Morgunblaðið - 13.10.2009, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 13.10.2009, Qupperneq 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 2009 P IP A R • P IP A R • P IP A R • P IP A R • IP A R P A R P A R A R A R A S ÍA • S Í S ÍA S ÍAA • A ••• 999999990951 90951 0951 0951 959 FYRIR ÍSLENDINGA SJÓFLUTNINGAR Í 95 ÁR | EIMSKIP | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | Fax 525 7009 | www.eimskip.is | Á MORGUN, miðvikudag, stendur Evrópu- réttarstofnun HR fyrir hádegis- fundi kl. 12-13 í stofu 201 í Há- skólanum í Reykjavík, Ofan- leiti 2. Peter Chr. Dyrberg, for- stöðumaður Evrópuréttarstofnun- ar, fjallar um sjálfsmynd aðildar- ríkja sambandsins og hvernig séreinkenni þjóðanna séu virt. Fyr- irlesturinn fer fram á ensku og er öllum opinn. Evrópusambandið og þjóðarsálin Á FÖSTUDAG nk. verður interRAI Mental Health ráðstefnan haldin á Hilton Reykjavík Nordica. Sjö þekktir fyrirlesarar og fræðimenn innan geðheilbrigðis- og öldrunar- mála á alþjóðavettvangi munu halda erindi á ráðstefnunni. InterRAI eru samtök rannsak- enda í yfir þrjátíu löndum sem starfa að því að bæta þjónustu fyrir ýmsa hópa fólks sem þarf á heilbrigðis- og félagsþjónustu að halda. Markmið og framtíðarsýn er að stuðla að gerð gagnreyndra klínískra vinnuferla og auðvelda stefnumarkandi ákvarðanir með því að safna og túlka hágæða upplýsingar um ein- kenni og útkomu fólks sem nýtur heilbrigðis- og félagsþjónustu á ýmsum stigum. InterRAI mælitækin geta stutt við gerð meðferðaráætl- ana, kostnaðargreiningar, árang- ursmælinga og gæðavísa. Nánari upplýsingar hjá Iceland Congress. Ráðstefna um geð- heilbrigði Á LAUGARDAG nk. verður efnt til hátíðar í Kópavogi í tilefni af fimm ára afmæli íþróttafélagsins Glóðar. Meginatburður hátíðarinnar verð- ur málþing um heilsu, hreyfingu og fæðuval. Málþingið verður í Gull- smáranum og hefst kl. 12.45. Fyrir- lesarar verða Janus Guðlaugsson, íþróttafræðingur, Sigmundur Guð- bjarnarson, prófessor emeritus og fyrrv. rektor Háskóla Íslands, og Ingólfur Sveinsson, geðlæknir. Einnig verður staðið fyrir kynn- ingu á ringó á menningarflötinni við Listasafnið í Kópavogi kl. 10. Kl. 11 taka Glóðarfélagar og nem- endur úr Kópavogsskóla þátt í rat- leik milli félagsmiðstöðvanna Gjá- bakka og Gullsmára. Keppt verður í Ringo á afmælinu. Íþróttafélagið Glóð er fimm ára MAURAÞÚFAN skipuleggur nú þjóðfund sem haldinn verður í höf- uðborginni 14. nóvember nk. Þar verður tölfræðilega marktæku úr- taki þjóðarinnar boðið til fundar að ræða gildismat og framtíðarsýn þjóðarinnar. Auk landsmanna, sem valdir eru af handahófi úr þjóð- skrá, munu um 300 fulltrúar helstu samtaka og stofnana sitja fundinn. Þjóðfundurinn er einstakt fram- tak og hefur aðferð sem þessi ekki verið reynd áður í lýðræðislegri stefnumótun heillar þjóðar. Í undirbúningshópi þjóðfundar er fólk sem er tengt víðtæku neti grasrótarsamtaka, stjórnmála og atvinnulífs en hefur einnig þekk- ingu og reynslu af framkvæmd viðburða af því tagi sem um ræðir. Mauraþúfan boðar til þjóðfundar STUTT Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is HUGSANLEGA verður varðskipið Óðinn ekki op- ið almenningi á næsta ári. Samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2010 er gert ráð fyrir algerri nið- urfellingu á framlagi til Hollvinasamtaka varð- skipsins Óðins, en það var fimm milljónir króna í ár. Eiríkur Jörundsson, forstöðumaður Sjóminja- safnsins í Reykjavík, segir þetta mjög slæmt fyrir safnið og skipið liggi undir skemmdum fái það ekki eðlilegt viðhald og hita og rafmagn úr landi. Eiríkur segir að Óðinn hafi verið mikill fengur fyrir safnið og kostnaður við að halda skipinu opnu og sinna eðlilegu viðhaldi hafi numið yfir tíu milljónum króna. Framlag til Hollvinasamtakanna hafi dugað fyrir tæplega helmingi kostnaðar. Peningar hafi einnig runnið frá safninu og svo hafi fyrrverandi starfs- menn Landhelgisgæslunnar unnið í sjálfboðavinnu um borð í Óðni. Án þeirra starfa hefði ekki verið mögulegt að halda skipinu opnu. Allt síðasta ár sóttu um ellefu þúsund manns Sjó- minjasafnið heim. Gestum hefur fjölgað mjög á þessu ári og í lok ágúst voru þeir orðnir 22 þúsund eða tvöfalt fleiri en í fyrra. Á heimasíðu safnsins er skorað á stjórnvöld að endurskoða fjárlagafrumvarpið, leggja lágmarks- framlag til vs. Óðins og koma þannig í veg fyrir að skipinu verði lokað almenningi, það látið eyðileggj- ast og sú margháttaða uppbygging sem átt hefur sér stað fari í súginn . Óvissa með Óðin vegna fjárskorts  Skipið liggur undir skemmdum fái það ekki við- hald  Yfir tvöföldun á gestafjölda sjóminjasafnsins Morgunblaðið/Heiddi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.