SunnudagsMogginn - 29.11.2009, Qupperneq 43
29. nóvember 2009 43
Sunnudagur 29.11. Stöð 2 BÍÓ kl. 22:00.
Byggð á sannri sögu írsk-ítalsks bófa (Ray
Liotta), sem á frá bernsku þann draum heit-
astan að verða gangster. Fyrr en varir kom-
inn í réttan félagsskap (Robert De Niro, Joe
Pesci, Paul Sorvino). 30 ára tímabil auðg-
unarglæpa, manndrápa, peningaflæðis og
glæsilegs Hollywood-lífsstíls sem endar
með að allir eru á varðbergi og hugsa um
það eitt að bjarga eigin skinni. Eitt af meist-
araverkum Martins Scorseses. bbbbb
Goodfellas
Kvikmyndir
Þ
að hafa örugglega velflestir les-
ið það aftur þegar þeir rákust
fyrst á nafnið The Men Who
Stare at Goats og velt fyrir sér
hvað í ósköpunum væri á seyði. Mynd
um einmana geitahirða á útnára Mið-
Austurlanda eða bónda á Hebrides-
eyjum?
Öðru nær. Menn sem stara á geitur er
ný, metnaðarfull bresk/bandarísk mynd
með úrvalsleikurunum George Clooney,
Jeff Bridges, Ewan McGregor, Kevin
Spacey og Rebeccu Mader (sem líklega
mænir á geitasmalana). Myndin er sögð
léttgeggjuð eins og glampinn í augum
Clooneys og frábær aðlögun sam-
nefndrar bókar sem fjallar um „ólíka
valkosti hernaðaráætlana Bandaríkja-
hers“. Aðgerðir sem nýta dulræna og
yfirskilvitlega hæfileika til að brjóta nið-
ur óvininn. Titillinn höfðar til þjálfunar-
reglna þar sem nýliðar eru æfðir í að láta
búsmala riða til falls með því að einblína
á hann. Á kreditlistanum er setning sem
segir víst allt sem segja þarf: „Hér er
meiri sannleikur en þér getur til hugar
komið.“
Clooney leikur Lyn Cassidy, leynilegan
stríðsráðunaut sem hættir á eftirlaunum
og snýr aftur til að þjóna föðurlandinu
eftir hryðjuvekin jafnan kennd við 11.
september, en sérgáfa hans er eyðing
skýja (með því að stara á þau uns þau
hverfa) og önnur brögð byggð á hugar-
orkunni einni saman. Myndin gerist á
tímum „Aðgerð: Frelsum Írak“, Íraks-
stríðsins öðru nafni, og Cassidy, sjálf-
skipaður Jedi-riddari sem sér í gegnum
holt og hæðir, og hugsanlega snarrugl-
aður, er sendur til landsins til að beita
sínum mikilfenglegu dulargáfum – og
hafa uppi á hinum goðsagnakennda Bill
Django (Jeff Bridges), fyrrverandi her-
manni í Víetnam og stofnanda sérsveit-
arinnar. Nokkrum áratugum áður pré-
dikaði hann hippaboðskap yfir her-
mönnum og er hugsanlega búinn að
hreiðra um sig fyrir margt löngu á svæð-
um sem nú eru vettvangur stríðsins.
Larry Hooper (Kevin Spacey) er
keppinautur Djangos. Hann er hern-
aðarfræðingur sem hefur fræði Machi-
avellis að leiðarljósi í aðgerðum sínum á
svæðinu, þar sem hann fer fyrir hópi
rugludalla. Í för með Cassidy frá Kúv-
eitborg inn í Írak er Bob Wilton (Mc-
Gregor), lítt þekktur bandarískur blaða-
maður, hinn hlutlausi athugandi og
sögumaður myndarinnar sem trúir tæp-
ast þeim undarlegu uppákomum sem
fyrir augu ber. Fæst af því er tiltakanlega
djúphugult: Menn reyna að brjótast í
gegnum múrveggi og ýmiss konar tálm-
anir á hugaraflinu einu. Ef þið hafið
skoðað sýnishornið á netinu sjáið þið
umbúðirnar á nebbanum á Clooney, sem
er afleiðing slíkra tilrauna, sjálfur er
hann e.k. bræðingur af Clark Gable og
Groucho Marx. Bridges er sýndur í end-
urliti frá Víetnam og ólíkum gjörningum
á milli stríðanna tveggja og bregður sér í
„Dude“-karakterinn góða sem við mun-
um úr The Big Lebowski (þótt við mun-
um fátt annað), með sitt háleita hass-
hausa-tilfinninganæmi sem flæðir eins
og útblástursreykur úr lungum hans.
The Men Who Stare at Goats hefur
hlotið góða dóma hjá ýmsum virtustu
gagnrýnendum Bandaríkjanna, sem
segja hana afskaplega fyndna og for-
vitnilega háðsádeilu á hömlulausa stríðs-
firringu Bandaríkjamanna. Myndin
verður sýnd hérlendis á vegum Sambíó-
anna og bendir flest til að hún verði tek-
in til sýningar snemma á næsta ári frekar
en í miðjum darraðardansi jólamynd-
anna.
Hjartaknúsarinn George Clooney starir á geit.
Gónið þér á geitur, herrar?
Nöfn á bíómyndum eru sjaldan ýkja frumleg, öllu frekar
markaðsvæn. Það á ekki við um Men Who Stare at Goats.
Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is
Föstudagur 4.12. Stöð 2. kl. 0:35 Stór-
brotin Óskarsverðlaunamynd sem gerist um
síðustu aldamót og fjallar um kapphlaupið
um olíuauðlindirnar í Bandaríkjunum og þá
miklu grimmd sem þar ríkti. Daniel Day-
Lewis sýnir einn sinn besta leik á ferlinum.
Hann hlaut Óskarsverðlaunin fyrir sem besti
leikari í aðalhlutverki en myndin hlaut alls
átta tilnefningar. Lýtalaus mynd og ljót uns
kemur að endasleppu niðurlagi. Með Martin
Stringer og Kevin J. Connor. Leikstjóri: Paul
Thomas Anderson.bbbbm
saebjorn@heimsnet.is
There Will Be Blood
Myndin er ein af nokkrum mikilvægum
verkum hins skammlífa leikstjóra Hals
Ashbys. The Last Detail er umdeilanlega
besta mynd leikstjórans og í miklu uppá-
haldi á þessum bæ, ein þeirra sem hægt
er að sjá aftur og aftur. Óvenju þétt og
gallalítil, byggð á handriti Roberts
Townes, safaríku og kjarnyrtu, þráð-
urinn margslunginn, persónusköpun
skýr, leikurinn afbragð, kvikmyndataka
Michaels Chapmans gráleit og dumb-
ungsleg við hæfi innihaldsins. Leikstjórn
Ashbys slík að með myndinni var hann
kominn í fremstu röð ungra leikstjóra í
Bandaríkjunum. Það sem menn fettu
helst fingur út í var gróft orðbragðið,
enda aðalpersónurnar, Billy „Bad Ass“
Buddusky (Jack Nicholson) og „Mule“
Mulhall (Otis Young),
harðsoðnir atvinnu-
sjóliðar af lægri gráð-
unum. Þeir eru valdir til
að flytja Larry Meadows
(Randy Quaid), einfald-
an, bláeygan og stel-
sjúkan nýliða, í fangelsi í
öðrum landshluta. Í
upphafi hyggjast fé-
lagarnir ljúka þessu
verki af í snatri og sletta
síðan ærlega úr klauf-
unum. Sú áætlun breyt-
ist, harðjaxlarnir fá samúð með brjóst-
umkennanlega ungmenninu sem ekkert
þekkir lífið sem hann hefur tæpast hafið
og á fyrir höndum langa frelsissviptingu
fyrir smámuni. Gera það fyrir
hann sem þeir geta þessa síð-
ustu daga utan rimlanna. En
öllum góðum stundum lýkur.
Hrjúf blanda gamans og al-
vöru, oft bráðfyndin en al-
varan skammt undan, við er-
um minnt á það með
kuldalegum litum og um-
hverfi en hlýjan er einnig til
staðar, og þar sem síst skyldi,
hjá rustalegum sjóurunum.
Þeir hafa hjartað á réttum
stað og Nicholson hefur
sjaldan verið betri en hinn óheflaði,
tæpitungulausi Buddusky, sem lúrir á
ýmsu óvæntu undir skrápnum.
saebjorn@heimsnet.is
Kvikmyndaklassík The Last Detail
Sjóararnir og nýliðinn
Sjóararnir rustalegu.
Laugardagur 28.11. Stöð 2 kl. 22:45. Harð-
soðin lögga (Gene Hackman) kemst ásamt
félaga sínum (Roy Scheider) á spor al-
þjóðlegs eiturlyfjahrings í NY. Valinkunnur
löggufélagakrimmi, hlaðinn spennu og of-
beldi frá upphafi til enda, með einum hrika-
legasta bílaeltingaleik sögunnar. Fernando
Ray er tilkomumikill þrjótur og Hackman er
yndislega grófur og ruddafenginn sem hinn
raunverulegi „Popeye“ Doyle og uppskar
Óskarinn. Myndin, sem hlaut fern önnur, er
ósvikin klassík og ein af myndunum sem
mótuðu anda 8. áratugarins. Leikstjóri: Willi-
am Friedkin. bbbbb
The French
Connection
Myndir vikunnar í sjónvarpi