SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Síða 12
12 6. desember 2009
U
ndanfarið hef ég verið að velta því fyrir mér hvernig
þau Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Stein-
grímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hafa breyst, gjör-
breyst, við það að setjast í þá stóla sem þau nú sitja í og
deila og drottna úr. Ekki síst hef ég velt því fyrir mér hvort þau trúi
því í raun og veru að íslenska þjóðin sé með eitthvert gull-
fiskaminni sem mér var einhvern tíma sagt að næði þrjár sekúndur
aftur í tímann. Skyldu þau trúa því að við munum ekki lengur
hvernig þau, þessir tveir alþingismeistarar í málþófi, töfðu störf
hins háa Alþingis þing eftir þing, ár eftir ár, langt umfram aðra
stjórnarandstöðuþingmenn?
Steingrímur hefur fyrir löngu áunnið sér titilinn ræðukóngur Al-
þingis og enginn kemst með tærnar þar sem hann hefur hælana í
þeim efnum og Jóhanna sem stjórnarandstöðuþingmaður átti það
til að tala svo lengi á þingi að þingheimur velti því alvarlega fyrir
sér hvort hún þyrfti aldrei að fara á klósettið!
Þessi sömu tvö, sem nú hafa setið á ráðherrastól í tíu mánuði,
ráðast nú hart á stjórnarandstöðuþingmenn og saka um málþóf
þegar stjórnarandstaðan hefur viljað ræða og ræða í þaula það graf-
alvarlega mál sem undanfarna mánuði hefur skyggt á öll önnur
mál, hvort sem er á þingi eða almennt í þjóðfélaginu, og þar vísa ég
vitanlega til Icesave-málsins.
Ráðherrarnir gefa ekkert fyrir rökstuðning virtra lagaprófessora
og hæstaréttarlögmanna fyrir því að halda megi því fram að verði
frumvarp ríkisstjórnarinnar um Icesave og ríkisábyrgð að lögum sé
verið að skerða fullveldi ríkisins umfram það sem stjórnarskrá
okkar Íslendinga heimilar.
Þeir sem halda þessu fram eru ekki ómerkari menn en þeir Sig-
urður Líndal og Stefán Már Stefánsson lagaprófessorar og hæsta-
réttarlögmaðurinn Lárus L. Blöndal eins og lesa mátti í grein þeirra
hér í Morgunblaðinu sl. miðvikudag.
Fyrirvararnir frá því í sumar eru að engu orðnir og samt eru þau
Jóhanna og Steingrímur enn við sama heygarðshornið. Icesave skal
samþykkt. Svo er haft í hótunum undir rós eins og Steingrímur
gerði ítrekað í fjölmiðlum fyrr í þessari viku og bar við því að ekki
væri hægt að skýra úr ræðustól á Alþingi hvaða skelfingar steðjuðu
að landi og þjóð væri frumvarpið ekki samþykkt snemmendis,
helst strax í gær. Þá virðast þau Jóhanna og Steingrímur ekkert
gefa fyrir það að 25 þúsund Íslendingar hafa nú þegar skorað á
manninn sem býr á Bessastöðum að synja Icesave-lögum staðfest-
ingar verði frumvarpið á annað borð að lögum. Fróðlegt verður að
vita hvað forsetinn telur rétt að gera komi til þess að hann eigi að
staðfesta lögin. Þá mun nú heldur betur reyna á forsetann því synji
hann staðfestingar kemur til þjóðaratkvæðagreiðslu um lögin, sem
að líkindum yrðu kolfelld, og þá gilda lögin með fyrirvörunum,
sem samþykkt voru á Alþingi í sumar, á ný.
Því miður tel ég litlar líkur á því að frumvarpið verði ekki að lög-
um. Ég segi því miður fyrir okkur skattgreiðendur þessa lands, því
miður fyrir skattgreiðendur Íslands í framtíðinni, börnin okkar,
barnabörnin og barnabarnabörnin.
Það gæti verið umhugsunarefni fyrir þau Steingrím og Jóhönnu
að velta því fyrir sér hvað barnabörn þeirra, barnabarnabörn og
barnabarnabarnabörn munu segja í framtíðinni og hvaða spurn-
inga þau munu spyrja þegar þau komast á skólaaldur og fara að
læra Íslandsögu fyrrihluta 21. aldarinnar. Gera þau sér kannski í
hugarlund að afkomendur þeirra muni þurfa að lesa það í kennslu-
bókum um þá tíma sem við nú lifum að það sé einkum og sér í lagi
þessum sérstaka afa, langafa, langalangafa, Steingrími J. Sigfús-
syni, og þessari ömmu, langömmu, langalangömmu, Jóhönnu Sig-
urðardóttur, að kenna að afkomendur þeirra, eins og aðrir Íslend-
ingar framtíðarinnar, þurfi að búa við kröpp kjör, jafnvel mjög
kröpp kjör? Verður kannski söguskýring framtíðarinnar sú að for-
sætisráðherra Íslands og fjármálaráðherra, þau Jóhanna Sigurð-
ardóttir og Steingrímur J. Sigfússon, hafi misst sjónar á því meg-
inhlutverki sínu að gæta hagsmuna lands og þjóðar í nútíð og
framtíð? Munu sagnfræðingar framtíðarinnar reyna að varpa ljósi á
það hvers vegna þessi tvö gerðust svo ótrúlegar undirlægjur gagn-
vart Bretum og Hollendingum að Íslendingum hefði verið meiri
akkur í því að fá þá tvo drjóla, Darling, fjármálaráðherra Breta, og
Bos, fjármálaráðherra Hollands, til þess að gæta íslenskra hags-
muna? Kallast það að gæta hagsmuna þjóðar í nútíð og framtíð að
samþykkja drápsklyfjar skulda á íslensku þjóðina sem saklausir Ís-
lendingar og ófæddir og þess vegna enn saklausari Íslendingar tóku
engan þátt í að stofna til? Ég held ekki.
Hvernig
mun sagan
dæma þau?
Agnes segir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
7.00 Einar Mar vaknar til
barnanna, Steingríms Marar
sem er tveggja ára og Sólveigar
Marýjar sem er sjö ára. „Við
hjónin sameinumst um að koma
öllum á lappir og það getur oft
verið mikið fjör og barningur.
Fyrsti klukkutíminn fer í að
gera alla klára fyrir leikskóla og
skóla en konan sér um að skutla
börnunum. Þegar þau þrjú eru
farin út huga ég að sjálfum mér;
fer í sturtu og borða morg-
unmat.“
9.00 Bókabúð Máls og menn-
ingar er opnuð og vinnudag-
urinn hefst. „Ég og Jón Ellert
Lárusson verslunarstjóri förum
yfir það sem er framundan um
daginn. Það er mikið um atburði
hér í búðinni, sérstaklega í des-
ember með tilheyrandi upp-
lestrum og útgáfuhófum en ég
sé um skipulag þeirra viðburða.
Þennan dag er Súfistakvöld um
kvöldið svo við hugum að því að
setja bækur þeirra rithöfunda
sem þar lesa upp úr bókum sín-
um á tilboð auk annarra bóka.
Ég sé um að panta inn vörur
og bækur fyrir verslunina og
það tekur talsverðan tíma dags-
ins hjá mér enda fylgja því heil-
mikil samskipti við forlögin og
aðra birgja. Oftast geri ég þetta á
morgnana. Því miður fer allt of
mikill tími í þetta því mér finnst
skemmtilegast að standa í búð-
inni og afgreiða.“
Seinnipart dags fæ ég hins
vegar að sinna viðskiptavin-
unum og það er heilmikið að
gera. Vænst þykir mér um það
þegar fólk biður um ráðlegg-
ingar og það er sérstaklega mik-
ið um það núna í jólagjafa-
vertíðinni. Þegar
viðskiptavinirnir lýsa fyrir mér
bókasmekk Sigga frænda finnst
mér mjög gaman að geta bent
þeim á einhverja bók sem ég
held að frændinn kunni að
meta. Því legg ég upp úr því að
lesa mikið og kynna mér þessa
vöru sem ég er að selja.“
15.30 Matarhlé eru ekki á
ákveðnum tímum hjá Einari.
„Ég fer einfaldlega í mat ef ég er
mjög svangur. Það er oftast um
þrjú, fjögurleytið. Ég bý svo vel
að það er afskaplega gott kaffi-
hús í vinnunni þannig að ég get
skutlast upp og fengið mér góða
samloku. Ég þarf því ekki að
fara langt eftir mat. Ég ætla mér
hins vegar að skjótast heim í
mat milli klukkan sex og átta en
einhvern veginn tefst ég því
ýmis verkefni bíða. Þennan dag
fer ég því ekkert heim.“
20.00 Súfistakvöldið hefst
og Einar er kynnir kvöldsins.
„Þetta er frábært kvöld og ágæt-
lega mætt. Þarna mæta Elías
Snæland Jónsson, Anna Björns-
dóttir og Gunnlaugur Júlíusson
og lesa upp úr sínum bókum auk
þess sem Hjörleifur Valsson
leikur á fiðluna sína. Það er
ótrúlega gaman að geta tekið
þátt í svona skemmtilegum við-
burði og verið samt í vinnunni.“
22.00 Súfistakvöldi lýkur og
búðinni er lokað. „Þá dríf ég mig
heim. Ég er auðvitað örþreyttur
og búinn að missa af því að
kyssa börnin mín góða nótt. Ég
kíki samt aðeins inn í herbergi
til þeirra og smelli kossi á sof-
andi kinnar. Ég leggst svo upp í
sófa og sofna aðeins yfir sjón-
varpsþætti sem konan mín er að
horfa á. Þar dotta ég í hálftíma
þar til hún hnippir í mig og segir
kominn tíma til að fara í hátt-
inn. Lúrinn hefur tekið úr mér
mestu þreytuna svo ég tek bók
Vilborgar Davíðsdóttur um Auði
djúpúðgu með mér í rúmið og
les í tvo tíma, eða þar til ég lýk
við hana, áður en ég sofna.“
Dagur í lífi Einars Marar Þórðarsonar bóksala
Einar Mar Þórðarson nýtur sín innan um bækurnar og viðskiptavinina.
Morgunblaðið/Golli
Vill helst afgreiða
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Listmunauppboð
í Galleríi Fold
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
fer fram mánudaginn og þriðjudaginn
7. og 8. desember, kl. 18.15 báða daganna
í Galleríi Fold við Rauðarárstíg
Verkin verða sýnd í Galleríi Fold:
sunnudag kl.12–17 (öll verk), mánudag kl. 10–17 (öll verk),
þriðjudag kl. 10–17 (verkin sem ekki eru boðin upp á mánudag)
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Af gefnu tilefni bendum við á að öll verk eru skoðuð
af sérfræðingum til að koma í veg fyrir að falsanir
rati á uppboðið
N
ína
Tryggvadóttir