SunnudagsMogginn - 29.11.2009, Blaðsíða 35
29. nóvember 2009 35
um næstu helgi sem lýkur með jólahlað-
borði og „húllumhæi“, eins og Karl
kemst að orði.
Karl hefur víða drepið niður fæti í
heiminum enda verið í millilandaflugi í
meira en áratug. „Það er álíka spenn-
andi fyrir mig að koma til Ástralíu og
fyrir venjulegt fólk að fara upp í Breið-
holt,“ segir hann og glottir. Hann hefur
því góðan samanburð og furðar sig á því
hvað Íslendingar séu latir að ferðast um
landið sitt. „Við sjáum ekki alltaf hvað
við búum í fallegu og hreinu landi.
Kjósum frekar að flatmaga á ensku
ströndinni á Kanarí. Útsýnið er enda-
laust á Íslandi og hvergi í heiminum sér
maður aðrar eins andstæður lita. Að
ekki sé talað um birtuna. Hún er ein-
stök.“
Að líta inn á við
Það er tilfinning Karls að stór hluti
þjóðarinnar viti lítið um landið sitt.
„Fólk þekkir ekki helstu fjöll og ár. En
það þekkir Kringluna! Er ekki tími til
kominn að kíkja á gömlu góðu landa-
fræðina með börnunum?“
Enda þótt sú auma kerling kreppan sé
óvelkomin segir Karl hana eiga sér já-
kvæða birtingarmynd. Hún þvingi land-
ann til að líta inn á við. „Það hefur aldr-
ei þótt skynsamlegt að sækja vatnið yfir
lækinn.“
Karl hefur fengið útrás fyrir gamalt
áhugamál eftir að hann fór að ganga
með Toppförum: Ljósmyndun. „Ég hef
alltaf haft áhuga á ljósmyndun og
mynda mikið, bæði fólk og náttúru. Ég
tek „hlunkinn“ að sjálfsögðu með mér í
ferðirnar og hef tekið ógrynni mynda,“
segir hann og með „hlunknum“ á hann
við myndavélina. Myndirnar eru þó bara
fyrir hann og hans nánustu. „Ég hef
engan áhuga á að koma mér upp heima-
síðu.“
Spurður hvort hann komi til með að
halda göngunni áfram er Karl fljótur til
svars. „Svo sannarlega. Fjallgöngur eru
orðnar órjúfanlegur hluti af mínum lífs-
stíl.“
Toppfarar glíma við Trölla-
tinda á Snæfellsnesi fyrr á
þessu hausti. Karl er undrandi
á því hvað Íslendingar eru lat-
ir að ferðast um landið sitt.
Ljósmyndir/Karl Gústaf
Stoltar stelpur á tindi Herðubreiðar. „Af einhverjum ástæðum á ég enga mynd af körlunum!“
Toppfarar ganga á Herðubreið síðastliðið sumar. Karl segir félagsskapinn einstaklega góðan. „Það er aldrei misklíð í þessum hópi.“
Herðubreið er tilkomumikið fjall. Karl hafði lengi dreymt um að standa á tindinum.
ast upp sem fínheitastrandbær heldra fólks Bang-
kok. Ég sit á ströndinni við gamla Railway-
hótelið þar sem útsýnið er að þessum grjótkrypp-
um sem nafn Hua Hin er dregið af, en Hua Hin
þýðir í raun Steinhöfuð.
Fyrstu minningar mínar um fréttir og heims-
málin voru af viðbjóðslegum hroðaverkum Rauðu
khmeranna í Kambódíu. Besta mynd um þennan
ógnartíma er The Killing Fields og þar gerast
margar senur á Hotel Phnom Penh, en það var
gamla Railway-hótelið sem var settið í myndinni
og í raun var öll sú kvikmynd tekin í nágrenni
Hua Hin.
Ég geng frá ströndinni og inn í gamla hót-
elgarðinn með risaeðlum og fílum í raunstærð
klippt í hekk og runna, sest inn á The Museum-
kaffihúsið og panta mér enskan morgunverð og
drekk te, það er við hæfi. Ekkert er eins elegant í
Hua Hin og gamla Railway-hótelið sem heitir nú
Sofitel.
En ég get ekki látið hinn fullkomna dag leysast
upp í værð, ónei, ég ríf mig upp úr gömlum leð-
urbólstruðum baststólnum og skunda inn á Chat
Chai-markaðinn sem ég hef einhverju sinni sagt
að væri eins og sædýrasafn í húsdýragarði, og er
ég þar að vitna í hversu ferskt kjöt- og fiskmetið
er. Hér er ekkert elegant. Hér er allt svo ekta as-
ískt. Mikil lykt, hávaði og líf. Allt svo raunveru-
legt, með blóði og slor.
Þrátt fyrir að hinn krassandi votmarkaður Chat
Chai hafi ekki beint örvað matarlystina er kom-
inn matartími og ég rölti aftur niður að strönd, að
gamla bryggjuhverfinu, og sest inn á Chao Lay-
veitingastaðnum, eða Sjómanninum, eins og það
útleggst á okkar ylhýra. Þetta er án vafa besti
sjávarréttastaður Hua Hin og það eru stór orð því
sagt er að hvergi séu þær kræsingar eins ljúffeng-
ar og þar. Ástæðan fyrir því er sögð vera að fína
fólkið frá Bangkok er kröfuhart og lætur ekki
bjóða sér hvað sem er.
Morgni lýkur og miðdagur hefst á opnum veit-
ingastað, í mjúkum plaststól á bryggjusporði með
kaldan Singhabjór, ferskar ostrur, gufusoðinn
krabba, snöggsteiktan smokkfisk í rauðu karríi og
engifersoðinn flatfisk.
The Museum-kaffihúsið á Sofitel hótelinu, 1 Dam-
nernkasem Road
Chat Chai-votmarkaðurinn, Petchakasem Road.
Chao Lay-fiskiveitingastaðurinn við gömlu höfnina í
Hua Hin, 15 Naresdamri Road www.tskoli.is
Mótaðu
framtíðina
Meistaraskóli
Iðnmeistaranám í
eftirfarandi greinum:
• Bílgreinum
• Flugvirkjun
• Gull-og silfursmíði
• Hársnyrtiiðn
• Hljóðfærasmíði
• Húsasmíði
• Húsgagnabólstrun
• Húsgagnasmíði
• Klæðskurði - kjólasaum
• Ljósmyndun
• Málaraiðn
• Málmiðngreinar
• Múrsmiði
• Myndskurði
• Netagerð
• Pípulögnum
• Prentun - prentsmíði
• Rafeindavirkjun
• Rafveituvirkjun
• Rafvélavirkjun
• Rafvirkjun
• Símsmíði
• Skósmíði
• Skrúðgarðyrkju
• Snyrtifræði
• Tannsmíði
• Úrsmíði
• Veggfóðrun og dúkalögn
Diplómanám
• Rekstur og stjórnun
• Flugrekstrarfræði
• Útvegsrekstrarfræði
• Lýsingarfræði
• Lýsingarhönnun
Kvöldskóli
Byggingatækniskólinn
• Grunnnám bygginga- og
mannvirkjagerðar
• Húsasmíði
• Húsgagnasmíði
Raftækniskólinn
• Grunnám rafiðna
• Rafeindavirkjun
• Rafvirkjun, samningsb.
• Rafvirkjun, verknám
• Rafveituvirkjun
Fjarnám
Byggingatækniskólinn
• Tækniteiknun
Fjölmenningarskólinn
• Íslenska sem annað
tungumál
Skipstjórnarskólinn
• SA-skipstjórn, 24 m
• SB-skipstjórn, 45 m
• SC-skipstjórn, 3000 BT
• SD-skipstjórn, öll skip
Tæknimenntaskólinn
• Almennar greinar
• Bókhald
Upplýsingatækniskólinn
• Grunnnám upplýs. og
fjölmiðlabraut
Umsóknarfrestur er til
4. janúar.
Aðstoð við innritun í
kvöldskóla er 17. des.
frá kl. 16:00 - 19:00.