yngri, kom
saman til æfinga og keppni í liðinni
viku að Gylfi Þór Sigurðsson, leik-
maður Reading í ensku B-deildinni,
var ekki í hópnum. Gylfi hefur farið
mikinn með félagi sínu að und-
anförnu og þótti ýmsum fjölmiðlum
undarlegt að ekki væri rými fyrir
hann í liði Eyjólfs Sverrissonar.
Við nánari eftirgrennslan kom í
ljós að Gylfi hafði ekki gefið kost á
sér í leik gegn Dönum í sumar og
fyrir vikið héldu aðstandendur 21
árs-landsliðsins að hann vildi ein-
beita sér að Reading. Þetta upplýsti
Tómas Ingi Tómasson, aðstoð-
arlandsliðsþjálfari, í samtali við
Morgunblaðið í gær. Þar sagði hann
ennfremur: „Það birtust svo fregnir
af því í fjölmiðlum að Gylfi vildi
spila með landsliðinu og eftir að
hann og Eyjólfur ræddu saman
ákváðum við að velja hann í hópinn.
Ég fagna því að Gylfi vill vera með
okkur enda er hann virkilega góður
leikmaður.“
Gylfi mun m.ö.o. leika með liðinu
gegn Norður-Írum í dag.
Það sem vekur undrun Víkverja í
þessu máli er sú staðreynd að fjöl-
miðlar skuli þurfa að hafa milli-
göngu og eyða misskilningi sem
augljóslega hefur komið upp milli
Gylfa og Eyjólfs. Það er klaufalegt
af hálfu KSÍ.
x x x
Einum litríkasta sparkanda sam-tímans, Argentínumanninum
Martín Palermo, hefur heldur betur
skotið upp á stjörnuhimininn að
nýju. Á dögunum skoraði hann æv-
intýralegt mark með skalla fyrir lið
sitt, Boca Juniors, af um fjörutíu
metra færi og um helgina hélt hann
upp á endurkomu sína í argentínska
landsliðið eftir tíu ára fjarveru með
því að tryggja liðinu sigur á Perú í
undankeppni HM í uppbótartíma.
Fyrir vikið eygja Argentínumenn
ennþá von um að tryggja sér þátt-
tökurétt í lokakeppninni á næsta
ári. Það er gleðiefni enda yrði
keppnin ekki sú sama án Diegos
Maradonas, Lionels Messis – og
Martíns Palermos. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 hrukkótt, 4 fá-
skiptin, 7 slítur, 8 tröll-
um, 9 fljót að læra, 11
forar, 13 skriðdýr, 14
mynnið, 15 skraf, 17 rót-
arávöxtur, 20 ótta, 22
skaut, 23 bækurnar, 24
þula, 25 töngunum.
Lóðrétt | 1 grobba, 2
minnugur misgerða, 3
bygging, 4 ytra snið, 5
veikt, 6 komast áfram, 10
uppnám, 12 hnöttur, 13
bókstafur, 15 hörfar, 16
kjánum, 18 hamslausan,
19 nem úr gildi, 20 kæpa,
21 lýsisdreggjar.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 þrifnaður, 8 fúsks, 9 dunda, 10 tía, 11 reisi, 13
nærri, 15 fells, 18 sigla, 21 kút, 22 ríkja, 23 Óðinn, 24
þrekvirki.
Lóðrétt: 2 rússi, 3 festi, 4 aldan, 5 unnur, 6 æfir, 7 bali,
12 sæl, 14 æli, 15 forn, 16 lokur, 17 skark, 18 stóri, 19
grikk, 20 Anna.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 Be7 4. cxd5 exd5 5.
Bf4 c6 6. Dc2 Bd6 7. Bxd6 Dxd6 8. e3 Re7
9. Bd3 b6 10. Rf3 Ba6 11. O-O Bxd3 12.
Dxd3 Rd7 13. e4 O-O 14. e5 De6 15. Hae1
Hfe8 16. Rh4 Rg6 17. Rxg6 Dxg6 18. Dd2
Rf8 19. f4 Df5 20. Rd1 f6 21. Re3 Dd7 22.
Dd3 fxe5 23. dxe5 Re6 24. f5 Rc5 25. Dd4
Re4
Staðan kom upp á Pearl Spring mótinu
í Nanjing í Kína. Sigurvegari mótsins,
norska undrabarnið Magnus Carlsen
(2772), hafði hvítt gegn rússneska stór-
meistaranum Dmitry Jakovenko (2742).
26. Rxd5! Dxd5 27. Dxe4 Had8 hvítur
hefði einnig staðið til vinnings eftir
27…Dxa2 28. f6. 28. e6 Dxe4 29. Hxe4
Hd6 30. g4 Kf8 31. g5 hvítur hefur nú
léttunnið tafl. 31…Ke7 32. Kg2 Hd5 33.
Kg3 Kd6 34. h4 c5 35. f6 gxf6 36. gxf6
Hd3+ 37. Kh2 Hd2+ 38. Kh1 og svartur
gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Vafasamir eiginleikar.
Norður
♠K104
♥75
♦ÁD96
♣Á742
Vestur Austur
♠D98532 ♠ÁG7
♥-- ♥G10864
♦G53 ♦K2
♣KG96 ♣D108
Suður
♠6
♥ÁKD932
♦10874
♣53
Suður spilar 3G.
Slægð og kænska eru vafasamir eig-
inleikar manna í siðferðilegu tilliti, en
við spilaborðið gilda aðrar leikreglur og
þar teljast slíkir lestir til kosta. Segja
sumir. Bruce Ferguson heitir banda-
rískur bragðarefur. Hann var í suður.
Félagi hans opnaði á 1♦ og austur kom
inn á 1♥. Ferguson taldi sektarpass frá-
leitt, því andstæðingarnir eiga ljóslega
mikinn spaða saman og gætu jafnvel átt
geim í þeim lit. Hann stökk í 3G, eins og
hann ætti allan heiminn!
Vestur kom út með lauf og Ferguson
gaf tvisvar, en tók þriðja slaginn á ♣Á.
Bað svo um „smátt“ hjarta úr blindum
og makker hans dró ♥5 að borðsend-
anum. Austur fylgdi grunlaus með
fjarka og Ferguson lét tvistinn undir
heima! Þar með voru átta slagir mættir
og sá níundi kom með innkasti á ♥9 í
lokin.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þér er frjálst að láta vaða og
gera mistök. En mundu að gera sömu
kröfur til annarra og þú gerir til sjálfs
þín.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú ert alvarlega þenkjandi núna og
þá er lag að sinna fyrirliggjandi verk-
efnum. Ef fólki finnst þú ekki nógu
ákveðinn þá mun það ekki taka neitt
mark á orðum þínum.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú vilt fá vilja þínum framgengt
í tengslum við eitthvað í sambandi við
peninga og eignir. Látið gott af ykkur
leiða, þannig öðlast líf ykkar fyllingu.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Ef þú leitar svara við einhverju
ættirðu að reyna að fá einhvern til liðs
við þig. Ef spenna er milli þín og þeirra
sem standa þér næst, líður þér illa.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú hefur látið margt reka á reið-
anum en nú verður ekki hjá því komist
að taka málin föstum tökum. Varastu því
aulafyndni og ódýr loforð.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Maki gæðir athafnir daglegs lífs
yndisleika og þokka, það er að segja ef
hann er rétta manneskjan fyrir þig.
Hugsun þín er í hálfgerðri móðu núna.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Ef tími er kominn fyrir breytingar
ert þú svo sannarlega reiðubúin. Þú hik-
ar samt við að skipuleggja, enda kemur
ekki öllum jafn vel saman þessa dagana.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það getur verið erfitt að út-
skýra málin fyrir öðrum þegar þeir eru
ekki inni í fræðunum. Gríptu tækifærið
sem gefst.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Ekki hika við að deila skoð-
unum þínum á stjórnmálum, trúmálum
og heimspeki í dag. Leiktu af fingrum
fram og vertu aftur sem barn.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Veröldin snýst í kringum vinn-
una núna, vertu yfirvegaður og láttu
fljótfærnina ekki skemma fyrir þér.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þér er lagið að ná árangri í
rannsóknum á nánast hvaða sviði sem er.
En það sem skiptir þig máli er að ná ár-
angri.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú lætur heillast af dularfullum
og töfrandi frásögnum í dag. Dagurinn
hentar því sérstaklega vel til að vinna
með börnum og til vinnu í skemmt-
anaiðnaðinum.
Stjörnuspá
13. október 1987
Kýr synti yfir Önundarfjörð,
frá Flateyri að Kirkjubóli í
Valþjófsdal. Hún hafði verið
leidd til slátrunar en reif sig
lausa og lagðist til sunds. Kýr-
in hét Harpa en eftir afrekið
var hún kölluð Sæunn.
13. október 1992
Haukur Morthens söngvari
lést, 68 ára. Hann var einn ást-
sælasti dægurlagasöngvari
þjóðarinnar í nær hálfa öld.
13. október 1995
Margrét Frímannsdóttir sigr-
aði Steingrím J. Sigfússon
naumlega í formannskjöri hjá
Alþýðubandalaginu með
53,5% atkvæða. Fjórum árum
síðar varð Steingrímur for-
maður Vinstri hreyfing-
arinnar græns framboðs.
13. október 2007
Þorvaldur V. Þórsson gekk á
tind Heklu og lauk þar með
við að ganga á hundrað hæstu
tinda landsins á árinu. „Þetta
hefur verið langt og strangt,“
sagði Þorvaldur í samtali við
Morgunblaðið, en hann varð
fimmtugur nokkrum dögum
síðar.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Aðalsteinn Leifsson og Jóhannes
Stefánsson frá Akureyri söfnuðu
flöskum í hverfinu sínu og styrktu
Rauða krossinn með ágóðanum af
söfnuninni.
Söfnun
„ÉG ætla að bjóða vinum og ættingjum í veislu og
veitingar,“ segir Hallgrímur Hreinsson, verktaki á
Dalvík. Hann er sextugur í dag, en veislan stóra
verður haldin næstkomandi laugardag á Rimum í
Svarfaðardal. „Það er enginn kreppudansleikur
hérna,“ segir hann og skellihlær. Í dag ætlar hann
að vera hógvær, eins og hann orðar það sjálfur, og
bjóða bara þeim nánustu heim í kaffi. Á laugardag-
inn á hann hins vegar von á fjölda manns.
„Þegar ég var fimmtugur hélt ég líka stóra
veislu,“ segir hann og býst við miklu stuði á laug-
ardaginn. Aðspurður hvort einhver einn afmælisdagur standi upp úr
kveður hann nei við. „Mér þykir bara gaman að lífinu og búið!“ segir
hann með áherslu. „Ég er verktaki og þekki orðið gríðarlega margt fólk
sem ég hef kynnst í gegnum lífið.“
Hallgrímur byrjaði sem bifreiðarstjóri en endaði með því að eiga
nokkra bíla og nokkrar vélar, er nú með „nokkra kalla í vinnu“. Hann
segir að nóg sé að gera á Dalvík.
Haustið kom snemma á Norðurlandinu, að sögn Hallgríms. „En það er
að skána hjá okkur núna, það er þriggja stigi hiti og logn núna. Snjórinn
er farinn úr byggðinni en er enn í hlíðum,“ segir hann. sia@mbl.is
Hallgrímur Hreinsson sextugur
Finnst gaman að lífinu
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is