Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.04.1944, Síða 54

Skólablaðið - 01.04.1944, Síða 54
Skúli töluðu mikið saman um veturinn og ræddu um, hvað gera mætti til að bæta úr því ófremdar ástandi, sem hér ríkti á flest- um sviðum. Árangurinn af þeim viðræðum var sá, að á alþingi 1751 var haldinn fundur með helztu ráðamönnum landsins innlend- um, og flutti Skúli þar mjög stórhuga tillög- ur, er miðuðu að stökkbreytingum í lífi þjóð- arinnar. Þar ráðgerði hann að koma hér á fót iðnaði, einkum ullariðnaði, taka aftur upp akuryrkju, koma á fót nýjum skipaflota með nýjum veiðiaðferðum, hefja skógrækt o. fl. Fundur féllst á þessar tillögur, og var stofn- að hlutafélag til að hrinda þessu í fram- kvæmd, Innréttingafélagið. Það hófst handa um framkvæmdir í þessu skyni, fékk styrk úr konungsgarði, tók við rekstri nýstofnaðr- ar vefstofu að Leirá, heimili Magnúsar lög- manns Gíslasonar, sem var einn af helstu forvígismönnum félagsins. Það hóf brenni- steinsnám í Krísuvík og ullariðnað í Reykja- vík og nágrenni. En brátt birtust margvís- legir erfiðleikar, sem ekki reyndist unnt að vinna bug á. Auk þess óttuðust kaupmenn- irnir samkeppnina við þetta félag og beindu skeytum sínum að því og reyndu allar leiðir til að koma því fyrir kattarnef. Meðan það átti við Hörmangarafélagið að etja, tókst því að halda hlut sínum, enda naut það á þeim árum styrks ýmissa danskra fyrir- manna, er vildu efla iðnað í ríki Danakon- ungs. En þegar Almenna verzlunarfélagið tók við verzluninni hér á landi, neyddist félagið til að selja því í hendur rekstur stofnananna. Undir handleiðslu verzlunarfélagsins eydd- ust þær og voru níddar niður. Þrátt fyrir ötula og ósérplægna baráttu Skúla, sem allt- af hafði verið lífið og sálin í rekstrinum og aldrei hlíft sjálfum sér, tókst kaupmönnun- um að koma þessum hættulega keppinaut fyr- ir kattarnef. Óbeint nutu þeir tilstyrks lands- manna sjálfra, sem gerðu Skúla á margan hátt erfitt fyrir, að vísu ekki með hreinni andstöðu, en með margvíslegum rógi og mis- skilningi. Þeir skildu hann ekki, hugðu hann starfa með eigin ágóða fyrir augum og brigzl- uðu honum um að draga til sín af fé stofn- ananna. En sannleikurinn var sá, að Skúli beið sjálfur mikið fjárhagslegt tjón af stofn- ununum, því að ekki ósjaldan varð hann að leggja þeim fé úr eigin vasa. Þótt stofnanirnar væru drepnar, blés hann með starfi sínu að glóðum framfara- og frels- ishugar þjóðarinnar og kveikti bál í sálu hennar, bál, sem smám saman brenndi fjötra einokunarverzlunar og Danaveldis af lim- um hennar og lýsti henni leiðina til sjálf- stæðis. Með starfi sínu endurvakti hann sjálfstraust þjóðarinnar og örvaði hana til baráttu fyrir endurheimt forns frelsis. Hann sýndi, að þrátt fyrir stundlega niðurlæging ætti hún enn menn, sem færir væru að taka stjórnvölinn í sínar hendur og stýra þjóðar- skútunni í höfn sjálfstæðis og fullveldis, stjórnarfarlegs og efnahagslegs. Árið 1794 dó Skúli fógeti. I hugum þjóð- arinnar lifir hann enn sem einn hennar beztu sona, ímynd þess vorhugar, sem fylgdi vakn- andi þjóðerniskennd þjóðar, sem átti glæsi- lega sögu langt að baki, ömurlega nútíð, en lagði orku sína fram í baráttu fyrir betri framtíð. 52 Skólablaðið

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.