SunnudagsMogginn - 29.11.2009, Page 17

SunnudagsMogginn - 29.11.2009, Page 17
29. nóvember 2009 17 M ugison þrífst á því að hafa nóg fyrir stafni. Getur ekki setið með hendur í skauti, vill heldur nota þær til að spila á gítar, búa til plötuumslög og fleira í þeim dúr. „Ég reyni yfirleitt að drekkja sjálfum mér í hug- myndum; það er örugglega ekki hollt en er bara minn stíll. Ég er alltaf að bauka eitthvað,“ segir tónlistar- útgerðarmaðurinn að vestan í samtali við Morgunblaðið. Tónleikar hér og tónleikar þar, heima og erlendis, plötur hér og plötur þar. Ein nýkomin út og tvær í vinnslu. Þriðjudagur: Þegar ég hringi í Örn Elías er hann að leggja bílnum fyrir utan Bónus á Ísafirði. „Ég fer suður á morgun með eldri strákinn.“ Fjölskyldan er mjög hefðbundin, segir hann. Kona, tvö börn (strákar) og hundur. Miðvikudagur: Hann er staddur í Sundlauginni, hljóðverinu í Álafosskvosinni, ásamt gítarhetjunni gömlu, Björgvini Gíslasyni. Þeir hafa leikið saman hér og þar um landið upp á síðkastið og eru reyndar í miðjum klíðum. Tónleikar framundan um kvöldið. Það virðist alveg sama hvort Mugison býður upp á fal- legar ballöður eða brjálað rokk. Sama hvaða beitu hann notar; það bítur á. Fólkið hrífst af honum. Fjöldi tónleika víða um heim Á plötunni Ítrekun, sem Mugison var að senda frá sér, eru lög sem upphaflega voru á Mugiboogie sem kom út 2007 en hafa þó öll tekið miklum breytingum síðan þau komu út í upphaflegri mynd. „Þannig er mál með vexti að eftir að við, strákarnir í hljómsveitinni, spiluðum inn á plötuna fylgdum við henni eftir í tæp tvö ár og nokkur laganna breyttust svo rosalega á þessum tíma að mér fannst nauðsynlegt að taka þau upp aftur.“ Þeir fóru víða. „Við spiluðum á óhemjumörgum tón- leikum víðs vegar um heiminn; fórum nokkra hringi í Evrópu, þvert yfir Kanada og þvert yfir Bandaríkin, og hringferð um Ísland auðvitað. Þeim Mugison var gríðarlega vel tekið í Vesturheimi, sérstaklega í Kanada. Þeir hituðu upp fyrir stór- hljómsveitina Queens of the Stone Age. „Hún er með þeim stærri í bransanum, spilar í hokkíhöllum sem taka sex til átta þúsund manns og við pössuðum greinilega vel fyrir þann hóp sem var mættur. Yfirleitt hlusta fáir á þá sem eru að hita upp fyrir aðra en í Kanada var vel hlustað á okkur og við seldum marga diska.“ Þegar hljómsveit fær svona góðar viðtökur segir hann vissulega auðveldara að leika á sömu slóðum á nýjan leik en ekkert sé skipulagt vestanhafs enn sem komið er. „Ég er með frábæra tónlistarmenn með mér og á tón- leikum teygja menn lögin oft í nýjar áttir. Þegar ævin- týrinu var að ljúka og ég farinn að hugsa um önnur verkefni langaði mig til að fanga þetta augnablik; breyt- inguna á lögunum, áður en bandið leystist upp. Við tók- um þess vegna upp þau lög sem höfðu breyst mest en ekkert þeirra sem enn eru svipuð og á Mugiboogie.“ Sú nýja er ekki tónleikaplata, en þó hálft í hvoru. Kannski má segja tónleikaplata án tónleikagesta. „Við tókum einn dag í þetta í Sundlauginni. Aðalpælingin var ekki að gefa lögin út heldur bara að eiga þau eins og þau höfðu þróast. Svo fannst mér efnið bara svo flott þegar Biggi í Sundlauginni var búinn að mixa það …“ Þegar upptökum var lokið áttuðu menn sig sem sagt á því að efnið var svo gott að tæpast yrði hjá því komist að gefa það út. Og þá var auðvitað drifið í því. Mugison finnst vont að sitja aðgerðarlaus. Ítrekun – í gluggaumslagi Ítrekun er nafnið sem Mugison valdi á nýjustu afurðina. „Ég velti því lengi fyrir mér hvað hægt væri að kalla plötu eins og þessa; gamalt efni í nýjum búningi. Svo kviknaði hugmynd; það er alveg eins heima hjá mér og öðrum Íslendingum um þessar mundir; maður fær ítrekun senda vikulega og þetta nafn lá einhvern veginn beinast við. Ég er að senda ítrekun í músík – nafnið út- skýrir sig því sjálft.“ Og þegar nafnið var komið hentaði vel að koma disk- inum fyrir í gluggaumslagi, segir hann. Eins og við út- gáfu fyrri platna var töluverð handavinna við lokafrá- gang. Þegar fyrsta platan kom út, Lonely Mountain, árið 2003 saumaði Mugison hvert einasta umslag! Þrettán þúsund eintök, takk fyrir. „Það tók tvo mánuði. Þegar Mugiboogie kom út brutum við umbúðirnar saman í höndunum. Ég gef plöturnar út sjálfur og hef gaman af svona handverki; það verður líka til þess að maður sest niður með sínum nánustu og föndrar. Ég er líka frekar iðinn maður og finnst gott að dunda við þetta.“ Mugison lét saumaskapinn vera að þessu sinni en handtökin urðu engu að síður mörg. Keypti stimpilinn ÍTREKUN í Stimplagerðinni og „við létum útbúa annan sem segir til um hvað lögin heita og hverjir spiluðu á plötunni“. Svo var sest niður heima í stofu og stimplað á hvert einasta umslag. Óneitanlega skemmtilegt. Mugison er gjarnan kenndur við Vestfirði enda býr hann þar núna. Faðir hans er að vestan en móðirin úr Reykjavík og sjálfur segist Mugison í raun hvergi eiga heima. „Ég er sígauni; bý alls staðar. Fyrir norðan, sunnan og vestan og í útlöndum. Það er misjafnt hvernig menn skilgreina sig; sumir miða við það hvert foreldr- arnir eiga ættir að rekja, sumir við þann stað þar sem þeir voru á mótunarárunum en ég veit ekki hvað skal segja. Ég hef aldrei verið lengur en þrjú ár á sama stað fyrr en núna að við höfum verið í fjögur ár á Súðavík.“ Fjölskyldunni líður afskaplega vel fyrir vestan. Þar hófu þau búskap, Örn Elías og Rúna Esradóttir, „svo vorum við eitt ár í bænum [lesist: Reykjavík] en keypt- um okkur svo hús á Súðavík. Hér er mjög næs að vera og ég er með góða vinnuaðstöðu“. Þau fluttu á heppilegum tíma, segir hann. „Keyptum húsið hér á 10 milljónir en það hefði sjálfsagt kostað milljarð í Reykjavík!“ Þar var góðærið, en kreppan hefur lengi búið fyrir vestan, segir hann. Sígauninn Mugison hóf tónlistarharkið af einhverju viti, eins og hann tekur til orða, árið 2003. Reyndi þá að lifa af músíkinni og tókst það. Var einn á ferð og lék í Bretlandi, Hollandi, Frakklandi og Belgíu svo nokkur lönd séu nefnd. Í þessum var honum best tekið. „Ég var einn í heiminum og hafði engar skuldbindingar aðrar en að eiga fyrir helgardrykkjunni! Ég þvældist um allan heim, kynntist fólki og spilaði án þess að fá endilega borgað fyrir tónleikana. Svo eignaðist ég fyrsta barnið mitt 2004 og þá var þetta bara búið … Þá þurfti maður að fara að hugsa meira um reikninga en áður.“ Biggi vinur hans slóst fljótlega í för með Mugison á flakkinu 2003 til þess að sjá um hljóðið á tónleikum og selja diska. Að því kom að Mugison komst inn á nokkrar tónlistarhátíðir. Segist hafa verið heppinn að vera frá Ís- landi; litlu hátíðirnar höfðu ekki fjárhagslegt bolmagn til þess að fá til sín dýra tónlistarmenn en höfðu efni á „litla trúðnum að vestan“, eins og hann tekur til orða. „Fyrst spilar maður fyrir nánast engan en svo fjölgar smátt og smátt í áheyrendahópnum. Á sumum stöðum koma nú þrjú til fjögur hundruð manns.“ Sviss hefur bæst á tónlistarlandakort Mugisons og í sumar leið hélt hann tvenna tónleika í Póllandi. „Það var æðislegt að spila þar, en ég get ekki fyrir mitt litla líf munað hvað bæirnir heita. Og gæti hvort sem er ekki borið nöfnin fram, það voru svo mörg ess, cé og zetur í nöfn- unum …“ Afi var sá eini sem vildi koma Algengt er að þegar plata er gefin út sé henni fylgt úr hlaði með tónleikum en í kjölfar þeirrar nýju er Mugison nú á ferð með gítar-Björgvini eins og áður kom fram. Hinu ævintýrinu er lokið og annað tekið við. Að leika með Björgvini Gíslasyni er gamall draumur. „Bjöggi hefur spilað með mér inn á plötur í nokkrum lögum. Ég er mikill aðdáandi hans og hef gantast með það að ég þyrði ekki að hringja og biðja hann að spila með mér fyrr en mér þætti ég orðinn nógu góður.“ Alvörusamstarf gömlu kempunnar og Mugisons hófst svo með býsna skemmtilegum hætti: Það var þegar Mugiboogie var nýlega komin út að Mugison fór á Eurosonic-hátíð í Hollandi; mikla ráð- stefnu og tónlistarhátíð þar sem tónleikahaldarar hittast til þess að hlusta á nýja músíkanta. RÚV sendir árlega einn fulltrúa á staðinn, Mugison varð fyrir valinu en svo óheppilega vildi til að allir félagar hans úr hljómsveitinni voru uppteknir við önnur störf. Nokkrir með Bubba Morthens í sjónvarpsþætti, einn var á kafi í verkefni vegna plötu og menn áttu því ekki heimangengt með aðeins tveggja daga fyrirvara. „Ég hringdi því í Bjögga og spurði hvort hann væri til í að koma með mér og hann kýldi á það. Ég kenndi hon- um lögin í flugvélinni og á leiðinni á tónleikastaðinn, og ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá slógum við í gegn! Hann hefur svo mikla útgeislun.“ Mugison vakti kátínu viðstaddra áður en þeir Björgvin hófu leik. „Ég kynnti hann á svið sem afa minn; sagði að Dylan Íslands hefði rænt bandinu mínu og sá eini sem hefði viljað spila með mér um helgina væri afi minn. Eft- ir hátíðina reyndi ég svo að bóka hljómsveitina á tón- leika í Evrópu, áhugi á því var ekki sérlega mikill en margir vildu fá mig og Bjögga!“ Í fyrrasumar var hljómsveit Mugisons engu að síður á fleygiferð um heiminn en hann og Björgvin hafa haldið sambandi og flakka nú um sem dúett. „Mér finnst alltaf gaman að gera eitthvað nýtt. Við erum búnir að fara um Vestfirði, vorum á Norðurlandi um síðustu helgi og verðum á Suðurlandi næst en verðum að fresta því að fara austur vegna tímaskorts hjá mér.“ Samdi lag upp úr ársskýrslu Amnesty Örn Elías Guðmundsson fer gjarnan sínar eigin leiðir. Saumaskapurinn er eitt dæmið, margt í tónlistinni ann- að. Þá gerist það líklega ekki á hverjum degi að samin sé tónlist upp úr ársskýrslu Amnesty International. „Ég er nettur plebbi þegar kemur að mannréttindamálum. Fæ ofuráhuga á þeim í nokkra daga, eins og reyndar mörgu öðru; les þá allt sem ég kemst yfir og langar að hjálpa því góða fólki að bæta bæta heiminn sem er að reyna það alla daga. Ég las ársskýrslu Amnesty og bjó til lag og texta upp úr henni, sem voru á síðustu plötu – lagið heitir Animal – og reyndi mikið til þess að gefa Amnesty lagið. Samtökin vildu ómögulega eignast það en vildu þess í stað fara í samstarf þannig að ég yrði með tónleika í New York og þau gætu dreift bæklingum á meðan.“ Úr varð að Mugison notaði einn dag af sumarfríinu til tónleikahalds; spilaði á fimm stöðum í New York þann dag – einum tónleikum í hverju hverfi og hafði gaman af. „Það var æðislegt að fá tækifæri til að koma fram á öllum þessum stöðum, til dæmis á Staten Island. Þangað hefði ég örugglega ekki komið annars.“ Þar lék hann í tíbetsku listasafni. Í Brooklyn kom hann fram í alþýðu- listahúsi og í sósíalískri kommúnu í Queens. Tilgangur umræddra tónleika var aðallega að vekja at- hygli á Aung San Suu Kyi, leiðtoga stjórnarandstæðinga í Búrma, sem haldið hefur verið í stofufangelsi árum sam- an. „Samtök eins og Amnesty skipta miklu máli. Það er mjög gaman að því þegar grasrótarsamök verða svona stór og viðurkennd en þá er líka hætta á því að litið verði á þau sem sjálfsagðan hlut. Fólk verður vant þeim og þá geta þau gleymst. Tendensinn er sá að maður tekur eftir einhverju í hálftíma og gleymir því svo. Fer að hugsa um eitthvað nýtt. En mig dauðlangar að geta sinnt þessu miklu betur og gera alvörugagn.“ Galdratæki – og 50 tónleikar í heimahúsum Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður er eitt þeirra verk- efna sem Mugison fæst við og sú útgerð gengur vel. Feðgarnir Mugison og Papamugi, Guðmundur M. Krist- jánsson hafnarstjóri á Ísafirði, komu hátíðinni á koppinn og hún verður haldin í sjöunda skipti á næsta ári. „Það er hrikalega gaman að fá að vera með,“ segir Mugison hógvær þegar talið berst að hátíðinni, sem strax naut mikilla vinsælda – og hefur vakið athygli utan land- steinanna. Hann segir myndarlegan hóp standa á bak við hátíðina og ein ástæða þess hve vel gangi sé að ef einhver vill að eitthvað gerist verði hann að sjá um það sjálfur. „Einu sinni kvartaði einn undan því að heima- síðan okkar væri léleg og þá lenti það auðvitað á honum að taka hana að sér. Ef menn kvarta þá kippa þeir hlut- unum í lag. Það er snilldarlausn; ég held við að ættum að reka landið með þessu fyrirkomulagi …“ Frá því var greint í fréttum í sumar að Mugison væri að hanna og smíða nýtt hljóðfæri ásamt Páli Einarssyni vini sínum. Nú er græjan tilbúin og spurning hvað best sé að kalla gripinn. Hægt er að leika á hann eins og harmonikku en þetta er líka stúdíó! „Eiginlega eins og geimvísindatæki; stjórnstöð fyrir alls konar dót sem ég er með í tölvunni. Þetta er hálfgert leikhús sem passar í eina gítartösku.“ Undratækið er með í för þeirra Björgvins en Mugison segist aðallega vera að æfa sig í að stilla því upp á sviðinu og láta það bila … Notar það að vísu sem ljóskastara! Það er eiginlega galdratæki, viðurkennir hann. Hljóðfærið/stúdíóið/stjórnstöðina ætlar hann að nota fyrst fyrir alvöru á tónleikaferð um Danmörku, Holland, Belgíu og Þýskaland í desember þar sem hann verður einn síns liðs en gripurinn verður notaður víða á Íslandi á næsta ári því framundan er óvenjuleg tónleikaferð; hann ætlar að halda 50 tónleika í heimahúsum. „Ég ætla að reyna að ná sem flestum póstnúmerum. Menn geta sótt um, ég mæti heim til þeirra og held tón- leika. Hugmyndin á bak við hljóðfærið var einmitt sú að ég gæti bæði notað það til að spila heima í stofu og í Laugardalshöllinni. Að útlit tónleikanna og fílingurinn væri nokkurn veginn sá sami. Mér fannst það líka góð hugmynd að koma heim til fólks og halda ókeypis tón- leika. Þannig er hægt að breyta venjulegu heimili, þar sem börnin nenna ekki að taka til og leirtauið er í vask- anum, í tónleikastað. Heimilið verður þannig komið í allt annað samhengi en venjulega og ég held að minn- ingin gæti verið skemmtileg.“ Vonandi, bætir hann við, verður einhvern tíma sagt: Ég var þar. Það er eiginlega varla nóg að kalla Mugison útgerð- armann þótt það sé fallegt orð og göfugt starfsheiti. Hann er meira eins og fjölveiðiskip. „Ég kynnti hann á svið sem afa minn; sagði að Dylan Íslands hefði rænt band- inu mínu og sá eini sem hefði viljað spila með mér um helgina væri afi minn. Eftir hátíðina reyndi ég svo að bóka hljómsveitina á tónleika í Evrópu, áhugi á því var ekki sérlega mikill en margir vildu fá mig og Bjögga!“

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.