Skólablaðið - 01.04.1944, Síða 11
H.O
SMÁSAGA
EFTIli
SIGRÍÐI INGIMARSDÓTTUR
Geislar morgunsólarinnar smugu inn um
gluggana á gamla Menntó í Lækjargötu og
dönsuðu á ljósum og dökkum kollum, sem
grúfðu sig yfir vélrituð blöð með 20 spurn-
ingum í efnafræði. Við kennaraborðið hafði
„yfirsetumaðurinn“ bækistöð sína og gegndi
sama starfi og Heimdallur með hinum fornu
ásum: Hann var útvörður réttvísinnar og
hafði gát á allri „hjálparstarfsemi".
Jón langi sat í miðröðinni, baðaður örvænt-
ingarsvita. Þarna var hann nú búinn að svara
9 spurningum með dyggilegri aðstoð marg-
víslegra minnisblaða, er hann hafði útbúið
þá um morguninn af sinni alkunnu hugvits-
semi. En svo kom röðin að tíundu spurning-
unni, sem fór þess á leit við Jón ræfilinn,
að hann skrifaði upp álnarlanga formúlu
fyrir tiltekinni efnablöndu. Hvernig sem Jón
leitaði í ruslakistu heila síns og hinu dýr-
mæta skjalasafni, er hann hafði fólgið í
jakkaerminni sinni, gat hann ekki fundið
nefnda efnablöndu. Hann leit í kringum sig
í von um að geta sent út neyðarmerki, en
allir virtust niðursokknir í að leysa úr spurn-
ingunum að undanskildum Lalla feita, sem
glápti út í loftið með sýnilegu tómlæti hins
veraldarvana ,,gatista“. „Ekki fæ ég neitt af
viti hjá svona hafragrautarhaus,“ hugsaði
Jón og bölvaði hraustlega í hálfum hljóðum.
En nú var kennarinn farinn að gefa honum
tortryggið auga, svo að Jón grúfði sig í
skyndi yfir blaðið og skrifaði í ákafa heila
runu af spakmælum, til þess að kennarinn
héldi, að hann væri ekki blásnauður innvortis
og hefði nóg að gera að festa spekina á
pappírinn. „Ber er hver að baki, nema sér
bróðir eigi,“ skrifaði Jón, og um leið datt
honum ráð í hug.
Fyrir aftan hann sat gáfnaljós og andleg-
ur leiðtogi bekkjarins, Palli dúx, og var að
gefa úrlausn sinni síðustu blessun, áður en
hann fengi „Heimdalli“ hana í hendur. Jón
gaf Palla vel úti látið spark framan í sköfl-
unginn undir borðinu, pikkaði svo á blaðið
sitt og glennti út alla fingurna fyrir aftan
höfuð sér. Allt þetta gerðist á örskömmum
tíma, en Palli skildi þegar, að Jón skorti efni-
við til þess að leysa úr tíundu spurningunni.
Romsaði hann því upp formúluna inn í bak-
ið á Jóni, sem lá fram á borðið og lézt vera
Skólablaðið
9