SunnudagsMogginn - 01.11.2009, Blaðsíða 3

SunnudagsMogginn - 01.11.2009, Blaðsíða 3
Við færum höfuðstól verðtryggðra húsnæðislána niður um 10% islandsbanki@islandsbanki.is www.islandsbanki.is Sími 440 4000 Þú getur lækkað höfuðstólinn á verðtryggðu húsnæðisláni Með skilmálabreytingu hjá Íslandsbanka býðst viðskiptavinum að lækka höfuðstól verðtryggðra húsnæðislána og breyta þeim í óverðtryggð lán í íslenskum krónum. Hvernig lækkar höfuðstóllinn og hversu mikið? Lækkunin verður um það bil 10% á stöðu höfuðstóls 1. nóvember næstkomandi. Sjá dæmi á mynd A. Hvað verður um lánið mitt? Lánið breytist í óverðtryggt húsnæðislán með 25 eða 40 ára lánstíma. Hverjir verða vextirnir? Hægt verður að velja á milli breytilegra og fastra vaxta. Breytilegir vextir í dag skv. vaxtatöflu eru 9,5%. Boðið verður upp á stiglækkandi afslátt frá þeim. Miðað við óbreytt vaxtastig þá yrðu vextir fyrsta árið 7,5% sem er vaxtaafsláttur upp á 2 prósentustig. Einnig er boðið upp á fasta vexti til þriggja ára sem í dag eru 9,0% að teknu tilliti til afsláttar. Get ég lækkað greiðslubyrðina á láninu mínu? Já, hægt er að sækja um greiðslujöfnun á óverð- tryggða láninu í þrjú ár, sem í flestum tilfellum lækkar greiðslubyrði lánsins umtalsvert. Að þremur árum liðnum hefur viðskiptavinur val um hvort haldið sé áfram í greiðslujöfnun eða ekki. Dæmi um lækkun á greiðslubyrði má sjá á mynd B. Hversu mikið lengist lánið í greiðslujöfnun? Það er óvíst en greiðslujöfnun ofan á höfuðstólsleið- réttingu hefur ekki þak á lengingu lánstíma. Hvenær get ég sótt um höfuðstólsleiðréttingu? Byrjað verður að taka á móti umsóknum 6. nóvember 2009 og verður hægt að sækja um til og með 18. desember 2009. Hverjir geta sótt um? Allir viðskiptavinir Íslandsbanka með verðtryggð húsnæðislán sem voru tekin fyrir 15. október 2008. Lánið þarf að vera í skilum. Hentar þessi lausn öllum? Nei, hver og einn þarf að vega og meta kosti og galla þess að breyta láni sínu með þessum hætti. Þessi lausn hentar sumum betur en öðrum en einna helst þeim sem hyggjast selja eign sína eða greiða upp húsnæðislán sitt á næstu misserum. Mun þetta kosta viðskiptavini eitthvað? Skilmálabreyting kostar kr. 5.500 auk þinglýsingar- gjalds en lántöku- og stimpilkostnaður er enginn. Íslandsbanki hvetur alla til að kynna sér þá kosti sem í boði eru og taka ákvörðun að vandlega athuguðu máli. Reiknivél, dæmi og ítarlegri upplýsingar er að finna á www.islandsbanki.is Höfuðstóll – verðtryggð lán* Höfuðstóll nú Höfuðstóll eftir leiðréttingu 20.000.000 18.000.000 Næsta greiðsla* Greiðslubyrði nú Greiðslubyrði eftir leiðréttingu og með greiðslujöfnun Greiðslubyrði eftir leiðréttingu 95.000 123.000 82.000 * m.v. 20.000.000 kr. lán til 40 ára
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.