Skólablaðið - 01.04.1944, Page 33
6. bekkur A er eingöngu skipaður stúlkum.
Efri röö jrá vinstri: Þórdís Ingibergsdóttir, Þórunn Þórðardóttir, Sigríður Magnúsdóttir, Sigríður Helgadóttir,
lirla Elíasdóttir, Rebekka Halldórsdóttir, Málfríður Bjarnardóttir, Bjiirg Valgeirsdóttir, Hólmfríður Pálsdótt-
ir, Sigríður Ingimarsdóttir, Herdís Vigfúsdóttir, Kristín Helgadóttir. — Neðri röfí frá vinstri: Sigríður Sigur-
jónsdóttir, Ingibjörg Sæmundsdóttir, Ólafía Einarsdóttir, Erna Finnsdóttir, Valborg Hermannsdóttir, Aslaug
Kjartansdóttir, Svanhildur Björnsdóttir, Inga Loftsdóttir. Dóra Haraldsdóttir.
heyrt talað um það, að háskalegt mundi vera
fyrir stúlkur að vera í skólanum og mundu
þær þá verða ókvenlegar og taka skaða á
sálu sinni. En ekki vissi ég, fyrr en ég kom
í skólann, að piltarnir höfðu verið hræddir
um að skemmast af samvistunum við stúlk-
urnar, því að einn af sjöttubekkingunum
þá sagði mér, að hann hefði óttazt, að pilt-
arnir hættu að vera riddaralegir, þegar þeir
umgengjust stúlkurnar daglega. Ég vil minn-
ast þess með þakklæti, að sjöttubekkingar
Latínuskólans gamla fyrir 40 árum voru
mér góðir. Þeir tóku að sér að kenna
mér allar venjur hins gamla skóla. Þeir
munu hafa gengizt fyrir því, að haldinn var
skólafundur, þar sem ég var spurð, hvort
ég vildi vera dús við skólann. Piltar þúuðu
þá allir hver annan, en þéringar voru ólíkt
algengari en nú gerist.
Piltar lásu þá inni í skólanum lexíur sínar,
og þótti mér gaman að koma inn í stofurnar,
þar sem þeir lásu. Létu þeir mig þá oft
Skólablaðid
31