Morgunblaðið - 13.10.2009, Side 8

Morgunblaðið - 13.10.2009, Side 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 2009 fyrst og fremst ódýr! ORA FISKIBO LLUM kr. stk.279 ORA fis kibollur kr. stk.299 ORA fis kibollur m/sós u ÞRIÐJUDAGS TILBOÐ Á FRÉTTASKÝRING Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is „SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ þarf að vera djarfara gagnvart rík- inu,“ sagði Páll Rúnar Mikael Kristjánsson, lögmaður sem starfar fyrir Félag stórkaupmanna, á mál- fundi í Háskólanum í Reykjavík í gær. Hann sagði erfitt að fá stofn- unina til að grípa til aðgerða, vegna mála sem hljótast af efnahags- hruninu og yfirtöku banka á mörg- um gjaldþrota fyrirtækjum. „Sam- keppniseftirlitið má ekki vera lint vegna þess að opinberir aðilar eiga í hlut. Það verður að taka með sama hætti á þeim og einkaaðilum,“ sagði Páll. Fundurinn var á vegum Lög- réttu, félags laganema, og var fundarefnið hvort óbein aðkoma ríkisins að atvinnurekstri á sam- keppnismarkaði sé réttlætanleg, eða brot á samkeppnislögum. Páll gagnrýndi einnig bankana fyrir að taka fyrirtæki yfir án þess að hug- leiða aðrar leiðir . Ekki einu sinni skoðað „Var það metið áður en Penninn var yfirtekinn af Kaupþingi hver munurinn væri á ábatanum af því að yfirtaka fyrirtækið annars vegar og setja það í gjaldþrotaskipti hins vegar? Það var aldrei gert.“ Vitnaði hann í Finn Sveinbjörnsson, banka- stjóra Nýja Kaupþings, um það. Ekki væri sjálfgefið að bankar ættu að yfirtaka fyrirtæki á sam- keppnismarkaði og þeir þyrftu því að leggja svona lagað niður fyrir sér áður en ákvörðun væri tekin um yfirtöku. Nefndi hann einnig yfirtöku Landsbankans á Húsa- smiðjunni sem dæmi. „Bankarnir álíta alltaf að tveir fuglar í skógi séu hagkvæmari en einn í hendi,“ sagði Páll. Með því vísaði hann í að bankarnir yfirtækju fyrirtæki með væntingum um virðisaukningu síð- ar meir. Hins vegar væri ekki hægt að gera alltaf ráð fyrir slíkri virðis- aukningu, svipað og gert var við yf- irtökur í útrásinni. Um fundarefnið sagði Páll að- komu ríkisins réttlætanlega ef hún er grundvölluð á málefnalegum for- sendum, en ekki metnaði fyrir sam- keppnisrekstri og pólitískum hasar. Penninn og A4 séu dæmi um endurreist fyrirtæki sem hafi hald- ið áfram í harðri samkeppni og samkeppnisaðilinn, Office1 hafi fengið að kenna á því. Steininn hafi tekið úr þegar Ríkiskaup gerðu rammasamning við nýja Pennann, sem er í óbeinni ríkiseigu, um rit- föng fyrir ríkisstofnanir. Páll lagði áherslu á að málsmeðferð hjá Sam- keppniseftirlitinu þyrfti að vera hröð, svo eitt fyrirtæki geti ekki „murkað lífið úr samkeppnisaðilum á meðan stjórnvaldið tekur málið til skoðunar.“ Gjaldþrota og markaðsráðandi Helga Melkorka Óttarsdóttir, lögmaður hjá Logos sagði mörg fyrirtæki öðlast forskot þegar bankar tækju þau yfir. „Má telja að það fyrirtæki teljist í markaðs- ráðandi stöðu með þetta forskot, jafnvel þótt það sé ekki með mestu markaðshlutdeildina,“ sagði Helga. Þetta væri nokkuð sem yrði að huga mjög vel að. „Viðkomandi fyr- irtæki þarf þá að passa að misnota ekki þessa markaðsráðandi stöðu,“ bætti hún við. Sagðist hún ekki telja að breyta þyrfti beitingu eða túlkun sam- keppnislaganna vegna ástandsins. Hins vegar þyrfti að bregðast við aðstæðunum með því að setja alltaf skilyrði við yfirtökur og samruna, ekki ósvipað því sem Samkeppn- iseftirlitið gerði þegar stór hlutur í Icelandair var yfirtekinn af Ís- landsbanka. „Þunginn í þetta eft- irlit þarf að koma í gegnum skilyrði við yfirtökur.“ Ríkið óheft í samkeppni  Fyrirtæki geta öðlast ráðandi stöðu við yfirtöku banka þótt aðrir hafi meiri markaðshlutdeild  Samkeppniseftirlitið sagt hlífa ríkinu en ekki einkaaðilum Morgunblaðið/Ingo Ríkið endurreisti Pennann, skellti honum aftur út í samkeppnina og gerði svo samning við hann um ritföng. Þarf Samkeppniseftir- litið að ganga harðar fram gegn móðurfélaginu, ríkinu? „Ég hafna því,“ segir Páll Gunnar Pálsson, for- stjóri Samkeppnis- eftirlitsins, spurður hvort stofn- unin sé ekki linari við aðr- ar stofnanir hins opinbera, heldur en við einkafyrirtæki. „Það leið ekki lengri tími en til 12. nóvember í fyrra að við gáfum út sérstakt álit sem beint var til banka í ríkiseigu með tilmælum um hvað þeir ættu að hafa til hliðsjónar þegar þeir tækju ákvarðanir um framtíð fyrirtækja á samkeppnismörkuðum. Við höfum verið að fylgja eftir þeim tilmælum og meginreglum, sem þar koma fram, við bank- ana.“ Páll segir eftirlitið ekki geta rekið öll mál samtímis og af sama krafti, sökum smæðar sinnar. Um 100 mál eru þar til meðferðar hverju sinni. Það verði að forgangsraða málum eftir því hvaða markaðir eigi í hlut og hversu brýn málin séu. Þá sé alltaf vel þegið að þeir sem telji á sér brotið geti skýrt mál sitt og vísað fram gögnum svo málsmeðferð þurfi ekki að taka langan tíma. Eins hafi verið teknar bráðabirgðaákvarðanir á þessu ári, til að flýta fyrir mál- um Páll samsinnir því hins vegar að fyrirtæki geti öðlast mark- aðsráðandi stöðu við það að vera bjargað af banka. „Það hef- ur ekki verið staðreynt ennþá, en viðbúið er að þetta gerist í einhverjum tilfellum.“ Þá þurfi meðal annars að skoða efna- hagslegan styrkleika viðkomandi fyrirtækis og bakhjarla þess, til dæmis bankans, til að ákvarða hvort það hefur markaðsráðandi stöðu. Talsvert sé um ábend- ingar sem tengjast bönkunum. Þær hafi færst mikið í vöxt og þeim sé sinnt eins og hægt sé. Hafnar því að ekki sé tekið á þeim opinberu Páll Gunnar Pálsson VERÐ á innkaupapokum í Bónus hefur verið hækkað um þriðjung, úr fimmtán krónum í tuttugu. Verðið er hins vegar óbreytt í Krónunni og er enn fimmtán krón- ur. Að sögn Guðmundar Marteins- sonar, framkvæmdastjóra Bónus, rennur allt andvirði innkaupapok- anna eftir sem áður í svonefndan Pokasjóð, sem úthlutar fénu til góð- gerðar-, menningar- og æskulýðs- mála. Hann segir að verð pokanna hafi nú verið óbreytt um margra ára skeið en pokarnir tvöfaldast í verði í innkaupum á síðustu misserum. Guðmundur bætir því við að von sé á nýjum umhverfisvænum tau- pokum hjá Bónus, sem verði marg- nota. Þar að auki séu gulu plaspok- arnir sterkir. „Við hvetjum fólk til að koma með pokana aftur í búðina og nota þá aftur og aftur,“ segir Guðmundur. Kristinn Skúlason, rekstrarstjóri Krónunnar, segir að verið sé að skoða hversu lengi verði hægt að halda sama verði á pokunum hjá þeim. Hluti af andvirði þeirra renn- ur í svonefnda Norvíkursjóð, sem gegnir svipuðu hlutverki og Poka- sjóður. onundur@mbl.is Morgunblaðið/Jim Smart Dýrari Plastpokarnir í Bónus hafa hækkað úr 15 krónur í 20. Hærra verð á plast- pokunum í Bónus „ÞRÁTT fyrir að erlendir aðilar telji þjóðina ramba á barmi gjald- þrots er ekki óhugsandi að íslend- ingar gætu staðgreitt útistandandi skuldir vegna Icesave. Þetta er skoðun Viðskiptaráðs Ís- lands sem setur fram hugmyndir um að lífeyrissjóðirnir komi að samningaborðinu við úrlausn Ice- save-deilunnar. Fjallað er ítarlega um þessa og fleiri hugmyndir um þátttöku lífeyrissjóðanna í end- urreisnarstarfinu í Skoðun Við- skiptaráðs. „Sú fjárhæð sem nýtt væri til greiðslu kæmi frá lífeyrissjóðum landsins sem myndu veita ríkissjóði Íslands erlent lán. Lánið væri fjár- magnað með sölu á erlendum eign- um sjóðanna, en þær námu um 2,9 ma. evra í lok júlí 2009. Það er ljóst að um gjörbreytta nálgun á málið væri að ræða, en þrátt fyrir það eru margir kostir fólgnir í þessari leið,“ segir í umfjöllun VÍ. Losa mætti erlendar eignir sjóðanna með litlum afföllum Bent er á að að því gefnu að losa mætti erlendar eignir sjóðanna með tiltölulega litlum afföllum megi ætla að erlendar eignir þeirra færu langt upp í heildarskuldbindingarnar. „Væri þessi leið farin myndi ís- lenska ríkið skulda innlendum líf- eyrissjóðum í stað breska og hol- lenska ríkissjóðnum. Þannig væri búið að leysa Icesave-vandann gagnvart erlendum aðilum og hægt væri að einbeita sér að öðrum upp- byggingarverkefnum.“ Fulltrúar á vinnumarkaði og líf- eyrissjóða vildu lítið tjá sig um þessa hugmynd í gær og sögðu að hún hefði ekkert komið til tals. Lán lífeyr- issjóða til Icesave? VÍ setur fram hugmynd um staðgreiðslu á Icesave Samkeppni Markmið er að halda flestum fyrirtækjum gangandi og koma í veg fyrir fjöldaatvinnuleysi. Það getur þó haft óæskileg áhrif á samkeppni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.