SunnudagsMogginn - 29.11.2009, Side 13

SunnudagsMogginn - 29.11.2009, Side 13
29. nóvember 2009 13 Við köllum á meiri dýpt Ilmur Kristjánsdóttir leikkona tekur sér frí frá æfingum á Gerplu í Þjóðleikhúsinu, sem frumsýnt verður í febrúar, og tyllir sér með blaðamanni á kaffihúsi skammt frá æf- ingastaðnum. Það verður að nýta tímann vel þegar flakkað er árhundruð í tíma. „Verkið er á svolítið við- kvæmu stigi núna, af því að það er enn í mótun,“ segir hún. „Gerpla er ekki einfald- asta bók að setja á svið og það hefur aldrei verið gert áð- ur. Þetta er saga Þormóðs og Þorgeirs, sem ganga í fóst- bræðralag; einn er hetja og hinn er skáld, einn drepur og hinn yrkir um það, þannig að þeir þurfa á hvorum öðrum að halda. Þetta er háðsádeila Laxness á víkingatímann. Og við erum í rauninni aðeins að nýta okkur þetta háð, en jafnframt að finna alvöruna, kafa ofan í hvern kafla fyrir sig og leita að kjarnanum. Ég leik Þórdísi, sem Þormóður yfirgefur þegar hausinn á Þorgeir kemur rúll- andi. Hann þarf að hefna vegna fóstbræðralagsins eða svo ég vitni í bókina: „Því það sæmir ekki hetjum og skáldum að búa við hamingju sína.“ – Hvað tekur svo við? „Hvað tekur við? Er þetta ekki nóg?“ spyr Ilmur og hlær. „Ég er skráð í einn áfanga í Háskólanum og ætla að taka próf í honum í desember. Ég byrjaði sem sagt í guðfræði í fyrra, kláraði eina önn og nú bætist áfangi við.“ – Af hverju guðfræði? „Fyrst og fremst forvitni. Það hefur verið gert svolítið mikið úr þessu í fjölmiðlum, en ég fór bara þarna inn af áhuga. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á trúmálum og vildi kynna mér þau betur, ekki síst kristni. Ég held það sé hollt að fara út úr leikhúsinu og finna sér aðra rás í lífinu. Það er ágætt að hvíla sig á leiklistinni og þetta er góður vettvangur til þess fyrir mig. Svo er þetta fínt b- plan ef hitt klikkar,“ segir hún kímin. – Hvað um sjónvarpsþættina Ástríði? „Það er líklegt að við gerum aðra þáttaröð. Lagt var upp með að gera rómantíska gam- anþætti, en spennan jókst eft- ir því sem á leið og þeir urðu dramatískari. Og maður spyr sig hvort Íslendingar séu ekki orðnir þyrstir í dramatík. Ég get allavega sagt það fyrir sjálfa mig og ég gæti trúað að stílað yrði inn á það í annarri þáttaröðinni, ef af verður.“ – Ætli Íslendingar séu meira fyrir dramatík eftir hrun? „Ég held að við köllum á meiri dýpt,“ segir hún. „Ef til vill var ekki rúm fyrir hana í góðærinu, af því að ef kafað er ofan í góðærið, þá uppgötvast að það gengur ekki upp. En vonandi er svigrúm til þess núna að fara á dýptina.“ Styrkir til úrbóta á ferðamannastöðum Íslensk náttúra er eitt helsta aðdráttarafl Íslands í hugum ferðamanna. Stefna íslenskra stjórnvalda er að ferða- þjónustan í landinu starfi sem mest í anda sjálfbærni. Liður í því er markviss uppbygging og fyrirbyggjandi aðgerðir til verndunar íslenskrar náttúru. Ferðamálastofa auglýsir styrki til úrbóta í umhverfismálum fyrir árið 2010. Sérstök áhersla verður lögð á verkefni tengd sjálfbærri ferðaþjónustu fyrir alla sem hafa heildrænt skipulag og langtímamarkmið að leiðarljósi. Styrkir skiptast í tvo meginflokka: 1. STYRKIR TIL SMÆRRI VERKEFNA ER VARÐA ÚRBÆTUR Á FERÐAMANNASTÖÐUM: Veittir verða styrkir til smærri verkefna til úrbóta í umhverfismálum. Hámarksupphæð hvers styrks verður 500 þúsund krónur og er hann ætlaður fyrir efniskostnaði. Ekki er veittur styrkur vegna vinnuframlags. Styrkþegi er ábyrgur fyrir eðlilegu viðhaldi svæðis og mannvirkja er tengjast viðkomandi verkefni eftir að framkvæmdum lýkur. Umsókn skal innihalda: a) Kostnaðar- og framkvæmdaáætlun b) Afrit af skipulagi svæðis og/eða skriflegt samþykki viðkomandi yfirvalda vegna verkefnisins c) Teikningar af mannvirkjum, þar sem það á við, og/eða skriflegt samþykki byggingarfulltrúa d) Skriflegt samþykki allra landeigenda og húsráðenda Ekki kemur til greiðslu styrks fyrr en að undangengnum skriflegum samningi milli Ferðamálastofu og styrkþega. 2. STYRKIR TIL UPPBYGGINGAR Á FJÖLSÓTTUM FERÐAMANNASTÖÐUM OG NÝJUM SVÆÐUM: Veittir verða styrkir til úrbóta í umhverfismálum og uppbyggingar á nýjum svæðum fyrir ferðamenn. Styrkupphæð getur að hámarki orðið 50% af kostnaðaráætlun. Verkefni þar sem skipulag, fullnaðarhönnun og framkvæmdaleyfi liggur fyrir njóta áfram forgangs en nú verður einnig hægt að sækja um styrki fyrir skipulags- eða hönnunarvinnu ásamt undirbúningsrannsóknum. Sérstök áhersla verður lögð á að styrkja verkefni sem hafa sjálfbærni og langtímamarkmið í umhverfismálum að leiðarljósi. Ferðamálastofa áskilur sér rétt til að fara yfir skipulag og hönnun á viðkomandi svæði ásamt þeim forsendum sem þar liggja að baki. Umsókn skal innihalda: a. Kostnaðar- og framkvæmdaáætlun b. Afrit af skipulagi svæðis og/eða skriflegt samþykki viðkomandi yfirvalda vegna verkefnisins c. Teikningar af mannvirkjum, þegar það á við, og/eða skriflegt samþykki byggingarfulltrúa d. Skriflegt samþykki allra landeigenda og húsráðenda Vakin er athygli á að styrkþegi stjórnar framkvæmdum sjálfur og er ábyrgur fyrir eðlilegu viðhaldi svæðis og mannvirkjum er tengjast viðkomandi verkefni eftir að framkvæmdum lýkur. Ekki kemur til greiðslu styrks fyrr en að undangengnum skriflegum samningi milli Ferða- málastofu og styrkþega. Hverjir geta sótt um: Öllum sem hagsmuna eiga að gæta er frjálst að sækja um styrk að uppfylltum ofangreindum skilyrðum. Við úthlutun verður m.a. tekið mið af ástandi og álagi á svæði, og mikilvægi aðgerðanna út frá náttúruverndarsjónarmiðum. Einnig verður tekið tillit til þess hvort við- komandi verkefni nýtur þegar fjárstuðnings opinberra aðila. Ekki verður sérstaklega litið til dreifingar verkefna eftir landshlutum. Umsóknarfrestur: Umsóknarfrestur er til og með 8. janúar 2010. Umsóknir sem berast eftir það eru ekki teknar gildar. Meðfylgjandi gögn: Með öllum umsóknum skal skila inn gögnum er sýna fram á mikilvægi framkvæmdarinnar sem og skriflegu samþykki hlutaðeigandi aðila s.s. landeigenda, sveitarfélags og umhverfisyfirvalda ef með þarf. Hvar ber að sækja um: Umsóknareyðublöð má finna á www.ferdamalastofa.is og á skrifstofu stofnunarinnar að Strandgötu 29, 600 Akureyri. Nánari upplýsingar veitir umhverfisstjóri Ferðamálastofu í síma 535-5510 eða á sveinn@icetourist.is. Ferðamálastofa starfar samkvæmt lögum nr. 73/2005 um skipulag ferðamála. Helstu verkefni stofnunarinnar eru einkum: 1. Útgáfa leyfa, skráning á starfsemi og eftirlit með að skilyrðum fyrir þeim sé fullnægt. 2. Þróunar-, gæða- og skipulagsmál ferða- þjónustu, þ.e. framkvæmd markaðrar ferðamálastefnu, samræming umhverfis- og fræðslumála, miðlun upplýsinga, svæðisbundin þróun og alþjóðlegt samstarf. 3. Markaðs- og kynningarmál ferðaþjónustu, í samræmi við ákvörðun ráðherra hverju sinni. Geirsgata 9 I 101 Reykjavík I Sími 535-5510 I upplysingar@icetourist.is I www.icetourist.is Strandgata 29 I 600 Akureyri I Sími 464 9990 I upplysingar@icetourist.is I www.icetourist.is www.ferdamalastofa.is

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.