SunnudagsMogginn - 01.11.2009, Blaðsíða 22

SunnudagsMogginn - 01.11.2009, Blaðsíða 22
22 1. nóvember 2009 alsteinsdóttir viðskiptafræðingur og þau eiga lítinn son, Davíð Stein, sem er augasteinn ömmu og afa. Ólafur Veigar er stjórnmálafræðingur sem er að flytjast til Hollands ásamt konu sinni, Sigrúnu Perlu, sem er læknir, en þau eru bæði að fara í framhaldsnám. Ég hef verið gift manninum mín- um, Davíð Davíðssyni, í 36 ár. Hann er uppalinn á Suðurlandi eins og ég og er lærður bifvélavirki. Hann fékk krabbamein fyrir fimmtán árum og eftir það mátti hann ekki vinna við olíu. Núna vinnur hann úti við í girðingavinnu. Hann hefur ótrygga atvinnu eins og svo margir í þessu landi. Kreppan snertir alla.“ Krabbamein er mikill vágestur. Það hlýtur að hafa verið erfitt tímabil hjá ykkur þegar hann veiktist. „Hann var veikur í fjögur ár og fór tvisvar í lyfja- meðferð. Ég brást nokkuð sérkennilega við veik- indum hans því ég vildi standa mig á öllum víg- stöðvum og dró hvergi af mér. Eftir á að hyggja sé ég að ég var stundum grimm í samskiptum og til- svörum við annað fólk. Ef samstarfsfólk gerði til dæmis athugasemdir þegar það þurfti að mæta á fundi á góðviðrisdegi þá fannst mér það aumingja- legt og sagði því það. Eftir á að hyggja hefði ég getað sagt: Ég skil vel að þú viljir vera úti í góða veðrinu, en á þessum tíma gaf ég ekkert eftir. Ég sé núna að Þar með voru langamma og langafi komin til sveit- ar. Þá voru reglur þannig að þeir sem skulduðu sveitarsjóði misstu kosningarétt. Til að gera upp skuldir fjölskyldunnar og endurheimta kosninga- réttinn fóru elstu börnin að vinna í sveitum. Þau lögðu hart að sér til að endurheimta mannréttindi fjölskyldunnar. Kosningadagar eru ennþá stórhá- tíðardagar í minni fjölskyldu. Ég ólst upp í sveit, á Læk í Ölfusi, elst fjögurra systkina. Bræðurnir voru þrír en sá yngsti dó ný- fæddur, fermingarsumarið mitt. Það hafði ríkt mikil tilhlökkun vegna þess að von var á honum í heiminn og sorgin var mikil þegar hann dó. Á þess- um tíma var ekki viðurkennt að fólk ætti að fyllast sorg þegar ungbarn deyr heldur bera sig vel en þetta var erfiður tími fyrir fjölskylduna. Dreng- urinn var jarðaður hjá afar yndislegri konu. Hann var þá ekki einn. Það var siður á þeim árum að jarða börn með fullorðnum. Það er erfið reynsla fyrir börn og unglinga að missa systkini sín. Mér fannst alltaf að ég þyrfti að vernda yngri bræður mína tvo sem eftir lifðu og gæta þess að þeir færu sér ekki að voða. Stundum fannst þeim nóg um. Þannig að ég byrjaði snemma að hafa afskipti af því hvernig fólki liði í kringum mig.“ Hvernig brást þú við dauða bróður þíns? „Ég brást við með því að forðast að vera innan um kornabörn því ég skynjaði að það myndi verða mér sársaukafullt. Það var ekki fyrr en ég eignaðist frumburð minn að ég opnaðist eins og blóm yfir því hvað það er dásamlegt að eiga barn og sinna því.“ Breyttur hugsunarháttur Hvernig eru þínir fjölskylduhagir? „Ég var í sveitinni fram að átján ára aldri en fór þá að búa í blokkaríbúð í Breiðholtinu en við hjónin fluttum síðan til Þorlákshafnar þar sem við höfum búið síðan. Við eigum tvo syni. Einar Örn er lög- fræðingur í Íslandsbanka. Kona hans er Ólöf Að- É g er full auðmýktar. Mér finnst mikill heiður að hafa verið kosin formaður BSRB og vona svo sannarlega að ég standi undir þeim væntingum sem fólk gerir til mín,“ segir Elín Björg. „Þegar Ögmundur tilkynnti að hann ætlaði að standa upp úr stóli sínum held ég að fleiri hafi hugsað eins og ég: Stóllinn er auður og hvað svo? Það tók mig tíma að taka ákvörðun um að gefa kost á mér í formannssætið. Ég vildi vera í þeim hópi sem kosið væri um. En ég held að enginn hafi verið jafn undrandi og ég þegar ég vann kosn- inguna.“ Ertu pólitísk? „Ég man ekki eftir mér öðruvísi en sem pólitískri manneskju. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á af- komu og kjörum fólks. Í pólitík slær hjarta mitt vinstra megin. Ég vann mikið með Margréti Frí- mannsdóttur, fyrst í Alþýðubandalaginu og síðan við stofnun Samfylkingarinnar. Margrét er auðvit- að einstakur karakter. Þau eiga það sameiginlegt, hún og Ögmundur Jónasson, að það er skemmti- legt að vinna með þeim en ekki alltaf auðvelt því bæði eru jafn kröfuhörð við samstarfsfólk sitt og þau eru við sig sjálf. Maður þarf að standa sig þegar maður vinnur með þeim. Margrét og Ögmundur hafa bæði mótað mig að þessu leyti. Ég geri kröfur til sjálfrar mín og annarra vegna þess að hámarks- árangur næst ekki nema maður standi sig vel.“ Erfið reynsla Úr hvernig umhverfi kemur þú? „Í fjölskyldu minni hefur alltaf verið lögð rík áherslu á að manni beri skylda til að gæta þeirra sem minna mega sín. Ég geymi vandlega í huga mínum sögu úr ætt minni sem lýsir dugnaði og þrautseigju alþýðufólks. Langamma mín og langafi bjuggu á Akranesi og áttu gamalt hús sem þurfti viðgerða við. Heilbrigðiseftirlitið taldi að húsið væri ekki íbúðarhæft og Akraneshreppur ákvað að láta gera við húsið svo fjölskyldan gæti búið þar áfram. Viðtalið Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Skylda við þá sem minna mega sín Elín Björg Jónsdóttir var í síðustu viku kjörin formaður BSRB, fyrst kvenna, og tekur við starf- inu af Ögmundi Jónassyni. Hún hefur lengi verið í forystu fyrir opinbera starfsmenn, hefur átt sæti í stjórn BSRB í tvo áratugi og er formaður Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi og Samflots bæjarstarfsmanna. „Allir sem verða fyrir áföllum hljóta að endurskoða líf sitt og íhuga hvað skiptir þá raunverulegu máli. Það gerðum við hjónin svo sannarlega. Það hafði aldrei hvarflað að mér að maðurinn minn yrði ekki alltaf hjá mér. Þannig að þessi reynsla breytti hugsunarhætti mínum; það sem ég hafði talið sjálfsagt var það ekki lengur. “
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.