SunnudagsMogginn - 01.11.2009, Blaðsíða 2
2 1. nóvember 2009
16 Konurnar í Konukoti
Konukot, sem er athvarf fyrir heimilislausar konur, fagnar um þessar
mundir fimm ára afmæli. Af því tilefni er rætt við konurnar sem koma
að starfseminni og hafa nýtt sér þjónustuna.
28 Matthías Johannessen
Skáldið glímir við ástina, sorgina og dauðann í nýjustu ljóðabók sinni.
30 Sneri frá villu síns vegar
Guðberg Guðmundsson var í drykkju, dópi og afbrotum í fjóra áratugi
en hefur nú snúið við blaðinu.
33 Bók um samtímahönnun
Valin verk sem gefa fjölbreytta mynd af starfi
íslenskra hönnuða.
40 Aukasjálf
Árni Matthíasson fór á tónleika með Lady & Bird í
einum helsta tónleikasal Parísar og ræddi við Barða
Jóhannsson.
37 Kynlíf í kreppunni
Hálfíslenski kynlífsfræðingurinn dr. Yvonne Kristín
Fulbright hefur áhyggjur af kynheilsu þjóðarinnar.
Lesbók
50 Risi í abstraktlist
Listasafn Íslands opnar stóra yfirlitssýningu á verkum Svavars
Guðnasonar um helgina en í mánuðinum er öld frá fæðingu hans.
48 Ímynd þjóðarinnar
Ragna Sigurðardóttir hefur skrifað skáldsögu sem gerist í samtím-
anum og fjallar um listalífið í Reykjavík.
52 Mozart bjargar mannslífi
Eric-Emmanuel Schmitt skrifaði bók um manninn sem hann er sann-
færður um að hafi gert fleira fólk hamingjusamt en nokkur annar.
12
Þ
að er farið að rökkva í Feneyjum og
skuggamyndir gondólanna líða eftir sík-
inu. Hvergi er samspil ljóss og myrkurs
fallegra í tunglskininu. Reglulega er hóað
þegar gondólaræðararnir beygja fyrir horn. Og
innan úr einu húsinu við síkið má heyra:
„Palli, ertu til í að pósa?“
Ragnar Kjartansson heldur á pallettunni og hefur
tekið sér stöðu við trönurnar. Páll stendur upp úr
sófanum, leggur frá sér Truman Capote, kveikir sér
í sígarettu, flettir frá ullarsloppnum og tekur af sér
trefilinn.
Svo hefjast pensilstrokurnar.
Það er föstudagur. Það styttist í endalok enda-
lokanna. Sýning Íslands á Feneyjatvíæringnum ber
yfirskriftina The End eða Endalokin. Og henni lýk-
ur eftir þrjár vikur. Þá hafa Ragnar og Páll varið
hundrað og áttatíu dögum á vinnustofu listmál-
arans í Feneyjum, vinnustofu sem uppfyllir allar
goðsagnirnar um slíkar vinnustofur; líkin af bjór-
flöskum út um allt, á gosbrunninum í miðju rým-
inu, um allt gólf, á borðum og gluggakistum; á víð
og dreif liggja bækur menningarvitanna, ódauðleg-
ur skáldskapur Dylans Thomas og Vængir dúf-
unnar eftir Henry James, sem er svo hrútleiðin-
legur; á plötuspilaranum mallar píanósónata Beet-
hovens, en þar eru annars fastagestir Bob Dylan,
Leonard Cohen og David Bowie. Og svo eru það
málverkin.
Um alla vinnustofu hafa hlaðist upp málverk af
öllum stærðum og gerðum, í öllum litum og form-
um, af einu og sama módelinu á speedo-sundskýl-
unni með gulu röndinni. Það getur verið krefjandi
starfi, að sitja fyrir á speedo-sundskýlu. Þegar Páll
tekur sér hvíld og stendur á svölunum við síkið, þá
leitar hann uppi ung ítölsk kona og spyr önug: „Af
hverju ertu ekki nakinn?“
En gjörningur þeirra Ragnars og Páls felst ekki
aðeins í því að mála og sitja fyrir á myndum. Auð-
vitað fer drjúgur tími í það á vinnustofum lista-
manna að gera eitthvað allt annað en að sinna list-
inni. Það þarf til dæmis að matast, taka síestu, ræða
skáldskap og þjóðsins gagn og nauðsynjar. Og Ezra
Pound og Stravinsky eru alltaf nærri; í bókstaflegri
merkingu, því þeir eru grafnir á dauðaeyjunni
spölkorn frá, þar sem aðeins eru leiði og grafhýsi.
Þennan dag kemur 40 þúsundasti gesturinn á
vinnustofuna og fær viðurkenningu fyrir það, eins
og vera ber. Svo skrifar hann þakkir í gestabókina,
eins og Ítalinn sem kom á miðvikudag með kær-
ustuna sína, og grét yfir verkunum. „Einsemd
listamannsins,“ sagði hann. Svo grét hann.
Páll klæðir sig aftur í sloppinn og sest í sófann.
Hann byrjar þar sem frá var horfið í Truman Cap-
ote. Yfir honum stendur þýsk kona, sem virðir
listamanninn fyrir sér, og segir við manninn sinn
til skýringar, því listin er ekki alltaf auðskiljanleg:
„Hér er verið að draga upp mynd af lífinu eins og
það er – á venjulegu íslensku heimili.“
pebl@mbl.is
Páll Haukur Björnsson og Ragnar Kjartansson ásamt gesti númer 40.000 á sýningunni í Feneyjum.
Einsemd listamannsins
Laugardagur 31. október
„Og hún varð hissa á þekkingu
hans á listinni, hafði ekki átt von á
að hann vissi neitt, varð upprifin
og þá sagði hann blátt áfram: þú
mátt teikna mig nakinn ef það
hjálpar eitthvað listinni.“ Úr Karit-
as án titils. Kristín Marja Bald-
ursdóttir verður á Ritþingi í Gerðu-
bergi.
Sunnudagur 1. nóvember
Það er árviss viðburður að draug-
urinn Tíbri skjóti upp kollinum í
Salnum og segi sögur af vinum sín-
um, að þessu sinni tónskáldunum
Poulenc og Beethoven. Nornin
hrekkjótta Kírikí verður með í för.
Fjöllistamenn Götuleikhússins
skemmta frá 12:30 og tveir and-
litsmálarar mæta. Krakkar mega
gjarnan mæta í grímubúningum.
Miðvikudagur 4. nóvember
Todmobile treður upp í Íslensku óp-
erunni.
Kvæðalagaæfing Iðunnar haldin í
Gerðubergi, þar sem fólki á öllum
aldri býðst að æfa og syngja
kvæðalög.
Föstudagur 6. nóvember
Heimildarmyndin Eftirlýstur og
þráður eða „Wanted and Desired“
um leikstjórann umdeilda Roman
Polanski frumsýnd.
Desember, kvikmynd Hilmars
Oddssonar, frumsýnd.
Við mælum með …
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Ragnar Axelsson fyrir ofan Konukot.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Ingveldur Geirs-
dóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Skapti Hallgrímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir.
Á vettvangi
TAX
FREE!