SunnudagsMogginn - 29.11.2009, Page 27
29. nóvember 2009 27
GJAFAKORT | landsbankinn.is | 410 4000
Ein gjöf sem
hentar öllum
Gjafakort Landsbankans er greiðslukort sem býður uppá að
gefandinn ákveði upphæðina og viðtakandinn velji gjöfina.
Þú færð gjafakortið í næsta útibúi Landsbankans.
N
B
Ih
f.
(L
an
d
sb
an
ki
nn
),
kt
.4
71
0
0
8
-0
2
8
0
.
E
N
N
E
M
M
/S
ÍA
/N
M
39
89
1
hef átt farsælan feril. Maður á aldrei að þóknast
öðrum heldur hlusta á hjarta sitt. Ég treysti mjög á
innsæið og finn oftast á mér hvort ég á að taka að
mér hlutina eða ekki. Maður verður að vera
hreinskilinn við sjálfan sig og þekkja takmörk sín.
Ég hef verið mjög sjálfsgagnrýnin. Þetta starf er
enginn dans á rósum og maður er sífellt að stinga
sig á þyrnum.“
Ertu metnaðargjörn?
„Ég reyni alltaf að gera eins vel og ég get. Að því
leyti er ég metnaðargjörn. En ég er ekki metn-
aðargjörn á þann hátt að ég ryðji öðrum úr vegi til
að ná mínu fram. Ég tek ekki að mér verkefni
nema ég viti að ég geti skilað þeim vel. Ef ég tel að
einhver geti gert betur en ég bendi ég á viðkom-
andi og reyni ég að greiða götu hans.“
Hvað ætlarðu að syngja lengi opinberlega?
„Ætli ég fari ekki syngjandi upp til himna.“
Sumir eru
gapandi hlessa
á því að ég á
hvorki upp-
þvottavél né ör-
bylgjuofn. Ég vaska
upp mína diska og
mitt leirtau og elda
matinn frá grunni.
Vinir mínir eru sumir
pirraðir vegna þess
að ég svara þeim ekki
á Facebook. Ég er
ekki á Facebook. Ég
kemst alveg af í lífinu
án þess. Ég er í síma-
skránni og það hefur
dugað.
það skiptir mestu máli og er reyndar guðsgjöf.
Annars er þetta nokkuð sem ég hef ekki sér-
staklega mikinn áhuga á að tala um.“
Ertu mikil bjartsýnismanneskja?
„Ég er bjartsýn, gamaldags og jarðbundin. Það
er mín gæfa að vera svona gamaldags því ég stend
nokkuð keik uppi þrátt fyrir alla þessa skruðninga
og brambolt í kringum okkur. Sennilega er ég
bara ágætis fyrirmynd. Ég trúi á gömlu góðu gild-
in. Við eigum að vera sátt og þakklát fyrir það sem
við höfum. Eina lánið sem ég hef tekið um ævina
er námslán. Við hjónin byggðum húsið okkar eftir
efnum og aðstæðum. Þannig höfum við lifað. Ég
tileinka mér þetta viðhorf frá foreldrum mínum
sem ólu upp allan þennan krakkaskara og eign-
uðust ekki hluti nema eiga fyrir þeim.
Sumir eru gapandi hlessa á því að ég á hvorki
uppþvottavél né örbylgjuofn. Ég vaska upp mína
diska og mitt leirtau og elda matinn frá grunni.
Vinir mínir eru sumir pirraðir vegna þess að ég
svara þeim ekki á Facebook. Ég er ekki á Face-
book. Ég kemst alveg af í lífinu án þess. Ég er í
símaskránni og það hefur dugað. Ég á fullt af vin-
um og er í góðu sambandi við mitt fólk. Ég kann
enn að skrifa bréf. Eitt árið hafði ég ekki tíma til
að skrifa jólakort og þá fannst mér ég vera komin
út á hálan ís. Ég fékk svo mikið samviskubit að ég
ákvað að skrifa jólakortin framvegis.“
Þú hefur átt ákaflega farsælan feril og þjóðinni
þykir vænt um þig. Þú hlýtur að finna þessa
væntumþykju.
„Ég er búin að starfa sem atvinnusöngkona í
rúm þrjátíu ár. Ég er svoddan kameljón, get farið í
hvaða kvikinda líki sem er og er fljót að tileinka
mér hlutina. Ég vel og hafna mjög grimmt og
sennilega er það ein meginástæðan fyrir því að ég
Morgunblaðið/Kristinn
Ég vel og hafna
mjög grimmt og
sennilega er
það ein meg-
inástæðan fyrir því
að ég hef átt farsælan
feril. Maður á aldrei
að þóknast öðrum
heldur hlusta á hjarta
sitt.
Diddú Ég held að mér
hafi verið ætlað það
hlutverk að syngja.