SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Qupperneq 15

SunnudagsMogginn - 06.12.2009, Qupperneq 15
6. desember 2009 15 hafa sjónskertan nemanda í tímum. Þeir höfðu allt á hornum sér sem var algjör óþarfi þar sem ég hafði komið mér upp námstækni sem virkaði ágætlega. Skól- inn gaf mér eiginlega aldrei séns og ég hætti eftir árið.“ Sjóninni hefur hrakað Sveinn segir sjóninni hafa hrakað með aldrinum. Hann hefur aldrei getað tekið bílpróf en er duglegur að ferðast á tveimur jafnfljótum eða með strætó. Þá nýtir hann sér leigubílaþjónustu fyrir blinda og sjónskerta. „Það er mjög gott að hafa aðgang að þeirri þjónustu. Ég hef takmarkaða trú á blindrahundum í svona litlu sam- félagi, þurfi ég að fara langa leið hringi ég bara á leigu- bíl. Sú þjónusta er niðurgreidd af hinu opinbera. Ég held að vinir mínir hjá Hreyfli móðgist ekkert þótt ég segi að þeir séu besti blindrahundurinn,“ segir Sveinn sposkur. Hann gengur mikið með Trýnu sína og enda þótt hún sé ekki þjálfuð fyrir sjónskerta segir Sveinn hana hjálpa sér að rata heim, einkum þegar farið er að skyggja. „Ég sé sama og ekkert í myrkri.“ Ég sit á að giska hálfan annan metra frá Sveini í stof- unni og spyr hvort hann sjái mig. „Já, ég geri það. Samt ekki betur en svo að þú gætir hæglega ullað framan í mig án þess að ég fattaði það,“ svarar hann og hlær. Sveinn gengur í öll helstu verk. „Ég kaupi í matinn og mun halda því áfram meðan ég kem ekki heim með þvottaefni í staðinn fyrir seríós. Ég skúra líka gólfin en er hættur að geta þvegið þvott. Við fengum okkur nýja þvottavél og ég sé ekki nægilega vel til að læra á hana. Það kemur ekki að sök, það sér bara einhver annar um þvottinn.“ Hann hlær dátt. Óttast ekki neitt Sjóndepran háir ekki Sveini þegar hann skrifar nótur en hann útilokar ekki að það geti gerst þegar fram líði stundir. „Enginn veit hvernig þetta kemur til með að þróast. Þegar ég var yngri var mér sagt að sjónin myndi ekki versna meira. Annað hefur komið á daginn. Það skyldi þó aldrei fara svo að ég gæti ekki skrifað tónlist.“ Spurður hvort hann óttist það svarar Sveinn án þess að hika: „Ég óttast ekki neitt. Það er mannskemmandi að lifa í ótta. Satt best að segja velti ég þessu ekki fyrir mér.“ Sveinn kveðst ekki sjá eftir því að hafa hætt í fjöl- braut á sínum tíma, tónlistin átti þegar hug hans allan. „Ég fékk snemma mikinn áhuga á tónlist. Það var hins vegar dýrt að senda barn í tónlistarskóla á þessum tíma þannig ég byrjaði á því að mennta mig sjálfur í tón- fræðum. Allir nemendur í Breiðagerðisskóla fengu að læra á hljóðfæri nema þeir sem voru í tossabekkjunum. Það þótti mér mikið óréttlæti,“ segir Sveinn og minnist þess að hafa kennt vinkonu sinni að halda á fiðlu. „Hún hafði ekki hugmynd um hvernig hún ætti að bera sig að en ég hafði kynnt mér það í þaula.“ Svo sem tíðkaðist fór Sveinn ungur að vinna á sumrin og þegar hann var þrettán ára notaði hann spariféð sitt til að hefja tónlistarnám, fyrst í Tónlistarskólanum í Reykjavík og síðan Tónlistarskóla Sigursveins D. Krist- inssonar. Hann byrjaði að læra á píanó en skipti fljót- lega yfir í klassískan gítar. Ástæðan var einföld, Sveinn hafði ekki efni á öðru hljóðfæri. Lagði gítarinn á hilluna Um tvítugt hélt hann utan til Kaupmannahafnar í gít- arnám og var þar um tveggja ára skeið. Er leið á námið var nemendum skipt í tvo hópa eftir áhugasviði, annars vegar þá sem þóttu efni í gítarkennara og hins vegar þá sem þóttu efni í einleikara. „Ég var í seinni hópnum og þurfti fyrir vikið að spila og æfa mig gríðarlega mikið, allt að níu tíma á dag. Sannleikurinn er hins vegar sá að gítarinn átti aldrei sérstaklega vel við mig og þarna gerði ég mér endanlega grein fyrir því að mig langaði ekki að verða gítarleikari. Ætli aðalskýringin hafi ekki verið sú að það er ekki til nægilega mikið af góðri tón- list fyrir gítar. Margt af því er vissulega hljómfagurt en ofboðslega léttvægt. Ég prófaði um tíma að spila á lútu en það átti ekki heldur við mig. Ég lagði því hljóðfærin á hilluna og ákvað að fylgja hjartanu – gerast tónskáld.“ Sveinn sneri heim og hóf tónsmíðanám hjá Atla Heimi Sveinssyni við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hann kveðst hafa verið „óreglulegur nemandi“, eins og ævinlega, og Atli Heimir og Jón Nordal hafi þurft að beita skrifstofu skólans fortölum til að halda honum á skrá. „Það hentaði mér betur að gera þetta á mínum forsendum en skólans. Skólar eru fínir fyrir fólk sem hefur lítinn aga en ég þarf ekki nauðsynlega á þeim að halda. Ég hef enga þörf fyrir að veifa prófgráðum fram- an í fólk. Ég vil bara skapa.“ Hafandi sagt þetta leggur Sveinn áherslu á, að hann hafi farið gegnum allt þjálfunarferlið. Þolinmæði og agi Hann segir tónsmíðar eiga ákaflega vel við sig. Þær séu skemmtileg blanda af sköpun, grúski og jarðbundinni þjálfun. „Tónskáld þarf að búa yfir mikilli þolinmæði og aga.“ Hann kenndi um tveggja ára skeið í Húnavatnssýslu og stundaði um elið mikið sjálfsnám. „Það var skemmtilegur tími en hugurinn leitaði út. Ég sótti því um meistaranám við Konunglegu akademíuna í Lund- únum. Mér skilst að 1.500 manns hafi sótt um tvö laus pláss, allt kolbrjálað lið, næpuhvítt í framan,“ segir hann og brosir, „og ég fékk annað plássið. Það stóð hins Morgunblaðið/Ómar Sveinn Lúðvík Björnsson tónskáld í stofunni heima í Grafarvoginum. Ofan á píanóinu er mynd af systur hans sem fórst. Grammófón- inn góða fékk Sveinn í antíkbúð á Spáni. Ég kaupi í matinn og mun halda því áfram meðan ég kem ekki heim með þvottaefni í staðinn fyrir seríós.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.