SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Blaðsíða 40

SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Blaðsíða 40
40 6. desember 2009 S úkkulaðikaka Auðar Ingibjargar Konráðsdóttur lítur ljómandi vel út og ekki síður hnetusmjörs- konfektið, eins og sjá má á myndunum, og hvort tveggja er algjört sælgæti að hennar sögn. Þrátt fyrir að allt hráefnið sé hollt og gott! Það er sem sagt vel mögulegt að það tvennt fari saman. „Þetta er ákjósanlegt fyrir þá sem vilja borða hollustu án þess að dregið sé úr bragðgæðum,“ segir Auður Ingibjörg, sem er lærður kokkur og bakari. Liðin eru 17 ár frá því Auður gerðist grænmetisæta og það kom í raun ekki til af góðu. „Ég fékk ofnæmi fyrir fiski þegar ég var að ljúka kokkanáminu og varð að hugsa mataræðið alveg upp á nýtt,“ segir Auður. Síðan leggur hún áherslu á heil- brigðan lífsstíl. Grænmeti er uppistaðan. „Ég reyni að borða eins mikið lífrænt og ferskt og ég get en engan unninn mat og ég nota eng- in aukaefni.“ Hún segist í þeirri góðu stöðu að vera kokkur og því séu hæg heimatökin að vera með sífelldar tilraunir á fjölskyld- unni heima í eldhúsi! Þörf fyrir að deila reynslunni Auður segir að fyrir 17 árum hafi ekki verið mikið úrval matvæla hérlendis fyrir grænmetisætur en smátt og smátt hafi það breyst. Hún flutti á þessum tíma til Bandaríkjanna þar sem hún var við nám og störf til 2003, kom þá heim aftur og segir að það hefði verið eins og að koma í annað land en hún fór frá rúmum áratug áður. „Það hafði orðið mikil vakning í þessum málum; í raun hafði orðið algjör sprenging. Samt er enn langt í land.“ Auður hefur starfað á veitingastöð- unum Grænum kosti, Á næstu grösum og Manni lifandi en í fyrra missti hún vinn- una vegna kreppunnar og fékk í fram- haldi þess þá hugmynd að breiða út fagn- aðarerindið á sinn hátt; segist nú reyna að svipta hulunni af þeim leyndardómi sem hollusta í matargerð er. Hún hefur haldið námskeið; næst á dagskrá, á þriðjudaginn, er sérstakt jóla- námskeið og nýlega opnaði Auður heimasíðuna heilsukokkur.com. „Ég ákvað að kýla á þetta vegna þess að ég áttaði mig á því að margir eru í sömu sporum og ég var í fyrir 17 árum; langar að prófa en vita ekki alveg hvernig á að gera hlutina. Ég fann hjá mér mikla þörf að deila reynslu minni með öðrum; að aðrir fái tækifæri til að upplifa þá vellíðan Fann hjá mér mikla þörf að deila reynslu minni með öðrum; að aðrir fái tækifæri til að upplifa þá vellíðan sem fylgir því að borða hollan mat. Morgunblaðið/Kristinn Hollt, fallegt og gott Auður Ingibjörg Kon- ráðsdóttir vinnur við það, sem heilsukokkur, að kynna fólki leynd- ardóma hollustufæðis án nokkurra aukaefna. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Súkkulaðikakan hin jólalega, eins og Auður kallar hana. Matur Súkkulaðikakan hin jólalega 1 bolli spelt ½ bolli hrásykur ¼ bolli kakó 1½ tsk vínsteinslyftiduft ¼ tsk bolli valhnetur (má sleppa) ½ bolli saxað 70% súkkulaði ¼ tsk salt ½ bolli ólífuolía 2 bananar, stappaðir ¾ bolli súkkulaðisojamjólk Vanilla Þurrefnum blandað saman, blautefnum blandað útí, sett á plötu með pappír og bak- að við 180°c í ca 15 mín. Súkkulaðikrem 1 lítil dós kókosmjólk 2 msk. agavesíróp 175 g 70% súkkulaði Hnetusmjörskonfekt ½ bolli möndlumjólk ½ bolli hlynsíróp eða agavesíróp ½ bolli hnetu- eða möndlusmjör 2 bollar heslihnetur, saxaðar Vanilla Setjið sojamjólk, síróp og smjör í pott og lát- ið suðu koma upp. Hrærið þangað til bland- an er mjúk. Blandið öllu saman og kælið, bú- ið til kúlur og veltið upp úr ristuðum, möluðum möndlum eða hnetum. Kælið. Konfekt Auðar úr möndlumjólk, sírópi, hnetu- og möndlusmjöri, heslihnetum og vanillu. Súkkulaðikaka og hnetusmjörs- konfekt sem fylgir því að borða hollan mat.“ Auður segist því boðin og búin að leið- beina fólki. „Ekki þurfa allir að gerast grænmetisætur eins og ég en stór sigur er unninn með því að borða sem allra hrein- astan mat. Hver og einn þarf að finna hjá sjálfum sér hvað er gott fyrir hann en því nær upprunanum sem maturinn er, því betra. Tvennt skiptir mestu máli; að borða hreinan mat og forðast aukaefni.“ Hún segir það geta reynst erfitt því aukaefni sé oft og tíðum vel falin. Nefnir aspastam, gervisætu sem hún segir nokkur eiturefni í, m.a. tréspíra. „Það er mikið notað í sykurlausa drykki og syk- urlaust tyggjó. Ég hef meira að segja séð þetta efni í barnatannkremi og vítam- ínum. Ég segi því við fólk: ef eitthvað er sykurlaust, passið ykkur!“ Mikill áhugi „Þetta efni, aspastam, sest á heila og taugakerfi og getur valdið MS og syk- ursýki. Það sest á frumurnar og líkaminn getur ekki losað sig við það fyrr en fólk hættir að taka efnið inn. Líkaminn er reyndar gangandi sjálfshreinsibúnaður en við þurfum að hjálpa honum.“ Þrír mánuðir eru síðan Auður opnaði heimasíðuna og hún segist þegar hafa eignast 10.000 vini á Facebook. Þegar Auður er spurt hvort hún sé stimpluð öfgamanneskja svarar hún ját- andi en jafnframt að henni sá nákvæm- lega sama. „Þeir sem telja mig öfgafulla eru þeir sem hafa eitthvað að fela.“ Og svo er það fjárhagslega hliðin; er hollustan ekki miklu dýrari en önnur vara? „Það er miklu ódýrara að drekka yndislegt, heilsusamlegt vatn úr krana en sykurlausan gosdrykk. Og með því spar- ar fólk sér lækniskostnað seinna meir; það verður því að líta á heildarmyndina og sjá hvar raunverulegt virði er. Ég get nefnt sem dæmi að ég fékk mígreniköst reglulega og át rándýrar töflur fyrir háar fjárhæðir en það sem mestu máli skipti til að breyta því var að ég hætti að borða bakarísbrauð og fór að baka mitt eigið úr spelti og án aukaefna.“ www.heilsukokkur.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.