SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 01.11.2009, Qupperneq 15

SunnudagsMogginn - 01.11.2009, Qupperneq 15
Ekkert um okkur án okkar! Ályktun aðalfundar ÖBÍ 24. október 2009 Alvarlegt ástand í efnahagsmálum þjóðar- innar hefur lagst mjög þungt á öryrkja. Þeir hafa orðið að þola skerðingar á framfærslulífeyri umfram aðra þegna þessa lands. Um áramótin síðustu voru bætur almannatrygginga hjá meirihluta lífeyrisþega skertar um allt að 10% og 1. júlí síðastliðinn voru greiðslur til fjöl- margra skertar enn frekar með nær engum fyrirvara. Þar að auki var þátttaka ríkisins í kostnaði við sjúkra-, iðju- og talþjálfun skert til muna nú 1. október. Öryrkjar nutu ekki góðærisins og eiga því sérstaklega erfitt með að takast á við kreppu og kjaraskerðingar. Aðalfundur ÖBÍ skorar á ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar að bæta öryrkjum þær skerðingar sem þeir hafa orðið fyrir sem fyrst. ÖBÍ bindur vonir við að hugmyndir nefndar sem unnið hefur að breytingum á greiðsluþátttöku almennings í heil- brigðiskerfinu nái fram að ganga. Þær gera ráð fyrir því að landsmenn borgi aldrei meira en ákveðna upphæð á ári fyrir lyf og aðra heilbrigðisþjónustu. ÖBÍ treystir því að nefnd um endur- skoðun almannatryggingakerfisins komi fram með tillögur sem einfalda kerfið, geri það sanngjarnara og bæti hag öryrkja og sjúklinga til muna. Mikilvægt er að bótaflokkurinn aldurstengd örorka verði áfram í gildi og önnur sértæk úrræði, s.s. umönnunarbætur, uppbót vegna mikils lyfjakostnaðar og bensín- styrkur. Draga þarf verulega úr tekju- skerðingum á ný. Víxlverkunum á milli almannatrygginga og lífeyrissjóðakerfi- sins til öryrkja verður að linna. Það er ótækt að lífeyrissjóðir skerði réttindi fólks vegna greiðslna úr almanna- tryggingakerfinu. Notendastýrðri persónulegri aðstoð (NPA) er brýnt að koma á sem fyrst. Stór hópur fatlaðra þarf að vera heima í dag þar sem félagsþjónusta fer einungis fram á heimilum fólks. NPA er úrræði fyrir þennan hóp, auk þess að vera atvinnuskapandi, fyrir fjölbreyttan hóp, um allt land. NPA gerir fötluðum kleift að vera virkir samfélagsþegnar á eigin forsendum, frjálsir og ábyrgir. Við leggjum til að þjónustan verði veitt þar sem fólk kýs. www.obi.is

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.