Morgunblaðið - 13.10.2009, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 13.10.2009, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 2009 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Bestu þakkirfyrir tölvu-póstinn.“ Þetta segir norski forsætisráð- herrann og undir- strikar að hann áttar sig á að starfssystirin á Íslandi taldi ekki að beiðni um tvö þúsund milljóna lán vinaþjóða á milli risi undir því að senda form- legt bréf. Enda var engin beiðni um lánafyrirgreiðslu á ferðinni. Þetta var eingöngu beiðni um flokkslega fyrir- greiðslu í innanbúðarslag á Ís- landi. Þetta var til „heima- brúks“ svo notuð séu orð Steingríms J. Sigfússonar, sem telur að æfðir stjórn- málamenn meini ekkert með því sem þeir segja við sína eig- in kjósendur. Sín á milli tali slíkir menn hins vegar eins og sannir skörungar og slíkt tal sé að marka. Sú tilfinning er farin að grafa um sig að forystumenn íslensku þjóðarinnar hafi um nokkurt skeið verið í vitlausu liði. Þeir séu eins og landsliðs- menn, sem óvænt taka að spila á eigið mark. Þeir halda ætíð á lofti sjónarmiðum Breta og Hollendinga í Icesave-málinu en gera lítið úr og snúa jafnvel út úr röksemdum, sem gagn- ast mega málstað Íslands. Það eru engin dæmi sem koma upp í hugann um þess háttar fram- komu, hvorki í samtímasögu né heldur þegar horft er lengra fram. Hvernig í ósköpunum getur á þessu staðið? Nú dettur eng- um manni í hug, að forystu- menn stjórnarflokkanna vilji þjóð sinni ekki vel. Langur starfstími þeirra í stjórn- málum hefur ekki bent til ann- ars en að þeim gangi að jafnaði gott eitt til, þótt lífsskoðanir þeirra og gildis- mat falli misvel að sjónarmiðum annarra, eins og eðlilegt er. En hvers vegna eru þessu reynda fólki svo mis- lagðar hendur, einmitt þegar svo stórkostlegir hagsmunir eru í húfi? Hvers vegna í ósköpunum sendir forsætis- ráðherra landsins „tölvupóst“ af þessu tagi til forsætisráð- herra Noregs? Auðvitað hefur henni þótt óþægilegt að for- ystumenn Framsóknarflokks- ins væru að vinna verkið, sem henni bar að sinna. Auðvitað hlýtur henni að vera ljóst að íslenskur forsætisráðherra, sem farið hefði til fundar með helstu vinaþjóðinni og lýst þeim ógnunum sem að landi hennar steðja, hefði í krafti síns embættis og þess umboðs sem embættinu fylgir átt margfalt meiri möguleika á já- kvæðri niðurstöðu en leiðtogi stjórnarandstöðuflokks. En þá leggur íslenski forsætisráð- herrann það eitt af mörkum að leggja stein í götu landa sinna, sem eru þó að reyna. Enn er því spurt: Hvers vegna í ósköpunum? Eina svarið sem glittir í bendir á ómerkilegar pólitískar skylmingar sem ráðherrann kýs að flytja út fyrir landsteinana þótt það sé augljóslega hagsmunum eigin þjóðar til mikillar bölvunar. Það getur því ekki verið svar- ið. En hvað þá? Er svo komið að leiðtogar þjóðarinnar hafi bugast og brotnað? Baráttu- krafturinn sé þrotinn og þeir séu farnir að trúa eigin áróðri um þá ógn og þær skelfingar, sem fylgi því að reyna að standa í lappirnar? Sé svo komið er aðeins eitt að gera og best að gera það fljótt. Hvað gekk forsætis- ráðherra til með bréf- inu til Stoltenbergs?} Bréf Jóhönnu F ramtíð Íslands er björt. Um þetta virðast erlendir sérfræðingar vera sammála og rökstyðja mál sitt með því að hér séu góðar auð- lindir – ekki bara fiskur heldur ekki síður endurnýjanleg orka í miklum mæli. Í þessu felast vonir Íslendinga um að rétta skjótt úr kútnum. Við ráðum ekki bara yfir silfri hafsins heldur einnig svartagulli framtíð- arinnar. Það var því þyngra en tárum tæki að fylgjast með framgangi Magma-málsins, þeg- ar stór hluti í HS orku var seldur til kanadísks orkufyrirtækis með tilheyrandi nýtingarrétti á orkulindum á Suðurnesjum til 65 ára. Slíkir gjörningar eru þó ekkert einsdæmi hér á landi – það er þekkt úr fjármálakreppum í öðrum löndum að stjórnvöld selji úr hendi sér samfélagslegar eignir þegar kreppir að tíma- bundið. Og nægir eru kaupendurnir sem sjá sér leik á borði að komast yfir ómetanleg verðmæti á eins konar brunaútsölu, vitandi að neyð seljandans verður þeirri aldagömlu visku yfirsterkari, að það sé ekki góð hagfræði að selja hænuna sem verpir gulleggjunum. En það er hægt að binda hendur okkar hvað varðar orkulindirnar á fleiri vegu en að leigja þær frá okkur til lengri tíma. Til dæmis er hægt að ráðstafa orkunni til endalausrar álframleiðslu líkt og íslensk stjórnvöld hafa gert með nánast trúarbragðakenndum hætti í gegnum tíðina. Í hvert sinn sem þörf er á innspýtingu í atvinnu- lífið upphefst gamla ál- og stóriðjumantran og þegar mótbárur heyrast um hvort ekki sé skynsamlegra að nýta hana í eitthvað annað eru menn fljótir að spretta upp og segja með þunga að þetta sé nú bara það eina sem sé fast í hendi. Skiptir þá engu þótt menn bendi t.d. á að rafbílavæðingin sé rétt handan við hornið. Í henni einni ættu að liggja óþrjótandi tækifæri fyrir Íslendinga til að verða sjálfbærari um orku, stórminnka innflutning á eldsneyti og þar með auka vöruskiptahagnað landsins. Menn geta svo giskað á hvort ekki fengist betra verð fyrir rafmagnið með þessu móti. Þar fyrir utan myndi þetta snarbæta kolefn- isbókhald þjóðarinnar svo allt tal um und- anþágur frá loftslagssamningum yrði hrein- lega óþarft. Þetta er þó aðeins eitt dæmi um aðra og hagkvæmari nýtingarmöguleika orkunnar, ört vaxandi tæknigeiri er annað. Þegar ákvarðanir um byggingu nýrra ál- vera eru teknar er því hollt að hafa í huga að orkan okkar er ekki óþrjótandi. Sigmundur Einarsson jarðfræðingur hefur sýnt fram á að álver á Bakka og í Helguvík myndu „soga til sín nær alla orkuna frá orku- lindum á Suður-, Suðvestur- og Norðausturlandi“, eða nánast alla hagkvæmustu orkuna í landinu, skv. grein hans á Smugunni. Sé þetta rétt geta menn spurt sig hvaðan rafmagnið á að koma sem í framtíðinni á að knýja áfram bílaflotann okkar eða verða undirstaða öflugs ís- lensks þekkingariðnaðar? Getur verið að með þröngri ál- klæddri framtíðarsýn séum við að króa okkur af í völund- arhúsi kreppunnar í stað þess að nýta okkur leiðirnar út úr því? ben@mbl.is Eftir Bergþóru Njálu Guð- mundsdóttur Pistill Að króa sig af í kreppunni STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Sóknarfæri í íslensku byggi og útflutningi FRÉTTASKÝRING Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is S ala í svínakjöti hefur dreg- ist saman og að sama skapi hefur verðið lækk- að. Hörður Harðarson, formaður Svínarækt- arfélags Íslands, segir að erlendir verkamenn hafi verið miklir neyt- endur svínakjöts, en þeim hafi fækk- að mikið, og framleiðendur hafi ekki tækifæri á útflutningi. Þess vegna hafi birgðasöfnun átt sér stað, en sóknarfæri felist í íslensku byggi og útflutningi. Hörður Harðarson segir að svína- kjötsmarkaðurinn sé mjög við- kvæmur og þegar miklar sveiflur séu í framboði og eftirspurn geti verið erfitt að stilla framleiðsluna af. Svínakjöt hafi verið megin uppi- staðan í fæðu erlendra verkamanna, sem starfað hafi við stórfram- kvæmdir hérlendis á nýliðnum árum, og því hafi þurft að auka kjöt- framboðið. Einhverjir hafi farið fram úr sér í framleiðslunni og þegar er- lenda starfsfólkinu hafi fækkað hafi kjötframboðið verið of mikið fyrir innanlandsmarkað. Útflutningur hafi ekki verið inni í myndinni og með auknu framboði og minni eftirspurn hafi verðið lækkað. Svínaræktendur útundan Tvíhliða samkomulag íslenskra stjórnvalda og Evrópusambandsins um búvöruviðskipti, sem gert var 2007, gagnast ekki svínaræktendum, að sögn Harðar. Hann segir að í samningnum sé kveðið á um að ár- lega megi flytja til Íslands 200 tonn af frosnu, beinlausu svínakjöti á lág- um tollum og annað eins af kjúkling- um. Svínakjötsinnflutningurinn jafn- gildi innlendri framleiðslu úr meira en 3.000 grísum, sem sé hátt hlutfall af landsframleiðslunni. Menn hafi vonast til að innlendir svínakjöts- og kjúklingaframleiðendur gætu flutt út svipað magn til Evrópusambandsins, en annað hafi komið á daginn, því út- flutningur á móti hafi aðeins verið heimilaður á lambakjöti, hrossakjöti, pylsum og ostum. „Á meðan stjórn- völd haga sér með þessum hætti þá býr greinin einfaldlega við það að hún hefur enga möguleika á að jafna framboð á innanlandsmarkaði með útflutningi og það leiðir einfaldlega til þess að verðin verða að lækka,“ segir hann. Miðað við ágústmánuð jókst svína- kjötsframleiðslan á 12 mánaða tíma- bili um 6,3% og fór í 6.673 tonn, en í ágúst var hún 543 tonn, sem er 5,4% minni en í ágúst í fyrra. Salan í ágúst var 528 tonn, sem er 7,9% minni sala en í fyrra, og salan frá ágúst til ágúst var 6.630 tonn. Það er 5,5% meiri sala frá því 12 mánuðina þar á undan. Hörður segir að sóknafæri séu til staðar með heimildum til útflutnings og aukinni notkun íslensks byggs í fóðrinu, en það er um 60-70%. Svína- bændur noti um 20 þúsund tonn af byggi og þar af aðeins um 1.000 til 1.500 tonn af íslensku byggi. Ljósmynd/Björgvin Þór Harðarson Kornrækt í Gunnarsholti Hörður Harðarson notar um 500 tonn af íslensku byggi á svínabúinu í Laxárdal en heildarnotkunin er um 1.000 til 1.500 tonn. Margir svínabændur standa illa vegna hækkandi framleiðslu- kostnaðar og lækkandi afurða- verðs, en þeir sjá til sólar með út- flutningi og aukinni notkun íslensks byggs í fóðrinu. Framleiðsla og sala á innlendu svínakjöti Ágúst 2007 – ágúst 2008 Ágúst 2008 – ágúst 2009 Fr am le ið sl a S al a Fr am le ið sl a S al a 6.673 kg 6.630 kg6.278 kg 6.284 kg Ágúst 2008 Ágúst 2009 574 kg 573 kg 543 kg 528 kg Dómstjórinn íReykjavík lýsti áhyggjum sínum yfir stöðu dómstólanna í við- tali hér í blaðinu. Jafnframt gerði hann grein fyrir því álagi, sem þegar væri orðið og hvað væri fyrirsjáanlegt. Voru þær upplýsingar allar ýkju- og æsingarlausar, svo sem vænta mátti. En þrátt fyrir það leyndi sér ekki að dómstjórinn hafði verulegar áhyggjur af því, hvernig að dómstólunum er búið, og hvað muni gerast þegar álagið á þá eykst, sem er fyrirsjáanlegt. Þrátt fyrir erfiða stöðu ríkis- sjóðs hefur verið ákveðið að leggja mikla fjármuni til rannsókna og undirbúnings sak- sóknar, ef tilefni reynast. Um þau útgjöld er góð sátt í þjóðfélaginu. Það er ábyrgðarleysi, ef dómstól- arnir verða skyldir eftir í fjár- hagslegu tómarúmi við þessar aðstæður. Því, eins og dóm- stjórinn benti á, þá mun ekki sakamálaþátturinn einn bæt- ast við heldur mun hrina málaferla vegna falls við- skiptalífsins og stórgjald- þrota vera í farvatninu. Við þessu verður að bregðast með eflingu dómstólanna, að minnsta kosti tímabundið, ella geta mikil vandræði hlot- ist af. Bregðast verður við vanda dómstólanna }Vandi dómstólanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.