SunnudagsMogginn - 29.11.2009, Page 2

SunnudagsMogginn - 29.11.2009, Page 2
2 29. nóvember 2009 4 Vikuspeglar Fárviðri í loftslagsfræðum, Þyrnir í auga mafíunnar í Napólí og Markmiðið var að gleðja fólkið 14 Heimur dansarans Ljósmyndari skyggnist á bak við tjöldin hjá Íslenska dansflokknum. 26 Dívan Diddú Kolbrún Bergþórsdóttir ræðir við eina ástsælustu söngkonu þjóðarinnar. 32 Ástarjátning í bók Bubbi tjáir Nessvæðinu ást sína í nýútkominni bók sinni, Áin. 34 Draumur um fjöll „Þetta er allt í senn, útivist, hreyfing og félags- skapur,“ segir Karl Gústaf Gústafsson í göngu- klúbbnum Toppförum. 40 Framandi eldhús Matreiðslumeistarinn Deepak Panday hefur opnað Eldhús á Laugavegi, veitingastað með indverskum og nepölskum réttum. 43 Þar sem menn góna á geitur Kvikmyndaumfjöllun Sunnudagsmoggans. Lesbók 48 Myndi vilja vera trúaður Bergþóra Jónsdóttir ræðir við Ísak Harðarson ljóðskáld um undursamlegt myrkrið, trú og stjörnur. 52 Vinur aftansólar sértu Baldur Hafstað rýnir í laust mál eftir Stephan G. í nýrri bók. 54 Einn af hátindunum Lofsamleg umsögn um nýja ljóðabók Matthíasar Johannessen. 12 Efnisyfirlit Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson af Mugison og Björgvini Gíslasyni. Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Ingveldur Geirsdóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir. Augnablikið A ugnablik á gangstétt fyrir utan lítið kaffi- hús. Þar má fylgjast með fjórum rosknum mönnum í hrókasamræðum. En þar sem þetta er bíómynd, þá eru væntingarnar engar um að fá að leggja orð í belg. Áhorfendur á kvikmyndum Woodys Allens koma til að þegja og njóta samræðnanna. Ekkert heyrist í salnum nema skrjáf í poppkorni. „Það er gaman að sjá Woody Allen aftur í New York,“ segir útvarpsmaðurinn Freyr Eyjólfsson og klofar áfram yfir bífurnar í sætaröðinni. En skrjáfið þagnar á augabragði þegar Boris Yellnikoff, leikinn af Larry Edgar, fer að leiðast þóf- ið, hann snýr sér til áhorfenda og talar beint til þeirra. „Af hverju viljið þið heyra sögu mína?“ spyr hann hálfönugur. „Þekkjumst við? Líkar okkur hverju við annað?“ Áhorfendur vita að ekkert er þessu til fyrirstöðu. Engar tæknilegar hindranir sem þarf að yfirstíga. En yfirleitt er ímyndaður þagnarmúr milli kvikmynda- persóna og áhorfenda, án þess það sé orðað með beinum hætti, og ekki ætlast til að persónurnar láti sem múrinn sé ekki til. Og raunar koma „svikin“ ekki síður flatt upp á aðrar persónur myndarinnar. „Ég segi ykkur það strax … að ég er ekki náungi sem vekur vellíðan hjá fólki. Sjarmi hefur aldrei ver- ið ofarlega á lista hjá mér … Og bara svo þið vitið það, þá er þetta ekki sú mynd ársins, sem vekur fólki mesta vellíðan. Ef þið eruð slíkir fábjánar að leita hingað eftir vellíðan, farið þá heldur í fótanudd.“ Og tónninn er gefinn fyrir drepfyndna gaman- mynd úr smiðju Allens. Yellnikoff tekst ekki að drepa sig, þrátt fyrir nokkra viðleitni í þá átt, en er engu að síður sjúklega hræddur við dauðann og hleypur æpandi um íbúðina: „Ég er að deyja! Ég er að deyja!“ Þegar eiginkonan hraðar sér til hans áhyggjufull, þá segir hann önugur: „Ekki núna! En það gerist að lokum!“ Segja má að myndin sé óður til þess að njóta lífsins á meðan við getum, án þess að taka það of hátíðlega. Þótt það hljómi sem klisja, þá er það allt í lagi, því eins og Yellnikoff segir: „Hvaða andskotans merk- ingu hefur þetta? Enga. Núll. Ekkert verður að neinu.“ Þetta er mynd með boðskap. Ekki er dregin dula yfir það. Kannski af því að Allen skrifaði handritið á áttunda áratugnum, þegar boðskapur var enn leyfð- ur í tilverunni og Lennon söng Imagine. En þá rann gerð myndarinnar út í sandinn vegna fráfalls Zeros Mostels, sem ætlað var hlutverk Yellnikoffs. Segja má að það hafi verið gráglettni örlaganna. Enda verður Yellnikoff tíðrætt um að við mjökumst stöð- ugt nær grafarbakkanum. Og hann mælist til þess að við njótum hverrar gleðistundar á því ferðalagi. pebl@mbl.is Evan Rachel Wood og Larry David í „Whatever Works“. Woody Allen upp á sitt besta. Þegar boðskapur var leyfilegur Laugardagur 5. desember Björgvin Halldórsson syngur inn jólin í Laugardalshöll. Uppselt er á tón- leikana um kvöldið en sala er hafin á aukatónleika fyrr um daginn. Jóla- gestir Björgvins eru í stórskotaliði listamanna en þeir eru Borgardætur, Diddú, Egill Ólafsson, Helgi Björnsson, Krummi, Laddi, Páll Óskar, Sig- ríður og Högni úr Hjaltalín, Þú og ég, Raggi Bjarna og Savanna tríóið. Björgvin og jólagestir Við mælum með… Laugardagur 29. nóvember Mosi kynnir nýja hönnunarlínu sem samanstendur af peysum fyrir konur úr íslenskri ull. Vinnustofan er í Þrúð- vangi að Laufásvegi 7 og er opin frá klukkan 17-20. Sunnudagur 30. nóvember Hundraðasta sýningin á Leitinni að jól- unum í Þjóðleikhúsinu. Leikhúsgestir, í fylgd jólaálfa, fá á einstakan hátt að kynnast þessu fornfræga húsi. Þorsteinn Vilhjálmsson, ritstjóri Vís- indavefsins, bregður upp mynd af upp- finningamönnum í verkum Errós fyrir fróðleiksfúsa krakka í Listasafni Reykjavíkur klukkan 15. Föstudagur 4. desember Matargæðingamynd Noru Ephron, Ju- lie and Julia, með Meryl Streep og Amy Adams í aðalhlutverkum, frumsýnd í Háskólabíói, Regnboganum og Smára- bíói. Allar jólaseríur og jólaljós Aðeins um helgina TAX FREE!

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.