SunnudagsMogginn - 29.11.2009, Page 38

SunnudagsMogginn - 29.11.2009, Page 38
38 29. nóvember 2009 Veitir andlega og líkamlega aðstoð „Ég hef verið meðlimur í Ljósinu frá upphafi,“ segir Guðrún Jónsdóttir en þangað mætir hún a.m.k. tvisvar eða þrisvar í viku. „Ég greindist með krabbamein árið 1999. Þá var endurhæfingin í Kópavogi á vegum ríkisins en hún var lögð niður. Ljósið var svo stofnað af Ernu Magnúsdóttur og er sjálfstætt starfandi stofnun sem fær enga styrki frá ríkinu. Erna plataði mig síðan í stjórn og nú vinn ég með og aðstoða þá sem eru að ganga í gegnum þetta erfiða ferli.“ Erna tekur nú þátt í handverksmarkaðnum í fyrsta skipti en hún býr til skartgripi úr gleri. „Þetta er gler sem við brennum. Við hönnum skartgripina frá grunni, alveg frá því að skera glerið, móta það og líma. Þetta eru hinir flottustu gripir. Ég er sjálf alltaf með men um hálsinn,“ seg- ir hún. Erna segir Ljósið nauðsynlegt fyrir fólk sem berst við krabbamein. „Það skiptir ofsalega miklu máli þegar fólki líður illa að geta komið og hitt aðra í sömu sporum. Hér fær það andlega og lík- amlega aðstoð en það er enginn staður eins og Ljósið til annars staðar. Það er gaman að segja frá því að kona, sem var sænskur sendiherra hér á landi, kom sérstaklega hingað til að skoða Ljósið því það er engin fyrirmynd að því. Hún ætlar að stuðla að því að stofna svipaða starfsemi í Sví- þjóð.“ Aðeins lítill hluti af úrvalinu á markaðnum. Guðrún býr til skartgripi. V ið erum að selja peysur sem eru hannaðar hérna, húf- ur, ullarþæfingu, bútasaum, leðurtöskur, útskorið tré, glerlistaverk, myndlist, alls konar prjónavörur og kökur. Það verður einnig kaffihúsastemning þar sem við seljum kaffi og vöfflur, Kvennakór Kópavogs kemur og syng- ur og meðlimir úr Sinfóníuhljómsveit Íslands spila fyrir okkur jólalög. Það verður rosaleg stemning,“ segir Erna Magnúsdóttir, forstöðukona Ljóssins, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöðvar fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendendur þeirra. Í dag, sunnudag, milli kl. 13 og 18 verður haldinn handverksmarkaður í húsnæði Ljóssins, á Langholtsvegi 43. Skemmtileg stemning myndast „Markaðurinn er alltaf að verða stærri og flottari og úrvalið meira,“ segir Erna en þetta er í fjórða sinn sem markaðurinn er haldinn. „Það hefur alltaf gengið ofboðslega vel. Aðsóknin var af- ar góð í fyrra og við búumst við enn fleiri núna enda miklu meira í boði í ár en í fyrra.“ Vörurnar sem verða seldar á markaðnum eru allar búnar til af fólki sem er í endurhæfingu hjá Ljósinu, svokölluðum Ljósberum, aðstandendum þeirra eða listamönnum sem gefa Ljósinu verk sín. Eru þær meira og minna búnar til í húsnæði Ljóssins og rennur ágóðinn af sölunni óskiptur til Ljóssins. „Það myndast af- skaplega skemmtileg stemning þegar undirbúningurinn að hand- verksmarkaðnum hefst,“ segir Erna en að hennar mati skipar markaðurinn stóran sess í lífi Ljósberanna. „Það er eins og þau séu að koma til vinnu sinnar þegar þau taka þátt í handverkinu. Þetta er gleðistund, fólk er að spjalla saman, ekki um krabbamein og veikindi heldur daginn og veginn og hlæja saman. Þetta veitir þeim mikinn styrk, eykur sjálfstraust þeirra og veitir þeim vel- líðan og gleði,“ segir Erna. „Besta forvörn gegn því að veikjast aftur er að hafa eitthvað fyrir stafni, hitta aðra og gleðjast saman. Þess vegna held ég að svona margir vilji taka þátt í þessu með okkur.“ Veitir Ljós- berum styrk og gleði Handverksmarkaður Ljóssins verður haldinn í dag við undirspil meðlima Sinfóníuhljómsveitar Íslands og kvennakórs Kópavogs. Ylfa Kristín K. Árnadóttir ylfa@mbl.is Mikið var um að vera í Ljósinu í liðinni viku þar sem keppst var við að leggja lokahönd á vörurnar sem seldar verða á markaðnum í dag. Í leiðinni var mikið spjallað og hlegið. Morgunblaðið/Heiddi Ýmsar fallegar flíkur verða í boði. Hönnun Fjölbreytt dagskrá hjá Ljósinu Ljósið hefur verið starfrækt síðan haustið 2005. „Hingað koma á þriðja hundrað manns á mánuði til að fá endurhæf- ingu og stuðning. Það eru nokkur hundruð komur á viku,“ segir Erna og bætir við að þar sé viðamikil dagskrá í boði á hverjum degi, t.d. jóga, líkamsrækt, gönguhópar, sjálfstyrkingarnámskeið, aðstandendanámskeið o.fl. Byrjað var að undirbúa handverksmarkaðinn af fullum krafti í byrjun september. „Þetta er liður í fjáröflun okkar. Við lifum mikið á styrkjum og þetta er einn styrkurinn. Það er líka gaman fyrir okkur að fá fólk hér inn í hús að skoða og sjá að þetta er heimilislegt og notalegt hús. Fólki finnst það ekki vera að fara inn á stofnun heldur inn á heimili, inn í stórt fjöl- skylduhús.“ Að sögn Ernu geta þeir, sem koma í endurhæfingu í Ljós- ið, komið með börnin sín, barnabörn, systkini, foreldra. „Það er allt niður í ungbörn hérna hjá okkur með foreldrum sínum sem hafa greinst með krabbamein.“

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.