SunnudagsMogginn - 29.11.2009, Page 44
44 29. nóvember 2009
Morrissey er nú á tónleika-
ferð um Evrópu að kynna
síðustu breiðskífu sína og
hefur gengið á ýmsu.
Á tónleikum í Hamborg í
síðustu viku spaugaði
hann með það að rangt
væri að kalla íbúa borg-
arinnar Hamborgara og
lagði til heitið Hamborg-
ista, en áheyrandi í fremstu röð tók því illa. Á
YouTube má sjá að Morrissey snýr sér að
viðkomandi og krefur hann svara um hnýfil-
yrði sem hann hafi hreytt í söngvarann. Við-
komandi á erfitt með að svara fyrir sig og við
svo búið lætur Morrissey kasta honum út.
Þegar hinn ólánssami hrópar til Morrissey:
„En ég elska þig!“, svarar hann að bragði:
„Elskaðu mig þá úti.“
Morrissey í
Hamborgistan
Hver elskar ekki
Morrissey?
Tónlist
Ekki það að ég skammist mín
beinlínis fyrir það en ég var
eitt sitt hippi. Því til sönn-
unar dreg ég fram erkiplötu
hippatímans, It’s a Beautiful
Day, með samnefndri hljóm-
sveit sem var í miklu uppá-
haldi hjá mér um 1970. Dugi
nafnið (og umslagið) ekki til
býð ég mönnum að hlusta á plötuna
sjálfa: draumkennd textavella um yf-
irnáttúrlega fegurð og innihaldsríkt líf
og músíkin eins og sykraðir sykurmolar
(nei ekki þeir Sykurmolar).
It’s a Beautiful Day var stofnuð í San
Francisco í Kaliforníu (nema hvað) af
fiðluleikaranum og söngvaranum David
LaFlamme, en auk hans var Linda, eig-
inkona hans í sveitinni, en af
öðrum liðsmönnum segir
fátt. Fyrsta skífa sveitarinnar
vakti gríðarlega athygli, en
fyrir einhverjar sakir náði
It’s a Beautiful Day aldrei að
fylgja því eftir. Líkleg skýr-
ing hlýtur að vera ör
mannaskipti í sveitinni sem
hafði oft svo mikil áhrif á tónlistina að
aðdáendur hrökkluðust frá. (Gott dæmi
um það er þriðja skífa sveitarinnar
Choice Quality Stuff / Anytime –
hljómsveitin á b-hliðinni á lítið sameig-
inlegt við þá sem tók upp lögin á a-
hliðinni.)
Hljóðfæraskipan er mjög hippaleg á
þessari fyrstu plötu hljómsveitarinnar,
LaFlamme með fiðluna á loft í tíma og
ótíma, viðkvæmnislegar raddir þeirra
hjóna, flauta, bjöllur, celeste og slag-
harpa í bland við rafgítara og tilheyr-
andi og Patty sáluga Santos syngur eins
og engill. Slíka músík kölluðu menn
sýru á þeim tíma, þó að hún sé nú ekki
ýkja súr í dag, en á næstu skífu mjak-
aðist sveitin í átt að meira þjóðlagarokki
(og meiri leiðindum) og svo fór hún
eiginlega í allar áttir. Hún er enn að eða
réttara sagt var endurreist fyrir áratug
eða svo.
Rokkáhugamenn geta svo skemmt sér
við þann fróðleiksmola að inngangurinn
á Deep Purple-laginu „Child in Time“
er byggður á laginu „Bombay Calling“
arnim@mbl.is
Poppklassík: It’s a Beautiful Day – It’s a Beautiful Day
Erkiplata hippatímans
Þ
að er ekkert nýtt að listamenn verði æ yngri;
tónlistarmenntun er almennari og auðveldara er
fyrir ungt fólk að komast í hljóðfæri en nokkru
sinni. Eins er auðveldara og einfaldara fyrir það
að komast í upptökugræjur og -tól sem gera kleift að bera
hugverkin undir aðra, til að mynda með því að skella lög-
unum inn á MySpace eða YouTube. Þegar við bætist að
æskudýrkun rís hærra en nokkru sinni er varla nema von
að ungmenni séu að leggja undir sig vinsældalista um allan
heim.
Í sumar hefur þannig talsvert borið á unglingsstúlk-
unum Johanna og Klara í First Aid Kit og einnig telpna-
flokknum Those Dancing Days, en fremstar í flokki í
sænsku poppvakningunni eru tvíburarnir í Taxi Taxi!
Einfalt og grípandi
Ein af skemmtilegustu uppákomum á Spot hátíðinni í Ár-
ósum var tónleikar sænsku tvíburanna Johanna og Miriam
Eriksson Berhan sem kalla sig Taxi Taxi! Þær spila einfalt
og grípandi popp, Johanna á gítar og Miriam á dragspil og
syngja báðar afbragðsvel, sú síðarnefnda með heldur
sterkari rökk. Þó þær systur séu enn innan við tvítugt,
fylla annan tuginn eftir hálfan annan mánuð, hafa þær
verið alllengi að; sendu frá sér fyrstu plötuna aðeins fimm-
tán ára gamlar, en byrjuðu víst að spila saman og semja lög
níu ára. Eftir að hafa getið sér gott orð og notið hylli á
MySpace fimmtán ára gerðu þær það gott heima í Svíþjóð
með stuttskífunni Taxi Taxi!, sem kom út 2007, en Bjorn
Yttling, þriðjungur Peter, Bjorn & John, tók að sér upp-
tökustjórn á skífunni. Þær komust síðar á samning hjá því
fína fyrirtæki Rumraket, sem gefur meðal annars út ami-
inu okkar, og önnur stuttskífa, Step Out Into The Light,
kom út í byrjun ársins 2009. Fyrsta platan, Still standing at
your back door, kom svo út í september síðastliðnum, en
um hana véla þeir Johan Berthling og Joachim Ekerman,
sem báðir eru í fremstu röð norrænna tónfræðinga.
Á skífunni er lágstemmt popp í aðalhlutverki með
draumkenndum söng og naumhyggjulegum útsetningum.
Söngurinn er í forgrunni, Miriam leiðandi með Bjarkar-
kenndar áherslur á köflum. Johanna stendur sig líka bráð-
vel en bestar eru þær þegar raddirnar falla saman. Þær sjá
sjálfar um kassagítar og dragspil, en grípa líka í önnur
hljóðfæri eftir því sem lögin krefjast þess, aukinheldur sem
aðrir hljóðfæraleikarar leggja þeim lið.
Lágstemmt
popp
Svíar eru naskir á poppið, eins
og talið er hér til hliðar, en
engu er líkara en þeir lista-
menn sem þaðan berast út um
heiminn séu æ yngri.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Taxi
Taxi!
Mikið var látið með Bítlana og tölvuleikinn
The Beatles: Rock Band þar sem leikendur
gátu spreytt sig á að spila lög fjórmenning-
anna frábæru. Salan á leiknum varð reyndar
ekki sú sem menn höfðu spáð og vonað, en
útgefandinn heldur ótrauður áfram að bæta
við efni og nú er hægt að glíma við eitt
þriggja meistaraverka þeirra félaga: Sgt.
Pepper’s Lonely Hearts Club Band.
Titillagið og lögin With A Little Help From
My Friends, Lucy In The Sky With Diamonds,
Getting Better, og Good Morning Good Morn-
ing eru reyndar í leiknum, en þau átta lög
sem útaf stóðu verða nú verða aðgengileg.
Sgt. Pepper í
stafrænan búning
Svo birtist Paul McCartney í viðbótinni
við The Beatles: Rock Band.
World of Warcraft er magnaður leikur og auð-
velt að gleyma sér í honum sem getur komið
niður á öðrum hlutum eins og færni í mann-
legum samskiptum og almennri skynsemi.
Dæmi um hugsunarhátt WoW aðdáanda
birtist einmitt í máli sem höfðað var vestan
hafs gegn framleiðanda leiksins, en í málinu
er því meðal annars haldið fram að of dýrt sé
að spila leikinn og eins að þeir sem spili
hann of mikið lendi í erfiðleikum með sam-
skipti við fólk í daglegu lífi.
Til að sanna mál sitt krefst málshöfðandi
þess að ýmsir sérfræðingar verði kallaði fyrir
dóm, þar á meðal Martin Gore, sem sé sér-
fæðingur í firringu og einsemd eins og heyra
megi í lögum hans. Þess má svo geta að við-
komandi hefur einnig höfðað mál gegn Sony,
Microsoft og Nintendo fyrir ýmsar sakir.
Martin Gore, sér-
fræðingur í firringu
Firringarfræðingurinn Martin Gore, lengst til
hægri, með félögum sínum í Depeche Mode
Svíar hafa verið naskir við að setja saman grípandi popp á undan-
förnum árum; fagmannlega gert og frumlegt í senn sem sannast á
þeim stöllum í Taxi Taxi! sem gerðar eru að umtalsefni hér til hliðar.
Það er líka til fullt af forvitnilegu poppi öðru frá Svíþjóð: El Perro
del Mar, I’m From Barcelona, Jenny Wilson, Jens Lekman, Loney,
Dear, Love Is All, Lykke Li, Nicolai Dunger, Peter Bjorn and John,
Stina Nordenstam, The Concretes, The Radio Dept., The Tiny, The
Field og Juvelen, en þrjár síðasttöldu sveitirnar tróðu upp á síðustu
Airwaves hátíð nú í haust sælla minninga.
Sænskt gæðapopp
Juvelen.