Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.04.1944, Qupperneq 60

Skólablaðið - 01.04.1944, Qupperneq 60
FJÖLNIR Minningar frá skólaárunum Fjölnir, málfundafélag 1., 2., og 3. bekkjar, hefur haldið 12 fundi í vetur. Rædd hafa verið ýmis mál til gagns og skemmtunar. Sjálfstæðismálið hefur mikið verið rætt, en ekki hafa Fjölnismenn — frekar en aðrir — komizt að nokkurri niðurstöðu þar. Þá hefur verið talað um atvinnumál, kjöt- og mjólkurmálin og fleira. Þó hefur mest verið rætt um skólamál og hið eilífa deilumál: ástandið í félaginu, en þar eru skoðanir máls- metandi manna félagsins mjög breytilegar eftir því, úr hvaða bekk sú stjórn er, sem situr við völd, þegar umræðurnar fara fram. Félagar Fjölnis eru á annað hundrað, en áhugi flestra félagsmanna er fremur lítill, einkum þó stúlknanna, sem sjaldnast sjást á fundum, en „sitja heima og skrifa glósur fyrir strákana", enda munu þær þar hafa fundið rétt starf fyrir sig. Á flestum fundum félagsins hefur „Sváfn- ir“, blað þess, verið lesið upp. Framan af vetr- inum var það fremur þunnt, nokkrar skrítl- ur, sem hafa verið á hvers manns vörum síðustu 4—5 árin, en nú upp á síðkastið hefur mikið fjör færzt yfir blaðið. í haust var heitið verðlaunum fyrir 3 beztu greinar, sem í blaðinu birtust fram til jóla, en þátt- taka varð svo lítil, að aðeins ein verðlaun voru veitt, og fékk þau Friðrik Þórðarson úr 2. bekk. Stjórn félagsins skipa nú sex menn, þrír úr 3. bekk og þrír úr 1. bekk. Var stjórn þessi kosin skömmu eftir nýár, en í fyrrver- andi stjórn sátu 2. bekkingar. Núverandi stjórn skipa: formaður: Guðmundur Magnússon, vara-formaður: Ólafur Haukur Ólafsson, ritari: Einar Jóhannesson, gjaldkeri: Pétur Guðmundsson, meðstjórnendur: Sigríður Jóhannsdóttir, Þór Vilhjálmsson. Þór Vilhjálmsson 1. bekk. l'ramhald af bls. 32. Nú fer víst að verða búið það rúm, sem mér var ætlað í blaðinu ykkar. Mér þykir verst að geta ekki sagt ykkur frá því, sem gerðist, þegar átti að reka mig úr Framtíð- inni, þegar ég var í 5. bekk, því að endirinn varð sögulegur. Þegar fullar sættir voru komnar á, stakk ég upp á því, að reynt skyldi að fá hátíðasal skólans fyrir árshátíð félags- ins, og skyldi ég sjá um veitingarnar, kaffi 0. s. frv. Vissi ég, að við áttum hauk í horni, þar sem var frú Cathinka, kona Jóhannesar Sigfússonar yfirkennara, sem bjó í skólan- um og var ákaflega góð öllum nemendum skólans, sem hún náði til, enda hjálþaði hún í þetta sinn sem oftar. Hátíðir skólans höfðu verið haldnar úti í bæ undanfarin ár, því að salurinn fékkst ekki lánaður. En nú fékkst þetta leyfi, og veit ég ekki betur en að ýmsar hátíðir skól- ans hafi verið haldnar þar árlega síðan. Svo að þarna gat þó stúlka komið einhverju góðu til leiðar fyrir skólalífið! Það hefði verið gaman að ræða við ykkur um þetta mál: þátttöku stúlknanna í skóla- lífinu og hvers vegna hún hefur ekki orðið svo mikil sem æskilegt væri. Það tekur langan tíma að vinna á gömlum hleypidómum. Það er ekki að sjá, að þeir, sem skólanum stjórna, hafi áhuga á því, að hann sé samskóli, fyrst farið er í kringum reglugerð samskóla með því að búa til sér- staka bekki fyrir pilta og stúlkur. Ég hef fasta trú á því, að það sé nauð- synlegt til þess að heimurinn batni, að karl- ar og konur læri að starfa saman á öllum sviðum lífsins. Samskólarnir eru bezti und- irbúningurinn til þess. Sjálf er ég þakklát fyrir að hafa fengið að alast upp með drengj- um og veit, að ég hef haft af því ómetan- legt gagn. Minningarnar um skólaár mín eru eitt hið bezta, sem ég á í eigu minni. Fölskvalausari kunningsskap hef ég ekki þekkt síðan. 58 Skólablaðið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.