SunnudagsMogginn - 29.11.2009, Page 39

SunnudagsMogginn - 29.11.2009, Page 39
29. nóvember 2009 39 Sigurður Már Helgason hannaði og smíðaði fyrsta fuzzy-stólinn árið 1972 og hefur eftirspurnin eftir honum verið stöðug síðan. Fuzzy er lítill kollur með sútaðri lambsgæru og minna fæturnir á teygða vatnsdropa. Hægt er að fá gæruna í sex ólíkum litum og fæturna í þremur. „Hugmyndin er í raun komin úr fjósakoll- inum,“ segir Sigurður, sem er lærður húsgagnabólstrari. Á dögunum smíðaði Sigurður þúsundasta fuzzy stólinn og af því tilefni var búin til sérstök hátíðarútgáfa þar sem stóllinn er með álfótum. „Hugmyndin var að tengja saman íslensku kindina, sem við höfum lifað á í gegnum aldirnar, við nýja tímann,“ segir Sigurður en há- tíðarútgáfuna er hægt að nálgast í Kraum, Epal og Mýrinni. Árið 1972 var Sigurður að hætta störfum og seg- ist hafa farið að föndra við að búa til stólinn. Hann sló í gegn og var afar vinsæl fermingargjöf næstu árin á eftir. „Á þriðjudaginn hringdi í mig fimm- tug manneskja og sagðist hafa fengið stólinn í fermingargjöf. Hún hafði týnt einni löppinni und- an stólnum og vildi vita hvort ég gæti hjálpað henni með það. Það er afskaplega gaman þegar fullorðið fólk segir mér frá slíku,“ segir Sigurður. Hann segir það hafa komið sér á óvart að stóll- inn yrði vinsæll svona lengi, hann bjóst ekki við að vera enn að smíða fuzzy-stóla tæpum fjörutíu ár- um eftir að fyrsta eintakið leit dagsins ljós. „Þetta er búið að koma mikið á óvart. Ég var bara að búa mér til lifibrauð á sínum tíma en öllum þykir stóll- inn fallegur. Sumir stilla honum upp sem húsgagni en aðrir sem listmun,“ segir Sigurður og bætir við að stóllinn hafi á sínum tíma farið vítt og breitt um Evrópu og til Bandaríkjanna með Scandinavian Design og að auki sé eitt eintak af stólnum til sýnis hjá Hönnunarsafni Íslands. „Það sem hefur komið mér mest á óvart er að stóllinn er núna til sölu í Magasin du Nord. Það er búið að senda prufusend- ingu þangað og það hafa orðið einhver viðbrögð, hvað það verður veit ég nú ekki. En þetta hefði mér aldrei dottið í hug, að ég myndi selja húsgögn til Danmerkur. Danir eru miklir snillingar og maður hefur lært mikið af samskiptum við þá.“ ylfa@mbl.is Húsgagn og listmunur Fuzzy stólana er hægt að fá í mörgum mismunandi útfærslum. Getur kaupandinn ráðið lit fótanna og gærunnar. Sigurður Már Helgason Íslensk hönnun Hendrikka Waage og Hönnunarmiðstöð Íslands standa fyrir keppni um hönnun á skartgripalínu sem verður markaðssett undir merki Hendrikku Waage og siguvegara keppninnar. Keppnin gengur út á að hanna hálsmen, armband, eyrnarlokka og hring og er keppn- in öllum opin. Verðlaunahafi hlýtur 500.000 kr. verðlaun sem Hendrikka Waage leggur til en línan verður seld víðs vegar um heim. Veitt verður sérstök viðurkenning fyrir frumlegustu tillöguna. Keppnin hófst sl. þriðjudag en skilafrestur rennur út föstudaginn 15. janúar. Úrslit samkeppninnar verða tilkynnt 29. janúar 2010 en á sama tíma verða valdar tillögur sýndar. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Hönn- unarmiðstöðvar. Efnt til skartgripasamkeppni Sunna Dögg Ásgeirsdóttir hannar barnaföt undir merk- inu Sunbird en nafnið vísar í hana og dóttur hennar Lóu. Um er að ræða hversdagsföt á stelpur og stráka á aldrinum 1-7 ára og eru þau öll úr 100% bómull. Sunna hefur lengi hannað föt en lengst af voru fötin ætluð fullorðnum. „Það hefur blundað lengi í mér að gera barnafatalínu,“ segir hún. Sunna sækir innblástur í dótt- ur sína og börnin í kringum sig. „Líka hvernig krakkar hreyfa sig og eru ómeðvitaðir um stað og stund, óhræddir að prufa eitt- hvað nýtt. Ég reyni að færa ódauðleikann í hreyfingum þeirra yfir í fötin en það er eins og börnin stoppi aldrei. Svo er kög- ur og annað í fötunum sem ýkir hreyfingarnar. Einnig passa ég að fötin hefti ekki hreyfigetu þeirra, því það er svo mikill leik- ur í þeim.“ Sunna segist hafa haft foreldrana í huga en bóm- ullin í fötunum er auðveld í þvotti. Sunna útskrifaðist úr vöru- hönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2004 en segist hafa hann- að föt allt sitt líf. „Ég fór í vöru- hönnun til að fá þrívíddarpæl- inguna í fötin líka. Ég er afar ánægð með að hafa valið þá leið því ég fékk víðari sýn á allt, lærði m.a. betur á tölvur og ýmis tölvuforrit.“ Sunbird barnafötin er hægt að kaupa á Pop Up markaðnum en gerist maður aðdáandi Milliliða- lausrar Verzlunar á Facebook fær maður tilkynningu um hvar og hvenær næsti markaður verð- ur haldinn. Þá er Sunna að hanna jólakjól sem verður til sölu í búðinni Rumputuski á Laugaveginum en að auki er hægt að versla föt hennar á sun- birdkids.com. Sunna segir hreyfingar barna hafa veitt sér inn- blástur og einnig hvern- ig þau eru ómeðvituð um stað og stund. Ódauðleiki í hreyfingu barnanna Sunna Dögg Ásgeirsdóttir Greiðslujöfnun íbúðalána Lán Íbúðalánasjóðs verða greiðslujöfnuð frá og með 1. desember 2009 Áætluð lækkun á mánaðarlegri greiðslubyrði er allt að 17% Afþakka þarf greiðslujöfnun fyrir 20. nóvember Nánari upplýsingar ásamt tilkynningu um afþökkun er að finna á vefsíðu Íbúðalánasjóðs Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969 www.ils.is

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.