SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Qupperneq 6
6 6. desember 2009
Hvað segir niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar í
Sviss um bann við bænaturnum við moskur okkur um
beint lýðræði? Þýska vikuritið Die Zeit spurði Micheline
Calmy-Rey, utanríkisráðherra Sviss, hvort niðurstaðan
bæri takmörkunum beins lýðræðis vitni. Hún svarar því
til að mikla áherslu þurfi að leggja á efnislega upplýs-
ingagjöf. „Hvað varðar atkvæðið um bænaturnana var
þyrlað upp ryki í opinberri umræðu með röngum staðhæf-
ingum. Frumkvæðið að atkvæðagreiðslunni kom frá póli-
tískum flokki, sem ber stjórnarábyrgð. Það er óvið-
unandi.“
Í Die Zeit spyr Markus Horeld blaðamaður hvort menn
vilji að kjósendur sem eru óttaslegnir eða í tilfinn-
ingalegu uppnámi taki ákvarðanir í mikilvægum málum.
Hann svarar því til að þjóðaratkvæðagreiðsla sé helgasti
grundvöllur lýðræðislegrar þátttöku, sem ekki megi
draga í efa vegna einnar, undarlegrar niðurstöðu: „Þegar
nú er varpað fram efasemdum um beint lýðræði og fullyrt
að í mikilvægum, þjóðfélagslegum spurningum skorti
fólkið hæfni, ber það vitni hroka pólitískrar stéttar og
einnig fjölmiðlastéttar, sem annars vegar heldur að hún
viti allt betur og hins vegar bregst hvað eftir annað þegar
þarf að útskýra betur pólitíkina og það sem að baki býr.“
Hroki hinnar pólitísku
stéttar og fjölmiðla
Micheline Calmy-Rey, utanríkisráðherra Sviss.
Reuters
Á
kvörðun Svisslendinga um að banna
mínarettur við moskur hefur vakið
mikil viðbrögð og ólík. Ákvörðunin er
niðurstaða þjóðaratkvæðis og voru
57,5% fylgjandi banninu, en 53% kjósenda tóku
þátt í atkvæðagreiðslunni.
Frumkvæði að þjóðaratkvæðinu átti Svissneski
þjóðarflokkurinn og hefur niðurstaðan gefið hon-
um byr undir báða vængi. Næst á dagskrá segir
Walter Wobman, sem leiddi frumkvæðið að at-
kvæðagreiðslunni, vera bann við þvinguðum
hjónaböndum, umskurði og því að konur hylji
ásjónu sína með slæðum.
Víða í Evrópu fögnuðu flokkar, sem hafa sett
málefni innflytjenda á oddinn, niðurstöðunni.
„Húrra fyrir Sviss!“ sagði Pia Kjærsgaard, leiðtogi
Danska þjóðarflokksins, og kvaðst ætla að knýja
fram sams konar atkvæðagreiðslu í Danmörku. Til
þess þarf reyndar 60 atkvæði á þingi, en flokkur
hennar hefur 25 sæti og vantar því nokkuð upp á.
Geert Wilders, leiðtogi Frelsisflokksins í Hol-
landi, sagði að Sviss hefði brotið blað: „Í fyrsta
skipti hefur fólk í Evrópu lagst gegn íslamísering-
unni.“ Flokkurinn vill banna múslimum að flytja
til landsins og að reistar verði fleiri moskur. Sam-
kvæmt skoðanakönnunum yrði flokkur Wilders
næst stærsti flokkur Hollands yrði kosið nú.
Í sambandslandinu Kärnten í Austurríki ríkir nú
þegar bann við bænaturnum. Að því stóð flokkur
Jörgs Haiders heitins. Arftaki þess flokks, Samtök
um framtíð Austurríkis, fagnaði úrslitunum.
„Trúfrelsi má ekki ganga svo langt að reisa megi
trúalegar byggingar, sem ekki eru kristilegar,“
sagði Gerhard Dörfler, leiðtogi Kärnten.
Svipaðrar gleði gætti í herbúðum Norður-
sambandsins á Ítalíu. „Fáni hinna hugrökku
Svisslendinga blaktir nú yfir hinni nánast ísl-
amíseruðu Evrópu,“ sagði Mario Borghezio,
fulltrúi flokksins á Evrópuþinginu.
Þjóðarfylkingin í Frakklandi skoraði á hinar
ráðandi stéttir að „taka mark á ótta almennings í
Evrópu“.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar hefur einnig
verið fordæmd víða. Í Sviss lögðust margir gegn
því að tillagan um bannið yrði samþykkt, þar á
meðal fulltrúar bæði evangelísku og katólsku
kirkjunnar, sem óttast að niðurstaðan auki
spennuna í samfélaginu og geri aðlögun múslíma
erfiðari. Trúarlegir minnihlutahópar megi nú gera
ráð fyrir því að verða misrétti beittir.
Svissnesk stjórnvöld voru andvíg banninu og
sömuleiðis samtök í svissnesku viðskiptalífi, sem
óttast nú að hvatt verði til viðskiptabanns gegn
Sviss í arabaheiminum. Svissneska vinnuveit-
endasambandið telur að orðspor Sviss sem opið og
umburðarlynt land hafi skaðast.
Íslamskir leiðtogar hafa fordæmt niðurstöðuna
og sagði Ali Gomaa, stórmúfti í Egyptalandi, einn
helsti kennimaður múslíma, að hún væri móðgun
við múslíma. Í Evrópu hafa flokkar nær miðju
harmað niðurstöðuna, þótt t.d. megi í flokki
Nicolas Sarkozys, forseta Frakklands, finna
stuðning við bann. Bernard Kouchner, utanrík-
isráðherra utan flokka í stjórn Sarkozys, var hins
vegar ómyrkur í máli: „Þetta er birtingarmynd
umburðarleysis og ég fyrirlít umburðarleysi.“
Bænaturninn á mosku Íslömsku menningarstofnunarinnar í Genf er
einn af fjórum slíkum turnum í Sviss.
Reuters
Sviss vekur deilur
um trúarbrögðin
Jaðarflokkar í Evrópu fagna
banni við bænaturnum
Vikuspegill
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Stuðningsmenn bannsins gerðu auglýsingaspjöld
þar sem bænaturnar stungust gegnum svissneska
fánann eins og eldflaugar og fremst var kona hulin
svörtum klæðum. Tekið var til þess að svart, hvítt og
rautt voru einkennislitir þýskra nasista.
Reuters
Stenst bannið?
Niðurstöðu þjóðaratkvæðis-
ins í Sviss um að banna
bænaturna þarf nú að taka
upp í svissnesku stjórnar-
skrána. Ekki er þó víst að
bannið taki gildi. Bent hefur
verið á að það stangist líklega
á við mannréttindasáttmála
Evrópu og sáttmála Samein-
uðu þjóðanna, sem væru
bindandi fyrir Sviss. Á það
þyrfti þó að reyna fyrir dómi. Reuters
www.noatun.is
Veislan
hefst í
Nóatúni
OPAL SEAFOOD
BLINIS
20%
afsláttur
OPAL SEAFOOD
GRAFINN OG
REYKTUR LAX
15%
afsláttur