SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Blaðsíða 33

SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Blaðsíða 33
6. desember 2009 33 Baldur Sveinsson hefur sent frá sér þriðju bókina á jafnmörgum árum með myndum af flug- vélum yfir Íslandi. Fyrst komu flugvélar á og yfir Íslandi, síðan Flugvélar 2008 og nú Flugvélar 2009. Beint liggur við að spyrja hvort hér sé um ársrit að ræða. „Já, svo lengi sem þessi bók setur mig ekki á hliðina,“ segir Baldur og brosir. Fyrsta bókin gekk mjög vel, þrjú þúsund eintök voru prent- uð og segir Baldur menn hafa slegist um þau síðustu á Þor- láksmessu 2007. Í kjölfarið var hann hvattur til að fylgja henni eftir og lét slag standa. Flug- vélar 2008 kom að vísu seint í verslanir en þó nógu snemma til að Baldur tapaði ekki á henni. „Viðtökur hafa verið það góðar að ég ákvað að halda áfram,“ segir hann. Þess má geta að Baldur er eini maðurinn sem myndað hefur íslenskar flugvélar með markvissum hætti og því er um mikilvægt innlegg í flugsögu þjóðarinnar að ræða. Svo sem nafnið gefur til kynna samanstendur nýja bók- in af myndum sem Baldur hef- ur tekið á þessu ári. Hún skipt- ist í fimm hluta sem eru: íslenskar flugvélar; erlendar gestavélar; flugdagar og flug- samkomur íslenskra flug- klúbba; litlar vélar á lækj- arbakka, þ.e. risaflugmódel á Tungubökkum og flugsýningin Flying Legends 2009 á Dux- ford-flugvelli á Englandi. Baldur gefur bókina út sjálfur undir merkjum Flugbóka ehf. Hann sér sjálfur um grafíska hönnun og uppsetningu en prentvinnsla og prentun fór fram hjá Leturprenti. „Þetta er einyrkja sprotafyrirtæki,“ segir Baldur. „Ég stend og fell með þessu.“ orri@mbl.is Nieuport 17 á Flugmódeldeginum á Tungubakkaflugvelli 15. ágúst. Eins og sjá má eru módelin mjög eðlileg. Baldur sótti heim flugsýninguna Flying Legends í Englandi í sumar. Þar náði hann þessari mynd af Spitfire Mk. Vb. Baldur Sveinsson (t.v.) ásamt Sigurjóni Valssyni flugmanni sem gjarnan flýgur með hann. Myndin er tekin yfir Langjökli. Um loftin blá Gæslu- og björgunarvél Landhelg- isgæslunnar, TF-SIF, kom ný til lands- ins í sumar. Hér er hún ásamt Super Puma-þyrlu Gæslunnar, TF-LIF. Falleg gjafakarfa me› úrvali af brag›gó›um íslenskum ostum er tilvalin jólagjöf handa starfsfólki og vi›skiptavinum Körfurnar eru afhentar í sellófani me› fallegri slaufu. Einnig bjó›um vi› fallega ostakassa til a› senda til vi›skiptavina og starfsfólks á erlendri grundu. Pantanir í síma 569 2345 eða á netfangið ostakorfur@ms.is www.ms.is Gómsæt gjöf fyrir sælkera
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.