Organistablaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 18
Mynd 5. Dœmi wn orgcl sem byggl er án hljómbotns. Þetta orgel er frá 1914 og er í
Ziirich í Sviss.
frákastið óreglulegt, hljómurinn verður tættur.) (Sjá mynd 5). Það liggur í augunum
uppi, að það er orgelliljómnum ekki til góðs.
Svona gat einungis gerst í kaþólsku kirkjunni, þar sem orgeltónlist Itefur aldrei
fengið eins fastan sess \ guðsþjónustunni eins og í lúthersku kirkjunni. Viðurkennd
tónlist innan kaþólsku kirkjunnar var gregorsöngurinn og cf tónlist var fjölrödduð þá
var fyrirmyndin Palestrina.
Einnig hefur suðurþýskt orgel ekki eins stórt fótspil og norðurþýskt orgel. Fótspils-
skipunin er svokölluð stutt áttund. (Sjá mynd 6). Þar af leiðandi hefur pedaltækni
ekki þróast mikið í Rókókó-orgeltónlist. Pedallinn var notaður til þess styðja aðal-
hljómaganginn.
Engu að siður eru mörg af suðurþýskum orgelum glæsileg hljóðfæri bæði til að spila
á og til að horfa og hlusta á. (Svo þegar talað var um Mozart, að hann væri glæsilegur
orgelleikari, er það nijög skiljanlegt, af því að hann var glæsilegur píanóleikari og gat
vel leikið af fingrum fram. En telja má öruggt, að hann hafi ekki notað mikið fótspil-
ið.) (Sjá mynd 6).
Suðurþýsk orgeltónlist um IKOO
Af ofangreindum ástæðum eru form orgeltónlistar í kaþólskri guðsþjónustu minni
í sniðum, smávægilegri, ekki eins mótuð. (sbr. tókkötur Frescobaldis)
18 ORGANISTABLAÐIÐ