Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.04.1944, Blaðsíða 31

Skólablaðið - 01.04.1944, Blaðsíða 31
LA UFEY VALDIMARSDÓ TTIR: Minningar frá skólaárununi Tímarnir breytast. Arið 1910 útskrifaðist fyrsti kven- stúdentinn, sem hafði verið reglulegur nemandi í skúla. Nú í vor, 34 árum síðar, útskrifast 23 stúlkur sem stúdentar frá þessum skóla. Nemendur menntaskólans hafa beðið mig að skrifa einhverjar endurminningar frá skólaárum mínum í blaðið þeirra. Mér er ánægja að verða við bón þeirra, þótt ég hefði aldrei hugsað, að mér mundi sjálfri finnast ég nógu gömul til að skrifa endurminningar, fyrr en ég væri orðin sjötug. Þá gæti verið nógu gaman að staldra við og líta til baka og sjá lífið í gegnum öfugan kíki, — allt smátt og fjarlægt, en skirt. En þó að ég sé ekki komin á þennan heiðríkjunnar tind, þá skal ég láta það eftir ykkur, börnin góð, að skrifa mínar fyrstu endurminningar. Ég hef haft menntaskólahúsið fyrir aug- um daglega, frá því að ég man eftir mér, því að það blasir við úr glugganum heima hjá mér, og lengra hef ég ekki komizt í lífinu en að ég uni enn á þessum fornu slóðum. Þegar ég fór að stálpast, fór mér að detta í hug, að gaman væri að fara í Latínuskól- ann, sem skólinn hét þá. Stúlkur höfðu þá ekki leyfi til að vera þar reglulegir nem- endur, en árið 1887 var þeim leyft að ganga þar undir próf. Ein stúlka, Elinborg Jacob- sen, Færeyingur, hafði þó fengið að sitja í 6. bekk og tók stúdentspróf árið 1897. Árið 1904 urðu miklar breytingar hér á landi, — þá kom hér fyrst innlend stjórn. — Það ár voru svo miklar óeirðir í Latínu- skólanum, að rektor skólans fór frá. Þá var mikið rætt um umbætur á skólanum, 0g ný reglugerð gekk í gildi um haustið. Samkvæmt henni skyldi skólinn vera samskóli, þegar því yrði við komið, og náminu breytt, grískunám afnumið, en latína fyrst kennd í 4. bekk. Ég gekk inn í skólann vorið 1904 eftir gamla fyrirkomulaginu, en minn bekkur var fyrsti bekkurinn, þar sem náminu var hag- að eftir nýju reglugerðinni. Latínu hafði ég lært um veturinn hjá Þórði Sveinssyni, núverandi prófessor, en þá stúdent, en ekki var krafizt við inntöku- prófið, að gerður væri stíll. Að öðru leyti átti kunnátta mín úr barnaskólanum árið áður að duga. Ég var þó ekki sérlega sannfærð um, að þekking mín á námsgreinunum væri djúp, og mér er minnisstætt, að hrædd var ég daginn, sem ég gekk inn í skólann. Mér hafði ekki komið dúr á auga nóttina áður, og í skól- anum var þá róstusamt. Piltar voru þá að Skólablaðið 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.