Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.04.1944, Qupperneq 58

Skólablaðið - 01.04.1944, Qupperneq 58
ir þessum rollingum!" Systirin gerði enn heppni, að það var frí í skólanum í dag! Hún heiftarlegri atrennu, unz Sigríður varð leið á nöldrinu, og sagði með bæði eyrun í sím- anum: „Æ, jæja, þeir eru uppi í einhverri skúffunni minni, rífðu ekki til þar, skessan þín.“ Systirin æddi þá loks burt, og Sigríður gat í friði haldið áfram einu af hinum „óend- anlegu símtölum“ sínum. Að vísu lofaði hún bót og betrun í hvert skipti, er faðir hennar flaggaði með símareikningnum og talaði um að „láta svona skrafskjóður borga sinn hluta af útgjöldunum." — En er það nú ekki óbil- girni að krefjast þess af ungri stúlku, að hún neiti sér um nokkur símtöl á dag við vin- konur sínar, þegar alltaf er eitthvað skemmti- legt, annaðhvort framundan eða nýskeð. Um kvöldið kom henni bréfið í hug. Gam- an væri nú að lesa það aftur svona til að sjá hvernig ástin liti út á pappírnum. Hún opn- aði skúffuna — en bréfið var farið. — Þetta var hiklaust það óhugnanlegasta áfall, sem hún hafði orðið fyrir lengi. Henni datt fyrst í hug, að bróðir hennar hefði stolið því. Jú, það væri ekki leiðinlegt! Hann væri alveg vís til að lesa það upp við miðdegisborðið næsta dag. — Mitt í ósköpunum kom systir hennar í gættina. Hún opnaði munninn til að segja eitthvað — en það varð ekki sagt, því að í sama augnabliki mundi Sigga eftir sokkaláninu. Hún beinlínis flaug á systir sína. Og upp úr kafinu kom, að sú litla hafði ætlað að gera góðverk einu sinni á ævinni, þegar hún sá bréfið — og tekið það með sér niður á pósthús. „Guð minn almáttugur,“ veinaði Sigga. „Veistu, hvað þú hefur gert manneskja? Ég er eyðilögð, ég er — nei, þetta lifi ég ekki af.“ En þar eð lífsmarkið minnkaði ekki frekar, tók hún að hugsa mál- ið, og ákvað að lokum að fara niður á póst- hús morguninn eftir, þótt það væri veik von, og ná bréfinu, áður en það væri sent út. „Og hafðu þig nú í bælið,“ hvæsti hún á hinn laf- hrædda sökudólg, „þú hefur gert nóg af þér.“ — „Innanbæjarbréfin eru farin fyrir hálf- tíma síðan —“ Sigríður vissi varla, hvernig hún komst heim. Það var ekki hátt á henni risið, það sem eftir var dagsins. En sú vissi ekki, hvernig hún hefði farið að líta framan í Einar. Raunar var það aðeins gálgafrestur. Hann myndi fá bréfið í dag. í dag, drottinn minn, og allt í einu fann hún, að það var hreint ekki svo víst, að hann væri nokkuð hrifinn af henni, og nú sá hún augu hans hvíla á sér full fyrirlitningar og heyrði rödd hans: „Fyrr má nú vera skjátan." Henni vöknaði um augu. Aldrei, aldrei skyldi hún líta á karlmann framar. Þeir voru allir eins, allir. — Hún var sannfærð um, að óhamingjusamari kvenmaður en hún væri ekki til. Hún gat ekki einu sinni grátið! Það hefði þó verið öllu betra. Hún vissi ekki, hvernig hún átti að geta farið í skólann á morgun. Hún vissi yfirleitt ekki, hvað hún átti að gera framar. Öllu var lokið. Hann myndi fyrirlíta hana — vafalaust segði hann strákunum alla söguna, og svo myndi allur skólinn hlæja að henni. Hún gat vel trúað honum til þess. Karlmenn voru samvizku- lausir þorparar. — Auðvitað þorði hún að mæta honum á ganginum í fyrstu frímínútunum næsta dag! En hún ætlaði ekki að láta neinn bil- bug á sér finna. Hann mátti segja öllum skólanum frá þessu, ef hann vildi. Hún elskaði hann! — En Einar sýndi ekki nein merki þess,að hann hefði fengið eldheita ástarjátn- ingu frá henni. Hann heilsaði henni á alveg sama hátt og vanalega og varð bersýnilega alveg undrandi, þegar hún gekk fram hjá honum með kertan hnakka án þess að virða hann viðlits. Hann bara brosti í laumi. Aum- ingja stúlkan, hún hafði verið óheppnari en hún átti skilið. Bersýnilega hafði hún uppgötvað, að bréfið hafði verið sent til hans. Líklega hafði hún ekki meint helminginn af þessu. Að minnsta kosti hlaut einhver annar en hún að hafa sent bréfið til hans. Ungar stúlkur skrifa venjulega ekki ástarbréf sín aftan á símareikninga, — ef þær ætla að senda þau. Dóra Haraldsdóttir. 6. A. 56 Skólablaðið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.