SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Síða 8

SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Síða 8
8 6. desember 2009 B ál brennur í garðinum hjá Tiger Woods. Bál sem þessi frægasti íþróttamaður heims kveikti sjálfur. Viðbrögð hans við vánni verða seint vottuð af brunaliðinu en í stað þess að lauga lóðina í vatni greip Woods til olíunnar. Sull- aði yfir eldinn. Hvað átti hann svo sem að gera, gætu menn bent á, brunahaninn við húsið er bilaður? Fyrir viku lék allt í lyndi hjá Woods – alltént út á við. Hann er af mörgum talinn fremsti íþróttamaður heims, fæddur til að sigra og fumlaus í öllum sínum aðgerðum. Ímynd hans var líka óblettuð utan vallar. Woods var nánast holdtekja hins fullkomna. Enginn maður í íþróttasögunni hefur verið betur til þess fallinn að vera fyrirmynd hinnar tápmiklu æsku, nema ef vera skyldi Michael Jor- dan. Síðan féll kusk á hvítflibbann. Í upphafi átti Woods raunar samúð heimsins. Hann hafði ekið á brunahana og tré í götunni heima hjá sér og hlotið áverka. Eiginkona hans, Elin Nordegren, dró hann hálfrænulausan út úr bílnum. Fjölmiðlar fundu þó snemma fnyk af málinu? Hvers vegna slasaðist Woods svona mik- ið? Áreksturinn var minniháttar. Hvað var hann að þvælast klukk- an hálfþrjú að nóttu og hvers vegna var Nordegren á vettvangi með golfkylfu? Halda ber því til haga að atburðarásin þessa örlagaríku nótt er afar óljós en kenningar um hjónaerjur hafa fengið byr undir báða vængi. Woods hefur þó harðneitað því að Nordegren hafi valdið honum áverkunum. Aldrei hafði borið skugga á hjónaband Woods og Nordegren en eftir uppákomuna fóru sögusagnir um hjúskap- arbrot kylfingsins eins og eldur í sinu um heimsbyggðina. Er hann nú grunaður um að hafa haldið framhjá spúsu sinni, ekki bara með einni konu heldur þremur. Að minnsta kosti. Ein kvennanna, Jai- mee Grubbs, hefur raunar stigið fram fyrir skjöldu og upplýst að hún hafi haldið við Woods í hálft þriðja ár. Sambandinu á að hafa lokið í október síðastliðnum. Hinar tvær, Kalika Moquin og Rachel Uchitel, hafa ekki gengist við ódæðinu og sú síðarnefnda raunar vísað öllum ásökunum til föðurhúsanna. Hefði átt að „stíga inn í fréttina“ Sjálfur birti Woods yfirlýsingu á heimasíðu sinni sl. fimmtudag þar sem hann viðurkenndi að hafa brugðist fjölskyldu sinni og kvaðst iðrast mistaka sinna inn að hjartarótum. Bað hann um tilfinn- ingalegt svigrúm til að græða sárin með sínum nánustu. Ímyndarfræðingar eru á því að þarna hafi Woods skriplað á sköt- unni. Í stað þess að klóra yfir slóð sína af veikum mætti hefði hann átt að „stíga inn í fréttina“ af fullum þunga og játa á sig framhjá- hald í svo mörgum orðum. Þannig hefði hann afvopnað fjölmiðlana í eitt skipti fyrir öll – og slökkt bálið. Almannatengillinn Gene Gra- bowski bendir Woods á að taka sér spéfuglinn David Letterman til fyrirmyndar. Þegar sögur um framhjáhald hans gengu fjöllunum hærra fyrr á þessu ári játaði hann syndir sínar opinberlega – og gerði jafnvel góðlátlegt grín að sjálfum sér. Þannig kom hann á augabragði í veg fyrir að einkalíf hans tröllriði fjölmiðlum, einkum gulu pressunni, svo vikum og mánuðum skipti. „Alþýðan fyr- irgefur margt en frábiður sér yfirhylmingar,“ segir Grabowski í samtali við AP-fréttastofuna. Annað gott dæmi er körfuboltamaðurinn Kobe Bryant. Þegar kona nokkur bar honum kynferðislega misnotkun á brýn um árið steig hann tárvotur fram og viðurkenndi hórdóm. Bryant gekkst hins vegar ekki við ásökunum konunnar um valdbeitingu og málið dagaði uppi. Í dag er það gleymt og grafið, alltént er keppnistreyja með nafni og númeri Bryants sú söluhæsta í heiminum. George Merlis, sem starfar sem ráðgjafi fyrir fræga fólkið vestra, tekur í sama streng og Grabowski. „Ég ráðlegg fólki alltaf að koma hreint fram og slá á vangaveltur með staðreyndum. Vangaveltur hafa nefnilega þann leiða vana að breytast með tímanum í stað- reyndir,“ segir hann í samtali við AP. Tiger Woods er undir feldi. Augu alheimsins hvíla á húninum, eins og í Höfða forðum. Hans er valið. Mun hann gangast við breyskleika sínum eða leyfa heimili og orðspori að brenna upp til agna? Tígur hnígur Tiger Woods með kusk á hvítflibbanum Hjónakornin Elin Nordegren og Tiger Woods á góðri stundu. Þau hafa beðið um næði til að greiða úr sínum málum. ReutersVikuspegill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Cadillac Escalade-bifreið Woods þarf á viðhaldi að halda. Rachel Uchitel Jamiee Grubbs Kalika Moquin Alþýðan fyrirgefur margt en frábiður sér yfirhylm- ingar. Svo sem nafnið gefur til kynna er Elin Nordegren sænsk í húð og hár. Fædd í Stokkhólmi á nýárs- dag 1980. Foreldrar hennar eru stjórnmálamaðurinn Barbro Holm- berg, sem var ráðherra í rík- isstjórn Svíþjóðar á árunum 2003-06, og útvarpsmaðurinn Thomas Nordegren. Elin Nordegren gat sér ung orð sem fyrirsæta í heimalandinu en hélt ásamt tvíburasystur sinni, Josefin, sem au pair til Bandaríkj- anna árið 2001. Gættu systurnar bús og barna sænska kylfingsins Jespers Parneviks sem kynnti El- inu fyrir Tiger Woods. Ef marka má ummæli hans í fjölmiðlum í vikunni iðrast hann nú þeirra gjörða sinna. Nordegren og Woods gengu í heilagt hjónaband á Barbados fyr- ir rúmum fimm árum. Frumburður þeirra, dóttirin Sam Alexis, kom í heiminn sumarið 2007, og son- urinn Charlie Axel kom til skjal- anna í febrúar á þessu ári. Árið 2006 birti írska blaðið The Dubliner nektarmyndir sem áttu að vera af Nordegren en reyndust vera af allt annarri konu. Hún höfðaði mál á hendur blaðinu og fór með sigur af hólmi. Ráðherradóttir frá Svíþjóð SNILLDARJÓLAGJÖF HLEÐSLUTÆKI 15% jólaafsláttur af þessum frábæru tækjunum 12V 3,6A 12V 0,8A 12V 4A Nýtt

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.